Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Side 12
Helgarblað 13.–16. júní 201412 Fréttir
S
amkeppniseftirlitið veitti
Konunglega kvikmynda
félaginu og fjölmiðla
fyrirtækinu
365 ákveðna
undanþágu til að
eiga í samstarfi á
meðan athug
un stofn
unarinnar
á samruna
fyrirtækja
stend
ur yfir.
Undan
þágan
var veitt
í byrj
un mánaðarins. Stofnunin hefur
tekið sér 120 daga til að skoða sam
runa fyrirtækjanna tveggja. Sigmar
Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
og einn af eigendum Konunglega
kvikmyndafélagsins, hefur gef
ið það út að dráttur á heimild frá
Samkeppniseftirlitinu geti
leitt til greiðslustöðvunar
fyrirtækisins.
Geta varið hagsmuni
félagsins
„Samruninn er til
skoðunar,“ segir Páll
Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins.
„Það var veitt takmörkuð
undanþága til ákveðinna
athafna. Það er bann við að
framkvæma samrunann á
meðan hann er til athug
unar hjá okkur. Við getum
hins vegar, við sérstakar að
stæður, veitt undanþágu til
að framkvæma samruna
í heild eða að hluta.
Og það var veitt svona
ákveðin undanþága.“
Spurður um hvað
felist í þessari undan
þágu segir Páll Gunnar að í henni
felist að forsvarsmenn fyrirtækj
anna geti gripið til ákveðinna að
gerða til að „verja hagsmuni félags
ins“. DV hefur ekki heimild fyrir því
hvað felst frekar í undanþágunni.
Greiddu starfsmönnum laun
DV greindi frá því í síðustu viku
að Konunglega kvikmyndafélag
ið hefði náð að standa í skilum við
starfsmenn sína og greiða þeim
laun um mánaðamótin. Óvissa var
um þetta um tíma eftir að greint
var frá yfirtöku fjölmiðlafyrir
tækisins 365 á fyrirtækinu í maí.
Samkeppnis eftirlitið kom svo í veg
fyrir yfirtökuna með skoðun sinni á
samstarfinu.
Í samtali við DV í síðustu viku
sagði Ari Edwald, forstjóri 365, að
Samkeppniseftirlitið hefði tekið vel
í að veita fyrirtækjunum ákveðna
undanþágu til starfsemi á með
an samruninn væri í skoðun.
„Þeir hafa tekið vel í að við gerum
ákveðna hluti meðan samstarfið er
til skoðunar,“ sagði Ari.
Í sömu frétt sagði Sigmar Vil
hjálmsson frá því að þeim mun
lengur sem drægist að samþykkja
samruna fyrirtækjanna tveggja
þeim mun meiri líkur væru á því að
Konunglega kvikmyndafélagið færi
í greiðslustöðvun. Þetta þýddi svo
aftur að erfiðara væri fyrir félagið að
standa í skilum við starfsmenn sína.
Stutt ævintýri
Konunglega kvikmyndafélagið opn
aði tvær sjónvarpsstöðvar í mars
síðastliðinn en í lok apríl var útséð
með að ekki væri rekstrargrund
völlur fyrir þeim. Stöðvarnar hétu
Bravó og Mikligarður. Í kjölfarið
greindi Sigmar Vilhjálmsson frá því
að í gang færi tilraun til endurfjár
mögnunar með leit að nýju hlutafé
hjá nýjum fjárfestum.
Tæpum þremur vikum síðar
var greint frá kaupum 365 á fyrir
tækinu en kaupverðið var meðal
annars sagt vera greitt með yfirtöku
skulda upp á 40 til 60 milljónir sem
og greiðslum til hluthafa. Heildar
kaupverðið sjálft var hins vegar
aldrei gefið upp.
Samkeppniseftirlitið kom svo í
veg fyrir samrunann, að minnsta
kosti tímabundið, með athugun
sinni á honum sem stofnunin gef
ur sér 120 daga til að framkvæma. n
n Samkeppniseftirlitið skoðar samruna n Stóðu í skilum um mánaðamótin
365 og Konunglega
fengu undanþágu
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Óttast greiðslustöðvun
Sigmar Vilhjálmsson óttast
að Konunglega kvikmynda-
félagið fari í greiðslustöðvun
dragist samruninn við 365.
Fyrirtækin fengu undanþágu
vegna samstarfs síns frá
Samkeppniseftirlitinu.
Málið í bið Samruni 365, fjölmiðlafyrirtækis sem
yfirleitt er tengt við Jón Ásgeir Jóhannesson, og
Konunglega kvikmyndafélagsins er í biðstöðu þótt
Samkeppniseftirlitið hafi veitt ákveðna undanþágu
til samstarfs. Mynd Rakel ÓSk SIGuRðaRdÓttIR
Fjölgar þrátt fyrir verkföll
Búist við verulegri fjölgun ferðamanna þrátt fyrir verkföll
A
lls 66.700 erlendir ferða
menn fóru um Keflavíkur
flugvöll í maímánuði sem
svarar til 24,4 prósenta
fjölgunar milli ára. Grein
ing Íslandsbanka fjallar um mál
ið á vef sínum og þar er bent á að
miðað við tölur Isavia yfir úthlut
uð stæði á Keflavíkurflugvelli hefði
mátt búast við 31 prósents fjölgun.
