Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Blaðsíða 6
6 Fréttir Helgarblað 13.–16. júní 2014
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
„Það er ekkert kross-
eignarhald í þessu“
Samkeppniseftirlitið hefur skoðað samvinnu Síldarvinnslunnar, Samherja og Gjögurs
V
ið afhentum gögn í maí í
fyrra. Ég hef ekki fengið eina
fyrirspurn eða annað síðan.
Þeir fengu bara þessi gögn
og ég veit ekki meir,“ seg-
ir Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri og annar aðaleigandi útgerðar-
fyrirtækisins Samherja, spurður um
stöðuna á athugun Samkeppnis-
eftirlitsins á samvinnu fyrirtækisins
og Síldarvinnslunnar og Gjögurs.
Hóf skoðun í fyrra
Vorið 2013 greindi Samkeppnis-
eftirlitið frá því í úrskurði um kaup
Síldarvinnslunnar á útgerðinni
Bergi-Hugin að stofnunin ætlaði
sér að skoða samvinnu útgerðanna
þriggja. Þær tengjast þannig að Sam-
herji og Gjögur eru stærstu hluthaf-
ar Síldarvinnslunnar. Allar eru þess-
ar útgerðir með þeim 20 stærstu í
landinu – Samherji er langstærsta
útgerð landsins á alþjóðavísu og sú
næststærsta miðað við aflaheimildir
á Íslandi. Síldarvinnslan skilaði í síð-
ustu viku góðu uppgjöri fyrir síðasta
ár en ákveðið hefur verið að greiða út
tveggja milljarða arð vegna rekstrar-
ársins í fyrra.
Segir Samherja ekkert eiga í Gjögri
Þorsteinn Már segir að Samherji eigi
ekkert í Gjögri og að öll framleiðsla
þessara fyrirtækja fari utan. „Öll
framleiðsla þessara fyrirtækja fer
utan. Ég veit ekkert um hvað þessi
athugun hjá Samkeppniseftirlitinu
snýst. Það er oft verið að tala um
krosseignarhald í þessu, eða við
heyrðum það í fjölmiðlum, en það
er ekkert krosseignarhald í þessu.
Gjögur á í Síldarvinnslunni, Síldar-
vinnslan á ekki í Gjögri og við eigum
ekki í Gjögri,“ segir Þorsteinn Már og
bætir því við að Gjögur sé fjölskyldu-
fyrirtæki sem verið hafi í eigu sömu
aðila í áratugi.
Enn í skoðun
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir að
skoðunin á samvinnu fyrirtækjanna
þriggja sé enn þá í skoðun. Hann
segist ekki geta sagt til um hvenær
skoðuninni lýkur. „Við höfum aflað
gagna í málinu og erum að vinna úr
þeim. Það er svo sem ekkert meira
um þetta að segja á þessari stundu,“
segir Páll Gunnar en enn sem kom-
ið er hefur athugunin eingöngu
snúið að gagnaöflun en ekki við-
tölum eða fyrirspurnum til manna
sem tengjast félögunum þremur.
Spurður um hvort gefinn verði út
sérstakur úrskurður um málið segir
Páll Gunnar að það velti á því hvað
kemur út úr athuguninni á sam-
starfinu. „En við munum ljúka mál-
inu með einhverjum hætti.“
Skoða ekki kvótaþak
Í úrskurði Samkeppniseftirlits-
ins um söluna á Bergi-Hugin til
Síldarvinnslunnar kom fram að til
skoðunar væri hvort samvinna út-
gerðanna þriggja bryti gegn 10.
grein samkeppnislaga. Orðrétt
sagði þar: „Jafnframt hefur ver-
ið ákveðið að taka framangreinda
samvinnu Síldarvinnslunnar, Sam-
herja og Gjögurs til rannsóknar
með hliðsjón af bannákvæði 10.
gr. samkeppnislaga. Samkeppnis-
eftirlitið hefur hins vegar ekki það
hlutverk að lögum að beita 13. gr.
laga um stjórn fiskveiða til þess að
koma í veg fyrir að útgerðir komist
með beinum eða óbeinum hætti
framhjá fyrirmælum þeirra laga um
kvótaþak.“ n
Til skoðunar í málinu
10. grein samkeppnislaga
Í athugun Samkeppniseftirlitsins á samvinnu
Síldarvinnslunnar, Samherja og Gjögurs liggur
undir 10. grein samkeppnislaga en hún hljóðar svo:
„Allir samningar og samþykktir milli fyrirtækja,
hvort heldur þær eru bindandi eða leiðbeinandi,
og samstilltar aðgerðir sem hafa að markmiði eða
af þeim leiðir að komið sé í veg fyrir samkeppni,
hún sé takmörkuð eða henni raskað eru bannaðar.
