Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Page 62
Páskablað 15.–22. apríl 201462 Lífsstíll
„Ekki vera frosin úr kulda“
n Í Ferðafélagi barnanna gilda sérstakar ferðareglur n Börn þola illa kulda og vosbúð
B
örn eru aldrei fyrirstaða í
gönguferðalögum. Auðvitað
þarf að laga ferðaáætlun
ina að aldri og þörfum barn
anna og þeir fullorðnu þurfa
að temja sér ákveðna þolinmæði, því
þeir munu hvorki ganga eins hratt né
eins langt og áður. Á móti kemur að
við sem eldri erum fáum tækifæri til að
upplifa náttúruna upp á nýtt í gegnum
augu barnsins og lærum að dást að
hinu smáa sem á vegi verður, svo sem
köngulóarvef og daggardropa, gjótu í
hrauni og polla á steini.
Ferðafélag barnanna var stofnað
árið 2009 á vegum Ferðafélags Íslands
að fyrirmynd norska ferðafélagsins
DNT.
Höfuðmarkmið Ferðafélags barn
anna er að hvetja börn og foreldra til
útiveru og samveru í náttúru lands
ins og fá þannig öll börn til að upp
lifa sanna gleði í náttúrunni og upplifa
leyndardóma umhverfisins.
Ferðir Ferðafélags barnanna eru
farnar á forsendum barna og sniðnar
að þörfum þeirra.
Ungbörn
Nokkurra mánaða gömul börn má
setja framan á sig í burðarpoka og
ganga með um fjöll og firnindi. Þegar
börn eru farin að geta setið upprétt er
hægt að setja þau á bakið í þar til gerða
burðarpoka og þannig geta foreldr
ar hæglega gengið með börnin sín, til
dæmis í trússgönguferðum. Hér gildir
að hafa í huga að þó að þeim fullorðna
sé heitt á göngunni þá situr barnið
kyrrt og þarf því að vera vel klætt og
varið m.a. fyrir sól og vindum.
Leikskólaaldur
Erfiðasti aldurinn til að ganga með
börn er frá því að þau verða of þung í
burðarpokann og þar til að þau geta
farið að ganga einhverjar vegalengdir
sjálf. Það fer eftir þyngd og líkamlegri
hreysti barnanna hversu langur tími
þetta er, en hægt er að miða við frá
tveggja, þriggja ára aldri til u.þ.b. fimm
ára. Á þessum aldri er best að fara í
styttri dagsferðir, til dæmis út frá tjaldi
eða skála, skoða fjörur og gil, hoppa í
mosa og pollum, búa til músahús úr
trjágreinum og laufblöðum, stífla læki
og stikla á steinum. Börn á þessum
aldri ættu þó að fá sínar gönguáskor
anir enda geta þau hæglega gengið á
flest lægri fjöll, eins og t.d. Úlfarsfell í
Mosfellsbæ eða Valahnúk í Þórsmörk.
Grunnskólaaldur
Að öllu jöfnu eru börn fær um að
ganga flestar styttri dagleiðir frá fimm,
sex ára aldri.
Auðvitað er mikilvægt að fyrsta
ferð fimm ára barns sé ekki fjögurra
daga ferð um Laugaveginn en fimm
ára börn geta hins vegar gengið slíkar
vegalengdir án nokkurra vandkvæða,
hafi þau vanist útiveru og göngum.
Passa þarf að börnin séu aldrei svöng,
aldrei kalt og aldrei leið og stundum
þarf að hvetja þau áfram með því að
láta þau keppa að einhverju takmarki
eða láta þau gleyma þreytunni með
því að segja þeim spennandi sögu á
meðan gengið er. Gott er að skipta
göngunni upp í sjáanlega áfanga
(þegar komið er að þessari á, þessum
kletti, undir þetta fjall) þar sem hægt
er að stoppa, hvíla, nasla og dunda.
Gera þarf ráð fyrir að gangan taki allt
að helmingi lengri tíma en þegar bara
fullorðnir eru á ferð.
