Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Síða 2
2 Fréttir Helgarblað 13.–16. júní 2014
Rannsókn
á nauðgun
miðar vel
Rannsókn lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu á nauðgun sem
átti sér stað aðfaranótt 17. maí
síðastliðinn miðar vel, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu.
Lögreglan óskaði eftir vitnum
daginn eftir en kona um tvítugt
hafði leitað sér hjálpar í húsi við
Langholtsveg um fimmleytið um
morgun. Þar sagði hún að sér
hefði verið nauðgað og húsráð-
andi ók henni á neyðarmóttöku
Landspítalans í Fossvogi.
Talið er að konan hafi knúið
dyra á nokkrum stöðum á Hóls-
vegi og Langholtsvegi, áður en
eftir henni var tekið, en hún kom
að Hólsvegi frá Hjallavegi og gekk
síðan áfram Langholtsveg.
Engar upplýsingar fást um
málið hjá lögreglu aðrar en þær
að rannsókn málsins miði vel.
Hemmi gerir
góðverk
Knattspyrnukappinn Hermann
Hreiðarsson lagði í byrjun júní til
fimm hundruð þúsund krónur
sem stofnframlag í Hemmasjóð
Hjálparstarfs kirkjunnar. Í tilkynn-
ingu frá Hjálparstarfi kirkjunnar
kemur fram að nú hafi verið útbú-
ið sérstakt gjafabréf, Hemmasjóð-
ur, á vefnum gjofsemgefur.is. Það
gefur þeim sem þess óska tæki-
færi til að taka þátt í verkefninu
en sjóðurinn hefur það að mark-
miði að styrkja börn efnalítilla
fjölskyldna og veita þeim tækifæri
til að stunda íþróttir með vinum
sínum og félögum. Við móttöku
stofnfjár sagði Vilborg Oddsdóttir,
félagsráðgjafi og umsjónarmaður
innanlandsstarfs Hjálparstarfsins,
að markmið með sjóðnum væri
að verða við vonum og vænting-
um barnanna um að stunda
íþróttir að eigin vali.
Fjarlægði pistla um afgreiðslufólk
Fékk bakþanka vegna neikvæðninnar
E
lín Hirst, þingkona Sjálfstæð-
isflokksins, fjarlægði tvo pistla
af vefnum sem hún birti á Eyj-
unni á miðvikudagskvöld. Í
öðrum þeirra var farið hörðum orð-
um um afgreiðslufólk í leikfangabúð-
inni Toys´r´us á Korputorgi, en í hin-
um pistlinum var starfsmanni í Byko
hrósað fyrir góða þjónustu. Pistlarn-
ir vöktu athygli og umtal á samfélags-
miðlunum en hurfu rétt fyrir mið-
nætti. Aðspurð hvers vegna pistlarnir
voru fjarlægðir segir Elín að hún hafi
fengið bakþanka vegna þeirrar nei-
kvæðni sem birtist í skrifunum. Eftir
á að hyggja hafi henni þótt óþarfi að
vera með svona leiðindi.
Fyrri pistillinn bar titilinn „Öm-
urleg verslunarferð“ og birtist kl.
20:20. Þar sagði Elín Hirst frá því
þegar hún átti „erindi í verslunina
,,Toys´r´us“ eða ,,Leikföng eru okk-
ar fag“ við Korputorg í Grafarvogi“
og fékk ekki viðeigandi aðstoð við að
finna vörurnar sem hún leitaði að.
Elín hafði hvesst sig við starfsfólkið
og sagt: „krakkar, þið getið ekki kom-
ið svona fram við viðskiptavini ykk-
ar“. Þá komu starfsmennirnir henni
til hjálpar og báðu Elínu afsökunar
sem sjálf baðst afsökunar á að hafa
hvesst sig.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Í athugasemdakerfið fyrir neðan
pistil Elínar skrifaði Sigurður Hólm
Gunnarsson, iðjuþjálfi og forstöðu-
maður á skammtímaheimili fyr-
ir unglinga: „Þú ert oft ágæt Elín,
en mér finnst svolítið hart af þing-
manni að skrifa pistil til þess eins
að skamma „krakka“ í láglaunastarfi
fyrir að bjóða þér ekki nógu góða
þjónustu.“ Seinni grein Elínar fjallaði
um ánægjuleg kaup á byggingavör-
um í Byko, en hún var fjarlægð rétt
eftir að hún birtist. „Mér fannst skrít-
ið að taka út annan pistilinn en ekki
hinn, svo ég fjarlægði þá bara báða,“
segir Elín í samtali við DV. n
johannp@dv.is
Slæm þjónusta Þingkona Sjálfstæðis-
flokksins skrifaði pistil þar sem hún hellti
sér yfir afgreiðslufólk í leikfangabúð á
Korputorgi. Mynd Eyþór ÁrnaSon
Lokuðu pókerstað sem
þeir stunduðu sjálfir
Eigandi einkaklúbbs í Reykjanesbæ var handtekinn í aðgerðinni
S
íðustu helgi mættu lögreglu-
menn frá embætti lögreglu-
stjórans á Suðurnesjum í
einkaklúbb í Reykjanesbæ
og lokuðu staðnum. Stað-
urinn, sem ber nafnið Ásinn, var
opnaður nýverið á nýjum stað í
bæjarfélaginu við Hafnargötuna í
Reykjanesbæ en þar áður hafði Ás-
inn verið opinn við Básveg þar sem
nú er rekið kaffihús.
