Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2014, Page 64
Páskablað 15.–22. apríl 201464 Menning
Svissnesk töfratár við augnþurrki
Vertu viss með
DROPAR
Lykjur, án rotvarnarefna.
Hægt er að loka eftir opnun.
Dreypiglas 10ml
Má nota í 3 mánuði eftir opnun.
GEL
Lykjur, án rotvarnarefna.
Hægt er að loka eftir opnun.
Dreypiglas 10ml
Má nota í 3 mánuði eftir opnun.
VISMED fæst á eftirtöldum stöðum: Lyfja, Apótekið, Lyfjaval, Borgarapótek, Fríhöfnin, Lyfjaborg,
Lyfsalinn, Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Garðabæjar, Garðs Apótek, Lyfjaver, Rima Apótek,
Apótek Árbæjar, Siglufjarðarapótek, Urðar Apótek, Reykjavíkur Apótek, Akureyrar Apótek.
Kemst ekki á flug
V
alur Freyr Einarsson og
leikhópurinn Common
Nonsense hlutu verð
skuldaða athygli og hrós
fyrir verkið Tengdó fyrir
tveimur árum, uppskáru Grímu
verðlaun og miklar vinsældir með
al áhorfenda. Engin furða því verk
ið talaði beint til hjarta þeirra án
þess að detta niður í væmni og til
finningasemi og tók á kynþátta
fordómum með persónulegri og
dramatískri sögu úr fjölskyldu að
standenda leiksýningarinnar. Nú
feta Valur Freyr og leikhópur
inn sömu leið, ætla sér eflaust að
endurtaka leikinn sem heppnað
ist svona vel í Tengdó en því miður
fatast þeim flugið í þetta sinn.
Saga af sársauka
Valur Freyr er höfundur handrits
ins sem fjallar um um tengsl og
tengslaleysi feðga og styðst m.a.
við heimildir sem hann aflaði með
viðtölum við ýmsa einstaklinga.
Gallinn er bara að meginsagan
um ferkantaða og tilfinningahefta
kerfisfræðinginn Ólaf Haraldsson
nær aldrei að fanga og negla áhorf
andann eða kveikja áhuga hans á
örlögum persónunnar. Ástæðan er
einfaldlega sú að frásagnartækn
in á leiksviðinu, sjálf aðferðin við
að miðla tilfinningasögu þriggja
karlmanna úr sömu fjölskyldu, er
hvorki hrífandi né sérlega frum
leg. Hér er reynt að segja djúpa og
áhrifamikla sögu af síendurteknum
áföllum og ofbeldi, sem í þessu til
viki hefur leitt til bælingar og þagn
ar. Sársaukinn sem af því hlýst er
síðan viðfangsefni sýningarinnar,
bæði í nútíð og fortíð persónanna.
Þar er þó tilfinningalegt stjórn
leysi kerfisfræðingsins Ólafs, vandi
hans og óhamingja í fyrirrúmi. Við
óvænt fráfall föður hans kemur
Dagbók jazzsöngvarans upp á yf
irborðið og þögnin milli kynslóða
er rofin. Sonur kynnist föður sín
um, djasssöngvaranum, eftir dauða
hans og myndar þá fyrst tengsl við
hann sem aldrei voru til staðar.
Lifnar ekki almennilega
Til þess að rekja þessa sögu
feðganna sem nær aftur til afans
Benedikts og ömmunnar Ásu, hefur
Valur Freyr skapað heimilishjálp
ina Stellu, eldri konu sem þekkti
föður hans betur en hann sjálfur.
Hún er aflið sem drífur ruglingslega
söguna áfram, nauðsynleg upplýs
ingaveita í sýningu sem aldrei nær
að lifna almennilega nema í eins
tökum atriðum úr fortíð persón
anna. Jú, og í útfararatriðinu í lokin
þar sem þau Valur Freyr og Krist
björg Kjeld áttu góðan endasprett.
Valur Freyr hefur margt til brunns
að bera sem leikari og leikur hér
auk Ólafs, bæði föður sinn og afa.