Unglingar
Frá 10 ára aldri byrja börn að sýna
meira sjálfstæði í ferðalögum og á
göngu og eru farin að geta gengið til
jafns við fullorðna. Þau vilja gjarnan
taka vini sína með, virðast geta geng
ið endalaust og gleyma sér oft á vina
spjalli svo að helsta verkefni foreldr
anna getur falist í því að passa að þau
gangi ekki eitthvað út í buskann og
týnist! Á þessum aldri vilja krakkar
oft fá að reyna meira á eigin getu og
prufa eitthvað nýtt. Þeim finnst gaman
að klifra og skrönglast um hella, sigra
fjallstoppa, vaða ár, skoða kort og
plana gönguleiðir.
Börn og búnaður
Það getur stundum verið erfitt að átta
sig á því hvort börnum er kalt, of heitt
eða eru vot. Börn þola minni kulda en
fullorðnir en verður aftur á móti fljótt
heitt þegar þau hreyfa sig. Því er mikil
vægt að fylgjast vel með líðan þeirra
og taka ekki einungis mið af því hvern
ig manni sjálfum líður. Það þarf líka
að fylgja því eftir að þau klæði sig úr
og í eftir því sem veðrið breytist með
an á ferðinni stendur. Athugið að vatn
leiðir kulda þrisvar sinnum meira en
loft og því er nauðsynlegt að halda sér
þurrum til þess að koma í veg fyrir að
manni verði kalt.
Undirföt
Best er að hafa ull innst við líkamann,
t.d. þunnan ullarbol og þunna ullar
sokka. Það er líka gott að láta börn
in nota síðar ullarbuxur þegar þau
eru á ferðalagi og slíkar buxur eru t.d.
fínar göngubuxur. Hægt er að fá ullar
föt sem ekki klæjar undan og má þvo í
þvottavél.
Millilag
Auka flís eða ullarpeysa í bakpokan
um er nauðsynleg ef maður situr kyrr
lengi. Að öðru leyti er betra að klæða
sig í fleiri þunn lög heldur en eitt þykkt.
Loft milli fatalaganna heldur hita og
það er miklu auðveldara að stjórna lík
amshitanum með því að geta farið úr
og í mismunandi flíkur.
Ytri föt
Vind og vatnsþétt föt, regngalli eða
kuldagalli, gjarnan með hettu, eiga
alltaf að vera með í för. Þetta gildir
bæði vetur sem sumar. Mjög þykkir
og hlýir gallar henta hins vegar oft
illa, bæði til göngu og skíðaiðkunar.
Vindþéttur regnfatnaður eins og jakki
og buxur eru betri og barnið getur þá
stjórnað hitanum með því að bæta við
eða fjarlægja þynnri lög undir jakk
anum. Hlýir sokkar og hanskar eru
nauðsynlegir ef vera á lengi úti í snjó.
Fötin eiga að vera þægileg þó að þau
verði blaut.
Skór
Hægt er að kaupa vandaða og góða
gönguskó á börn. Það er þó ekki alltaf
nauðsynlegt að fjárfesta í dýrum skóm.
Góðir íþróttaskór, upp háir kuldaskór
eða jafnvel stígvél geta vel dugað á
styttri göngu, allt eftir veðri. Gott er
að hafa skó til skiptanna í náttstað og
inniskó ef dvalið er í skála. n
ritstjorn@dv.is
n Passið að börnin drekki vel á göngu.
Jafnframt þarf að passa upp á að þau haldi
ekki í sér pissi, því það getur leitt til þess að
þeim verði kalt og fái verk í magann.
n Bakpokar eru ekki vatnsheldir svo það
þarf að pakka öllu sem ekki má blotna í
plastpoka ofan í pokann.
n Ef skór eru blautir er ágætt að fara í þurra
sokka og svo í plastpoka ofan í skóna. Þetta
er þó ekki lausn til lengri tíma þar sem að
lokum myndast raki innan í plastpokunum.
n Alltaf ætti að bæta á sig fötum í stopp-
um. Líkaminn er fljótur að kólna niður þegar
hann er ekki á hreyfingu.
n Gott er að mæta smávægilegum hita-
breytingum með húfu og vettlingum. Þessir
hlutir ættu því alltaf að vera aðgengilegir í
bakpokanum.
