Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Page 10
Helgarblað 13.–16. júní 201410 Fréttir
SyStur og dætur
voru „off limitS“
L
jóst er að árið 2012 glímdu
meðlimir Hells Angels við fjár-
hagserfiðleika að því er fram
kemur í fundargerðabókum
þeirra frá þessu ári. Á svipuð-
um tíma var mikil umræða um sam-
tökin í fjölmiðlum vegna handtöku á
Einari Inga Marteinssyni, formanni
þeirra, sem sat í gæsluvarðhaldi
bróðurpart ársins 2012 vegna gruns
um aðild að grófu líkamsárásarmáli í
Hafnarfirði. Einar var síðar sýknaður
á báðum dómstigum af öllum ásök-
unum. Á meðan hann sat í gæslu-
varðhaldi var hann settur af sem for-
maður samtakanna líkt og á. Mjög fór
að fjara undan samtökunum á þess-
um tíma og hefur lögreglan rætt um
að eftir að Einar hætti hafi myndast
„leiðtogakrísa“ innan samtakanna.
Í dagbókunum frá þessu ári kem-
ur fram að erfiðlega gekk að reyna
að koma upp húsnæði í Faxafeni í
Reykjavík og á sama tíma halda úti
stóru húsnæði við Gjáhellu í Hafnar-
firði. Af dagbókunum að dæma voru
vandræðin margþætt en leitað var til
meðlima til að reyna að leysa þau,
meðal annars með sektarviðurlögum
og auknum félagsgjöldum.
Klúbbhúsið
„Klúbbhúsið“, sem var félagsheim-
ili þeirra á Gjáhellu, virðist hafa verið
að sliga samtökin fjárhagslega. Hús-
næðið í Faxafeni átti að hýsa húð-
flúrunarstofu Hells Angels, House
of pain, sem og verslun líkt og DV
hefur áður greint frá. Hugmyndirn-
ar um Faxafenið voru stórhuga og
var unnið að stofnun House of pain
í langan tíma. Hins vegar gekk illa að
koma því á legg og komst það raun-
ar aldrei af teikniborðinu. Í fundar-
gerðunum er reglulega farið yfir fjár-
mál klúbbsins og þau skeggrædd.
Staðan á verslun þar sem hægt var
að kaupa merki klúbbsins, barsins á
Gjáhellu og fleiri atriði sem tengdust
rekstrinum voru iðulega tekin fyrir
og menn kallaðir til ábyrgðar ef þeir
voru ekki að standa sig gagnvart bók-
haldinu.
Í byrjun janúar 2012, hinn 5. jan-
úar, er rætt um að Einar Ingi Mart-
einsson, Einar Boom, þáverandi for-
maður samtakanna, hefði sett sig í
samband við viðskiptabanka þeirra
um lán á húsinu. „Klúbbhúsið Boom
er í sambandi við bankann um lán-
ið og ef það gengur þá verðum við
áfram hér en ef ekki þá getum við
farið í Faxafenið,“ segir í fundar-
gerðabókinni. Á sama fundi er tek-
in ákvörðun um „að fara með málið
með húsið alla leið og vera með plan
á því hvernig við háttum okkar hús-
næðismálum“.
Einar settur í varðhald
Nokkrum dögum síðar, í janúar 2012,
sat Einar Boom í gæsluvarðhaldi.
Hann var enn formaður samtakanna
en átti að vera sá sem fór með um-
leitanir vegna húsnæðisins. Í fundar-
gerðabókinni hinn 13. janúar 2012
kemur fram að bankinn hafði sagt
nei við vítisenglana og því var ljóst að
Gjáhella var ekki lengur framtíðar-
staðsetning þeirra. „Bankinn sagði
nei við því að láninu okkar með hús-
inu þannig að það er einhvað[sic] í
áttina að því að við gætum þurft að
flytja.“ Hinn 19. janúar tóku vítisengl-
ar ákvörðun um að skoða húsnæð-
ið í Faxafeni betur, en bjóða átti það
upp 13. febrúar 2012. Ákveðið var
að koma boðum til Einars í gegnum
lögfræðing hans í gæsluvarðhaldið.
„Óskar og Villi ætla að tala við Odd-
geir til að ræða við Boom og fá að
vita eitthvað og fá að vita um hús-
næðið niður frá,“ segir í fundargerða-
bókinni. Á sama fundi var ákveðið
að tveir vítisenglar yrðu viðstadd-
ir uppboðið á húsnæðinu í Faxafeni
ásamt þriðja aðila sem ætlaði að sjá
um uppboðið. Hinn 27. janúar sama
ár hafa meðlimir samband við Hilm-
ar Leifsson til að kanna fjármögnun á
húsnæðinu í Faxafeni, líkt og DV hef-
ur áður greint frá. Hvernig þær um-
leitanir fóru kemur ekki beint fram í
gögnunum.
„Kallinn“
Í febrúar 2012 ræða meðlimir við
„kallinn“ en þeir höfðu verið sér-
staklega sendir út af örkinni til þess.
Viðkomandi virðist hafa lagt það til
að samtökin létu lítið fyrir sér fara
á meðan að rannsókn lögreglu á
líkams árásinni fyrrnefndu færi fram.
Í bókinni segir: „Óskar og Ingvar
hittu kallinn í morgun og var hann
rosa jákvæður og nefndi að gíra okk-
ur niður og hætta þessum stórkarla-
leik. Það er spurning að hætta með
Faksafenið [sic] og leigja húsnæði
til að byrja með.“ Þetta er 16. febrú-
ar 2012. Þrátt fyrir þessa meldingu er
meðlimur sendur út af örkinni til að
leita að húsnæði fyrir húðflúrunar-
stofu. Á sama tíma kemur fram að
meðlimir eru að íhuga að breyta fé-
laginu í einkahlutafélag og byrja að
„rukka“. „Rætt var um að stofna ehf
og rukka í smá tíma og nota til að
kaupa hús,“ segir í fundargerðabók-
inni. Á sama tíma er rætt um skuld-
ir klúbbsins og hverjir skulda auk
þess að meðlimir eigi að hafa eyrun
opin varðandi fjármál Einars Boom.
„Allir þurfa að punkta niður hjá sér
ef heyrist um skuldir sem Boom á“,
segir í dagbókinni. Í byrjun mars
2012 er ljóst að meðlimirnir hafa
hálft ár til þess að finna sér nýtt hús-
næði. „Húsnæðið hér við höfum 6-9
mánuði þurfum að finna nýtt hús“,
segir í fundargerðabókinni.
Strangar reglur
Hinn 14. mars 2012 er ákveðið að fé-
lagsgjöldin verði 20 þúsund krónur
mánaðarlega. Þar af fara 5.000 krón-
ur til samtakanna erlendis, regn-
hlífasamtaka Hells Angels. Á sama
fundi voru settar strangar sektar-
reglur. Skyldumæting var á fundi
og voru viðurlög við skrópi þau að
„Konur dættur
systur, fyrrverandi
off limit nema með leifi
viðkomandi member.
n Hells Angels glímdu við fjárhagsvandræði n Var ráðlagt að hafa sig hæga árið 2012 af „kallinum“
Félagsheimilið Hér á Gjáhellu
í Hafnarfirði höfðu Hells Angels
aðsetur. Áður hefur komið fram
að húsnæði þeirra væri við
Móhellu en það var ekki rétt.
Þeir sáu um vöktun á húsnæði
við Móhellu, en félagsheimilið
sjálft var við Gjáhellu.
Einar Boom Einar Ingi Marteinsson var formaður Hells Angels til ársins 2012.