En því miður verður leikur hans
nokkuð einhæfur, einkum í hlut
verki Ólafs Haraldssonar, enda
gefur sú persóna ekki færi á marg
breytilegri túlkun jafn einsleit og
hún er. Það var auðvitað snjallræði
að fá stórleikkonuna Kristbjörgu
Kjeld til liðs við sig í þessum leik
og hún brást ekki frekar en fyrri
daginn. Kristbjörg kann að ljá orð
um vængi en þó mátti alveg merkja
að skiptin milli hinnar lífsglöðu og
jákvæðu Stellu og hinnar tragísku
Ásu reyndu á. Þriðji leikarinn á
sviðinu er barnungur, Grettir Vals
son, sem þegar hefur aflað sér tölu
verðrar reynslu á leiksviðinu. Hann
leikur föður kerfisfræðingsins á
barnsaldri og hefur ákaflega fallega
nærveru á sviðinu og fína fram
sögn. Hann nær að lyfta einstökum
atriðum með vel mótuðum leik og
ekki síst raddbeitingu og söng sem
snertir.
Fullmikil endurtekning
Þrátt fyrir að tveir dramatúrgar
hafi unnið að uppfærslunni hef
ur þeim láðst að koma handriti og
sýningu saman í eina lifandi heild.
Ilmur Stefánsdóttir er annar þeirra
og jafnframt höfundur leikmynd
ar sem er samansafn af geymslu
draslinu sem líka erfist milli kyn
slóða eins og önnur óuppgerð og
óupplýst mál í geðsögu einstak
linga. Minnti fullmikið á leikmynd
úr öðru vinsælu leikriti sem nýlega
var sent út í sjónvarpi, en geymslu
hugmynd Ilmar varð aldrei lifandi
þáttur í skáldskap leiksviðsins.
Uppsetningin sem slík af hendi
leikstjórans Jóns Páls Eyjólfssonar
(sem er hinn dramtúrgurinn) er
fullmikil endurtekning af Tengdó,
aðferðin gengur ekki alveg upp að
þessu sinni eins og t.d. búninga
skipti leikara fyrir opnum tjöldum
sem leika fleiri en eina persónu.
Sýningin silast áfram á sömu nót
um og nær sjaldan flugi.
Dagbók jazzsöngvara leiðir
ósjálfrátt hugann að djassmúsík
sem er þó ekki nærri því eins stór
hluti af sýningunni og vænta má.
Ef til vill hefði verið þörf á að brjóta
oftar upp með söngatriðum, skipta
um lit og áferð. Í stað djassins
hafa höfundar sýningarinnar lagt
áherslu á að segja okkur raunsæis
lega fjölskyldusögu sem fær á sig
fullmikinn blæ af tilfinningasemi
og væmni. n
Barnung stjarna Grettir Valsson er þriðji leik-
arinn á sviði og nær að lyfta einstökum atriðum
með vel mótuðum leik og ekki síst raddbeitingu
og söng sem snertir. Mynd Jon PaLL EyJoLFSSon
Dagbók jazzsöngvarans
Höfundur: Valur Freyr Einarsson
Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson
Leikarar: Valur Freyr, Kristbjörg Kjeld,
Grettir Valsson
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir
Borgarleikhúsið í samstarfi við
CommonNonsense
Hlín agnarsdóttir
ritstjorn@dv.is
Dómur „Ef til vill hefði
verið þörf á að
brjóta oftar upp með
söngatriðum, skipta
um lit og áferð.
Biblíusögur
eru nýja bólan
Biblíuþættir vinsælli en Game of Thrones
Þ
að vekur stundum kátínu
kvikmyndaunnenda þegar
þeir komast að því að
Bandaríkjamenn framleiða
talsverðan fjölda bíómynda
á hverju ári sem ætlaðar eru sann
trúuðum kristnum áhorfendum.
Fæstar af þessum myndum rata hins
vegar í bíó. Nú hefur aftur á móti
orðið breyting þar á.
Frá donald Trump til Jesú Krists
Myndir byggðar á Biblíunni eru
næstum jafn gamlar kvikmynda
listinni sjálfri. Mestum vinsældum
náðu þær um miðja síðustu öld og
var Charlton Heston, sem síðar var
þekktur sem formaður bandaríska
byssufélagsins, gjarnan í aðalhlut
verki. Boðorðin tíu frá 1956 er enn
þann dag í dag sjöunda vinsælasta
kvikmynd sögunnar frá upphafi og
BenHur frá 1959, þar sem Kristur er
aukapersóna, var á sínum tíma næst
vinsælasta mynd sem gerð hafði ver
ið á eftir Gone With the Wind.
