Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Síða 8
Helgarblað 13.–16. júní 20148 Fréttir
Einokunin er að baki
eftir milljarðs gróða
n Samkeppni í miðlun símanúmera n Kostnaðurinn minnst 160 krónur
F
yrirtækið Já hf., sem á síðustu
árum hefur greitt meira en
milljarð króna í arð til hluthafa
sinna, mun á næsta ári missa
þá einokunarstöðu í meðferð
símaupplýsinga sem fyrirtækið hef-
ur haft síðustu ár. Upplýsingarnar
um að endir skuli bundinn á einok-
unarstöðu Já hf. komu fram í fréttatil-
kynningu frá samkeppnisaðila Já hf.,
Miðlun, í síðustu viku. Póst- og fjar-
skiptastofnun tók þá ákvörðun.
Já hf. er að stofninum til fyrirtæki
sem var í eigu íslenska ríkisins þar
til Síminn hf. var einkavæddur árið
2005. Segja má að fyrirtækið hafi því
fengið þessa einokunarstöðu sína á
þessu sviði upplýsingamiðlunar í arf
frá íslenska ríkinu.
Fleiri geta notað upplýsingarnar
Já hf. rekur upplýsingaþjónustur, 118,
1818 og 1811, þar sem hægt er að fá
upplýsingar um símanúmer á Íslandi
gegn gjaldi. Stærsti eigandi Já hf. er
fagfjárfestasjóður sem er í stýringu
hjá fjármálafyrirtækinu Auði Capi-
tal en hann á 85 prósenta hlut í fé-
laginu. Þær Sigríður Oddsdóttir og
Katrín Olga Jóhannesdóttir eiga svo
saman 15 prósent í fyrirtækinu. Í
fréttatilkynningunni frá Miðlun sagði:
„Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt
ákvörðun sem binda mun enda á ein-
okun Já upplýsingaveitna á símanúm-
eraupplýsingum einstaklinga. Þriggja
stafa símanúmerinu 118 verður lok-
að á næsta ári og upplýsingaþjónusta
um símanúmer einstaklinga verður
framvegis í gegnum númer sem byrja
á 1800. Með þessari ákvörðun eru það
ekki lengur Já upplýsingaveitur sem
hafa forræði yfir símaskrárupplýsing-
um einstaklinga, heldur annast hvert
fjarskiptafyrirtæki gagnagrunn um
númer sinna viðskiptavina. Þær upp-
lýsingar geta fjarskiptafyrirtækin síð-
an látið þriðja aðila í té sem veitir al-
menningi númeraupplýsingar.“
Arður upp á 500 milljónir
Já. hf. hefur á síðustu árum skil-
að miklum hagnaði. Árið 2012 nam
hagnaðurinn til að mynda 257 millj-
ónum króna og gerði stjórn félagsins
tillögu um að nær allur hagnaðurinn
skyldi greiddur út sem arður í fyrra.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 2013
liggur hins vegar ekki fyrir. Í ársreikn-
ingnum árið á undan, 2012, kemur
hins vegar fram arðgreiðsla upp á 250
milljónir króna vegna góðs rekstrar
árið 2011. Samtals nema arðgreiðsl-
ur út úr félaginu frá árinu 2009 1.150
milljónum króna og greiddur og boð-
aður arður fyrir tvö síðustu rekstrarár
samtals 500 milljónum.
Kostnaðurinn minnst 160 krónur
Líkt og fjallað hefur verið um í DV þá
er þjónustan sem Já hf. hefur veitt
ekki ódýr. Fyrirtækið tekur upphafs-
gjald upp á 85 krónur og strax bæt-
ast 75 krónur við það gjald en það
er einmitt mínútugjaldið fyrir símtal
í 118. Hver mínúta þar á eftir kostar
því 75 krónur aukalega. Tenging við
símanúmerið kostar svo 50 krón-
ur aukalega þar sem flutningurinn
sjálfur kostar 39 krónur auk þess
sem hann fær sent sms sem kostar
11 krónur. Símtal sem varir innan við
mínútu og felur í sér flutning í núm-
erið sem beðið er um kostar því 210
krónur.
Fyrirtaksrekstur
Þegar litið er yfir rekstrarreikning
Já hf. sést vel hversu þjónusta fyrir-
tækisins er arðbær. Sala á þjónustu
nam árið 2012 rúmum 1.084 millj-
ónum króna en kostnaðarverðið á
bak við hana var rúmar 563 milljón-
ir króna. Rekstrarkostnaðurinn var
svo tæpar 235 milljónir króna og og
eftir stóð hagnaður upp á rúmlega
307 milljónir sem eftir skattgreiðsl-
ur fór niður í 256 milljónir króna.
Með öðrum orðum: Fyrirtæki sem
sýnt hefur traustan hagnað í nokkur
ár sem endurspeglast aftur í háum
arðgreiðslum síðastliðin ár. Já hf.
hefur sannarlega malað gull. Með
úrskurði Póst- og fjarskiptastofnun-
ar er öðrum aðilum einnig gert kleift
að bjóða upp á sambærilega þjón-
ustu og má ætla að þar með ljúki
þessu mikla hagnaðarskeiði í sögu
Já hf. n
„Póst- og fjar-
skiptastofnun
hefur birt ákvörðun sem
binda mun enda á einok-
un Já upplýsingaveitna á
símanúmeraupplýsingum
einstaklinga.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is Vel rekið fyrirtæki
Já hf. hefur á síðustu
árum verið einstaklega
vel rekið og skilað
góðum hagnaði sem
leitt hefur til hárra
arðgreiðslna. Sigríður
Oddsdóttir er fram-
kvæmdastjóri og einn
af hluthöfum Já hf.