n Ullarfatnaður er að jafnaði besti ferða-
klæðnaðurinn enda heldur ullin einangr-
unargildi sínu og er hlý þótt hún sé vot.
n Bómullarfatnaður er afleitur ferðafélagi
því bómullin verður bæði þung og köld
þegar hún blotnar og þornar illa.
n Gallabuxur eru aldrei leyfilegar á fjöllum
enda beinlínis lífshættulegt að verða
blautur í slíkri flík.
n Skíðaútbúnaður þarf ekki að vera nýr
af nálinni og hægt er að gera góð kaup á
skiptimörkuðum.
n Börnin eiga að vera í skíðaskóm sem eru
þægilegir og það rúmir að þau komist í þá í
hlýjum ullarsokkum.
n Barnaskíði eiga almennt að vera breið,
þ.e. ekki mjórri en hællinn á skónum, þau
eiga að mjókka í miðjunni og vera mjúk til að
gefa þeim betri festu í brekkunni.
n Almenna reglan er að lengd skíða á að
vera svipuð og hæð barnanna, en þriggja
til fjögurra ára börn geta verið á styttri
skíðum. Stafirnir eiga að bera við öxlina,
vera með rúnnaðan odd og ólar sem hægt
er að lengja/stytta.
n Sólgleraugu með vörn gegn útfjólubláum
geislum eru líka mikilvæg fyrir börn. Festið
þau með bandi um hálsinn svo þau týnist
ekki.
n Gott er að hafa sólarkrem með hárri vörn
meðferðis, bæði í vetrar- og sumarferðum
og líka í skýjuðu veðri á fjöllum, því þá er
ekki síður mikilvægt að bera vel á nef og
kinnar.
n Í miklum kulda á veturna er nauðsynlegt
að bera feitt krem, t.d. sérstakt kuldakrem,
á kinnarnar.
n Ef barnið á að bera bakpoka þá ætti hann
að vera mjög léttur, helst bara með nesti
barnsins eða aukapeysu, húfu og vettlinga.
Barn undir átta ára aldri ætti aldrei að bera
meira en sem nemur 1/10 af þyngd þess.
n Það getur verið ágætt að láta eldri börn
hafa einn göngustaf og stilla hann rétt fyrir
þeirra hæð. Stafir gera hins vegar minna
gagn hjá yngri börnum og vilja oftast bara
flækjast fyrir fótunum á þeim.
n Ungum börnum finnst oft gaman að
ganga með einhvers konar létt stafprik,
t.d. úr bambus, trjágrein eða jafnvel bara
flugeldaprik sem þau geta notað til að pota
í það sem á vegi verður.
Sögustund Magnús
Jónsson sagnameistari
segir börnum sögur.
Börn á göngu Börn
þurfa lengri tíma til
göngu en fullorðnir
og þola kulda verr.
Hafið það ávallt í
huga svo þau hafi
gaman að útiverunni.
Leyfið þeim að taka
með vini og njóta
samverunnar við þá.
Ferðareglur
barnanna
n Öll börn geta farið í ferðalag
n Við viljum gjarnan hafa vin okkar með
n Við viljum taka þátt í að skipuleggja
ferðina
n Okkur langar til þess að ganga á
undan og ákveða hraðann
n Við viljum hafa tíma til þess að leika
og upplifa spennandi hluti
n Við viljum hafa tíma til að tala um
það sem fyrir augu ber
n Við viljum fá eitthvað gott þegar
takmarkinu er náð
n Við viljum hafa það notalegt á
kvöldin þegar við erum að gista
n Við viljum ekki vera frosin úr kulda,
blaut eða smeyk
Ull en ekki bómull Bómullarfatnaður
er afleitur ferðafélagi því bómullin verður
bæði þung og köld þegar hún blotnar og
þornar illa.
Góð ráð fyrir börn á ferð
Dekkverk WWW.DEKKVERK.IS578 7474
OPIÐ ALLA DAGA frá 10–19 // ÓDýr ný Dekk // LYnGáS 20, GArÐABÆ