Bann þetta tekur m.a. til samninga, samþykkta og samstilltra aðgerða sem:
a. áhrif hafa á verð, afslætti, álagningu eða önnur viðskiptakjör með beinum eða
óbeinum hætti,
b. takmarka eða stýra framleiðslu, mörkuðum, tækniþróun eða fjárfestingu,
c. skipta mörkuðum eða birgðalindum,
d. mismuna viðskiptaaðilum með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og
veikja þannig samkeppnisstöðu þeirra,
e. setja sem skilyrði fyrir samningagerð að hinir viðsemjendurnir taki á sig viðbót-
arskuldbindingar sem tengjast ekki efni samninganna, hvorki í eðli sínu né sam-
kvæmt viðskiptavenju.“
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Veit ekki hvað
athugunin snýst um
Þorsteinn Már Baldvinsson
segir að hann viti ekki hvað
athugun Samkeppnis-
eftirlitsins snúist um en
að Samherji hafi skilað inn
gögnum í fyrra.
28 ökumenn
eiga von á sekt
Brot 28 ökumanna voru mynduð
í Hamrahlíð í Reykjavík á mið-
vikudag. Fylgst var með öku-
tækjum sem var ekið Hamrahlíð
í austurátt, við MH. Á einni
klukkustund, fyrir hádegi, fóru
77 ökutæki þessa akstursleið og
því ók meira en þriðjungur öku-
manna, eða 36 prósent, of hratt
eða yfir afskiptahraða. Í tilkynn-
ingu frá lögreglu kemur fram að
meðalhraði hinna brotlegu hafi
verið 44 kílómetrar á klukku-
stund, en þarna er 30 kílómetra
hámarkshraði. Sá sem hraðast ók
mældist á 59. Má sá eiga von á 25
þúsund króna sekt, samkvæmt
sektarreikni á vef FÍB.
Metamfetamín
í strandskóm
Tollverðir stöðvuðu nýverið þar
sem reynt var að smygla metam-
fetamíni til landsins í strand-
skóm. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá tollstjóra en þar segir
að innihald póstsendingarinnar
hefði eflaust sýnst sakleysislegt
ef ekki hefði verið til staðar rök-
studdur grunur um annað.
Um var að ræða rétt tæp 22
grömm af kristölluðu metam-
fetamíni. Voru efnin í fimm litl-
um pökkum, sem hafði verið
komið fyrir í skósólunum. Málið
var kært til lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Er tengdur lífeyrissjóðunum
Félag keypti N1 á Ægisíðu og ætlar að byggja íbúðir
S
tjórnarmaður félagsins Ægisíðu
ehf., sem keypt hefur bensín-
stöð N1 á Ægisíðu, heitir Örn
Valdimar Kjartansson og er
hann framkvæmdastjóri fasteignafé-
lagsins FÍ sem er í eigu nokkurra ís-
lenskra lífeyrissjóða. Morgunblaðið
greindi frá kaupum félagsins á bens-
ínstöðinni á fimmtudaginn sem og
þeirri ætlun félagsins að byggja þar
lágreista íbúðabyggð. Morgunblaðið
greindi hins vegar ekki frá því hverjir
eru hluthafar félagsins.
Samkvæmt upplýsingum úr hluta-
félagaskrá er Örn Valdimar stjórnar-
maður í félaginu og var það stofnað
af endurskoðendafyrirtækinu KPMG.
Eins og er þá er KPMG skráður hlut-
hafi félagsins. DV hefur gert árangurs-
lausar tilraunir til að ná í Örn Valdimar
til að spyrja hann um eignarhaldið
á félaginu og þar með hinni ætluðu
byggð sem rísa mun á bensínstöðvar-
reitnum.
Fasteignafélagið FÍ sem Örn fer
fyrir hefur verið stórtækt á fasteigna-
markaðnum á síðustu mánuðum.
Hefur félagið meðal annars keypt hús-
næði heilsugæslunnar í Glæsibæ, hús-
næði þýska og breska sendiráðsins,
hús Íslenskrar erfðagreiningar og Ár-
múla 1. Spurningin er því sú hvort líf-
eyrissjóðirnir séu á bak við kaupin á
lóð N1 en hún var seld á 260 milljónir
króna samkvæmt Morgunblaðinu. Ef
svo er þá aukast umsvif þeirra á fast-
eignamarkaði enn þá meira. n
ingi@dv.is
Ein af eignunum Ein af
eignunum sem Fasteigna-
félagið FÍ hefur keypt er
húsnæði heilsugæslunnar í
Glæsibæ. Mynd SIGtryGGur ArI