Flestir strikuðu
út Böðvar
528 útstrikanir í sveitarstjórnar-
kosningunum í Reykjanesbæ
Böðvar Jónsson, sem var í fram-
boði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Reykjanesbæ, var sá frambjóðandi
sem hvað oftast var strikaður út af
kjörseðlinum. Þeir voru 221 tals-
ins en samtals voru 468 útstrikan-
ir í sveitarstjórnarkosningunum.
Þetta kemur fram á vefsíðu
Spyr.is] sem hefur undanfarna
daga tekið saman útstrikanir á
landinu öllu.
Í svari frá kjörstjórn Reykjanes-
bæjar eru tekin fram nöfn þeirra
sem voru strikuð út. Athugið að
nöfn eru aðeins upptalin ef út-
strikanir telja þau nöfn í þremur
algengustu sætunum:
Á-listi, Frjálst afl.
Samtals 35 útstrikanir
n Elín Rós Bjarnadóttir 12
n Gunnar Örlygsson 7
n Davíð Viðarsson 6
B-listi, Framsóknarflokkur.
Samtals 7 útstrikanir
n Kristinn Jakobsson 7
D-listi, Sjálfstæðisflokkur.
Samtals 395 útstrikanir
n Böðvar Jónsson 221
n Björk Þorsteinsdóttir 41
n Steinunn Una Sigurðardóttir 39
S-listi, Samfylking og óháðir.
Samtals 26 útstrikanir
n Guðný Birna Guðmundsdóttir 9
n Friðjón Einarsson 7
n Dagný Steinsdóttir 3
Y-listi, Bein leið.
Samtals 32 útstrikanir
n Guðbrandur Einarsson 15
n Einar Magnússon 4
n Anna Lóa Ólafsdóttir 4
Þ-listi, Píratar.
Samtals 33 útstrikanir
n Trausti Björgvinsson 5
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Jarðvegsþjappa
og steinsög
Stærð plötu: 400 x 550 mm
Þyngd: 80 kg
Mótor: Honda bensín 5,5 hö
Miðflóttaafl á plötu: 1400 kg
Mesti hraði áfram: 26 m/mín
Víbratíðni: 93 Hz
(fleiri stærðir á lager)
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Oleo Mac 16”
Steinsög 5HP
149.900
m. VSK
PC 1442 Shatal
jarðvegsþjappa
210.900
m. VSK
Vagn fáanlegur
sér kr. 129.900
með vsk.
Segist bara hafa spurt
Kvartar undan umfjöllun DV um Framsóknarflokkinn
V
igdís Hauksdóttir, formaður
fjárlaganefndar, telur ómak-
lega að sér vegið í umfjöll-
un um Framsóknarflokk-
inn sem birtist í DV á þriðjudaginn.
„Enn og aftur heldur DV því fram
blákalt að ég vilji að hælisleitend-
ur beri ökklabönd. Það er óþolandi
að sitja undir þessu,“ skrifar Vigdís
á Facebook og bætir því við að hún
hafi einfaldlega spurt innanríkis-
ráðherra hvort hann hefði skoðað
þann möguleika að hælisleitendur
sem framið hefðu húsbrot hjá skipa-
félögunum væru látnir bera ökkla-
bönd. „Ég er ekki á nokkurn hátt að
lýsa yfir skoðun minni – heldur að
spyrja hvaða úrræði væru hugsan-
leg,“ skrifar Vigdís.
Með fyrirspurn sinni hinn 15.
febrúar í fyrra varpaði Vigdís fram
hugmyndum um rafrænt eftirlit
með hælisleitendum sem ekki
höfðu áður komið til tals á vett-
vangi stjórnmálanna. Fyrirspurnin
vakti talsverða athygli og af orðalagi
Vigdísar mátti ljóst vera að henni
þóttu stjórnvöld ekki taka nógu hart
á hælisleitendum sem brytu lög. Í
umfjöllun DV á þriðjudaginn seg-
ir orðrétt: „Vigdís Hauksdóttir var
gerð að formanni fjárlaganefndar í
umboði flokksins aðeins nokkrum
mánuðum eftir að hún hvatti til þess
að vissir hælisleitendur yrðu látn-
ir bera ökklabönd.“ Í ljósi þess að í
fyrirspurn hennar var ekki að finna
beina hvatningu hefði verið ná-
kvæmara að segja hana hafa „lagt
til“ að vissir hælisleitendur yrðu
látnir bera ökklabönd.
Líkt og fram kom í svari innanrík-
isráðuneytisins tíðkast það ekki að
ráðherra taki ákvarðanir um rafrænt
eftirlit, heldur einungis dómstólar
og Fangelsismálastofnun. Sem lög-
maður mátti Vigdís vita þetta, og
liggur því beint við að túlka spurn-
ingu hennar sem pólitíska yfirlýs-
ingu um harðari stefnu í hælisleit-
endamálum. n
johannp@dv.is
Umdeildur þingmaður Vigdís hefur
verið harðlega gagnrýnd vegna ummæla
um hælisleitendur. MYnD SIgtrYggUr ArI