Næsta meiriháttar tilraun til að
brjóta almættinu leið á hvíta tjaldið
var þegar Martin Scorsese kvikmynd
aði skáldsögu Kazantzakis, The Last
Temptation of Christ. Myndin sýn
ir afar mannlegan frelsara, leikinn
af Willem Dafoe, sem eigi að síður
sigrast á breyskleika sínum og fram
kvæmir vilja guðs. Myndin hlaut ein
róma lof gagnrýnenda en kristnir
hópar í Bandaríkjunum snerust
gegn henni.
Meira áhorf en Game of Thrones
Breyting varð á árið 2004 þegar
Píslarsaga Mels Gibson tók inn 500
milljónir dollara og var mikið hamp
að af kristnum mönnum vestra. Það
var þó ekki fyrr en í fyrra að endan
lega kom í ljós að Biblíusögur voru
það sem fólkið vildi. Þættirnir The
Bible sem sýndir voru á History
Channel slógu í gegn og hlutu jafnvel
meira áhorf en nýjasta sería Game
of Thrones. Þættirnir voru tíu tals
ins, fimm tileinkaðir Gamla testa
mentinu og fimm því Nýja, og voru
framleiddir af Mark Burnett, sem
áður hafði gert raunveruleikaþætti á
borð við Survivor og The Apprentice.
obama sem Satan?
Þættirnir voru klipptir saman í bíó
myndina Son of God, sem frum
sýnd var vestra í lok febrúar þessa
árs. Ólíkt því sem gerðist hjá Scorsese
aldarfjórðungi fyrr sló myndin í
gegn en hlaut dræm viðbrögð gagn
rýnenda. Hinn hægrisinnaði stjórn
málaskýrandi Glenn Beck benti á að
Satan myndarinnar, leikinn af hin
um marokkóska Mohamen Mehdi
Ouazanni, minnti mjög á Obama
forseta, en framleiðendur hafa alfar
ið hafnað þessum meintu líkindum.
Batman snýr aftur sem Móses
Nýlega hófust sýningar á myndinni
Noah með Russell Crowe í aðal
hlutverki, sem tekin var að hluta
til hérlendis. Leikstjórinn Darren
Aranofsky er þekktastur fyrir drama á
borð við The Wrestler eða Black Swan
og lofaði að hér yrði mjög lítið Biblíu
leg Biblíusaga á ferðinni. Myndverið
Paramount reyndist á öðru máli.
Það var ekki leikstjórinn sjálfur sem
réð hinni endanlegu útgáfu verks
ins, heldur var myndin klippt aftur og
aftur og mismunandi útgáfur sýnd
ar hinum mismunandi trúarhópum.
Til að gulltryggja samþykki hinna
sanntrúuðu réðu þeir til sín Jonathan
Bock, sem hefur verið ráðgjafi varð
andi yfir 350 kvikmyndir trúarlegs
eðlis og tekur það jafnframt að sér að
markaðssetja myndir fyrir trúarhópa.
Hinir ýmsu leiðtogar bæði kristni
og gyðingdóms eru ánægðir með
myndina, og Russell Crowe sjálfur
hélt á fund erkibiskupsins af Kantara
borg til að fá blessun hans. Myndin
hefur hins vegar verið bönnuð í flest
um löndum múslima. Íslenskir gagn
rýnendur eru minna hrifnir, sem og
blaðið Kansas City Star, sem segir
myndina keppa við Battlefield Earth
og Showgirls um að vera hápunktur
inn á vondri kvikmyndagerð.
Þó syndaflóðið hafði hér brostið
á er ekki allt búið í bili. Alienleik
stjórinn Ridley Scott er nú að leggja
lokahönd á myndina Exodus, sem
byggð er á annarri Mósebók og
með Christian Bale í stað Charltons
Heston. Scott hefur áður sett sig
upp á móti kristinni trú, svo kannski
mun hann stöðva það flóð sem Nói
er hluti af. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Batman verður Móses Ridley Scott er með
Biblíuhamfaramynd í vinnslu. Christian Bale fer
með aðalhlutverk í myndinni Exodus.