Tóku súkkulaðið og gosið
Lögreglumenn handtóku eiganda
staðarins, Jón Þröst Jónsson, og eina
unga konu sem sá um að gefa spilin
í pókernum þetta kvöld. Jón Þröstur
var látinn dúsa í fangaklefa í meira
en tólf tíma þar til skýrsla var tek-
in af honum. Lögreglumennirn-
ir hreinsuðu út af staðnum allt er
tengdist starfseminni; pókerborð,
tölvu, síma, bjór, súkkulaði, gos,
reiðufé og spilapeninga sem notaðir
eru í póker.
„Þeir snerust bara í hringi þarna
til að byrja með og vissu ekki ná-
kvæmlega hvernig þeir ættu að
tækla þetta. Ég var á endanum
handtekinn og þeir hreinsuðu allt
út hjá mér, meira að segja gosið og
súkkulaðið,“ segir Jón Þröstur í sam-
tali við DV.
Jón var settur í járn og hann færð-
ur á lögreglustöðina. Um það bil
hálftíma seinna var stúlka á staðn-
um líka handtekin og færð í fanga-
klefa en hún sá um að gefa spilin í
pókernum þetta kvöld.
„Ég bjóst ekki við þessu“
„Ég var með Ásinn á öðrum stað
í Reykjanesbæ en þar rak ég líka
sportbar. Þar voru afskipti lög-
reglu lítil sem engin. Ég fékk einu
sinni áminningu út af opnunar-
tíma staðarins og ég að sjálfsögðu
lagfærði þau mál hjá mér, mætti
til þeirra og ræddi við þá. Síðan þá
hafa þeir ekkert haft út á þetta að
setja,“ segir Jón Þröstur um aðkomu
lögreglunnar á Suðurnesjum.
Þegar Ásinn var opnaður á nýj-
um stað var fyrirkomulag rekstrar-
ins öðruvísi. Það var í raun og veru
enginn rekstur og enginn sportb-
ar heldur segir Jón Þröstur að hann
hafi verið með einkaklúbb þar sem
vinir og vandamenn hittust til þess
að spila póker um helgar.
Samkvæmt öruggum heimild-
um DV hafa lögreglumenn ver-
ið duglegir við að stunda staðinn,
bæði á gamla staðnum og þeim nýja
og skýtur það dálítið skökku við að
kollegar þeirra hafi mætt og lok-
að staðnum síðustu helgi: „Já, þetta
kom alveg flatt upp á mig. Ég bjóst
ekki við þessu,“ segir Jón Þröstur
sem enn bíður eftir því að fá símann
afhentan.
„Þeir sögðu við mig í yfirheyrsl-
unni að ég væri kærður fyrir ólög-
lega starfsemi sem tengdist fjár-
hættuspilum. Síðar var því bætt við
að ég seldi áfengi án leyfis,“ segir Jón
Þröstur sem hefur hingað til aldrei
komist í kast við lögin.
Hann vill meina að þar sem stað-
urinn hafi verið einkaklúbbur hafi
þetta ekki komið lögreglunni við og
að hann væri ekki að brjóta nein lög.
En er ekkert skrítið að lögreglu-
menn hafi stundað staðinn þinn og
síðan ákveðið að loka honum?
„Ég vil ekkert tjá mig um það
annað en að þetta hafi komið mér
og þeim sem þarna voru algjörlega
í opna skjöldu.“
Einn af þeim sem var staddur á
staðnum og ræddi við DV vildi ekki
koma fram undir nafni en sagði að-
gerðir lögreglu mikla hræsni í ljósi
þess að hann og aðrir hafi skemmt
sér konunglega við pókerborðið
ásamt starfsmönnum embættisins
yfir langt skeið.
DV hafði samband við emb-
ætti lögreglustjórans á Suðurnesj-
um og spurðist fyrir um aðgerðir
lögreglu þennan dag og hvort það
væri ekki óeðlilegt að starfsmenn
embættisins væru að stunda þenn-
an stað sem að þeirra mati virðist
vera kolólöglegur. DV fékk þau svör
að lögreglustjórinn sjálfur, Sigríður
Björk Guðjónsdóttir, væri í fríi.
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, lög-
fræðingur embættisins, svaraði fyr-
irspurn DV fyrir hönd lögreglustjór-
ans og sagði orðrétt: „Rannsókn
málsins er á algjöru frumstigi og
ekki unnt að veita frekari upplýs-
ingar fyrr en að henni lokinni.“ n
Einkaklúbbur
þar sem áður
var efnalaug
Hér var Ásinn til
húsa í Reykjanes-
bæ. Ekki ber mik-
ið á klúbbnum og
engar auglýsingar
eru um starfsemi
hans í húsinu.
Færð í handjárn og inn í klefa Jón Þröstur fékk að dúsa í fangaklefa á lögreglustöðinni
í Keflavík í meira en tólf tíma þar til skýrsla var tekin af honum. Mynd SigTryggur ari
„ Já, þetta kom
alveg flatt upp
á mig. Ég bjóst ekki við
þessu.
Jón þröstur Hefur
aldrei áður komist í kast
við lögin en lögreglu-
menn voru tíðir gestir á
Ásnum. Mynd Úr EinkaSaFni