„Leiða má líkum að því að mismun
inn þarna á milli megi að mestu
rekja til fækkunar ferða Icelandair
samhliða verkfalli flugmanna. Þrátt
fyrir þetta teljum við ekki ástæðu til
að breyta spá okkar um fjölda er
lendra ferðamanna til landsins að
svo stöddu og gerum því sem fyrr
ráð fyrir að þeir verði í það minnsta
um 20% fleiri í ár en í fyrra,“ segir í
umfjöllun Greiningar. Þar segir að
forsendur þessarar spár kunni þó
að bresta verði af frekari verkföll
um innan flugstéttarinnar á árinu.
Þess má geta að flugvirkjar hafa
boðað verkfall í sólarhring hinn 16.
júní og ótímabundið verkfall frá 19.
júní. Flugmenn sömdu svo aftur að
eins til 30. september næstkomandi
og þurfa því að semja aftur áður
en árið er liðið. „Staða Icelanda
ir þegar kemur að kjarasamnings
viðræðum er ekki eftirsóknarverð.
Bróðurhluti launakostnaðar félags
ins er í íslenskum krónum en staðið
hefur á tekjuvexti í myntinni enda
hefur verið hægur vöxtur í utanför
um Íslendinga síðustu ár. Á sama
tíma hefur krónan verið að styrkjast
og hefur hún t.a.m. ekki verið sterk
ari á fyrstu fimm mánuðum ársins
frá því fyrir hrun. Saman leiðir þetta
að öðru óbreyttu til þess að hlutfall
launakostnaðar í útgjöldum félags
ins eykst.“ n
einar@dv.is
keflavíkurflugvöllur Verkföll hafa sett strik í reikninginn hvað varðar fjölgun ferða-
manna. Búist er við því að þeim fjölgi um 20 prósent á þessu ári miðað við árið 2013. Mynd aMG
Fasteignaverð
hækkar og
hækkar
Verð á fasteignum hefur hækk
að mikið að undanförnu og við
skipti eru enn að aukast. Um þetta
er fjallað í Hagspá Landsbankans
en þar segir að framboð á nýju
húsnæði sé lítið og því fóðri meiri
eftir spurn verðhækkanir. „Aukn
ing nýrra íbúðalána bankanna
hefur samt farið minnkandi sam
kvæmt nýjustu tölum og virðast
ný íbúðalán skipta æ minna máli
við fjármögnun fasteignaviðskipta.
Þar kann aukin þátttaka fyrirtækja,
fjárfestingarsjóða og efnameiri
einstaklinga að skipta máli,“ segir
í Hagsjá og bent á að greinilegt sé
að peningar sem koma erlendis frá
í gegnum fjárfestingarleið Seðla
bankans hafi áhrif á markaðinn.
Þá er bent á að leiguverð hafi fylgt
verði húsnæðis nokkuð náið síð
ustu ár. Að lokum er tekið fram að
hagfræðideild Landsbankans spái
áfram mikilli hækkun húsnæðis
verðs, eða um níu prósent á þessu
ári, 7,5 prósent árið 2015 og 7 pró
sent árið 2016.
Samstarf
um rafrænar
sjúkraskrár
Heilbrigðisráðherrar Íslands, Fær
eyja og Grænlands undirrituðu
á þriðjudag samkomulag sem
kveður á um formlegt samstarf
landanna þriggja á sviði heil
brigðismála.
Ráðherrarnir
munu fram
vegis hittast
árlega þar sem
fjallað verður
um helstu mál
sem þjóðirnar
vilja vinna að
sameiginlega.
Þetta kemur
fram á vef vel
ferðarráðuneytisins. Að undirritun
lokinni bauð Kristján Þór Júlíus
son heilbrigðisráðherra samráð
herrum sínum, Karsten Hansen
frá Færeyjum og Sten Lynge frá
Grænlandi, til kvöldverðar í Ráð
herrabústaðnum við Tjarnar
götu. „Löndin hafa um langt
skeið átt töluvert samstarf á sviði
heilbrigðis mála og heilbrigðis
þjónustu en áhersla hefur verið
lögð á að efla það enn frekar í um
ræðum á vettvangi Vestnorræna
ráðsins. Meðal annars hefur verið
horft til samstarfs um menntun
heilbrigðisstarfsfólks, sameiginleg
innkaup á lyfjum og tækjabúnaði,
rafrænar sjúkraskrár og fjarlækn
ingar svo eitthvað sé nefnt,“ segir
í tilkynningunni. Þá segir að með
samkomulaginu sem undirritað
var sé samstarfi landanna á sviði
heilbrigðismála búin formleg um
gjörð sem gerir ráð fyrir árlegum
fundum heilbrigðisráðherranna.
Gerð verður áætlun um samstarf
landanna þriggja þar sem tilgreind
verða mikilvægustu verkefnin sem
löndin ætla að vinna að sameig
inlega og þeim settur tíma rammi.
Samstarfslöndin munu leiða sam
starfið til skiptis og kemur það í
hlut Íslands að fara með for
mennskuna fyrsta árið. Í því felst
meðal annars að vinna drög að
samstarfsáætlun sem fjallað verð
ur um á fyrsta samstarfsfundi ráð
herranna samkvæmt samkomu
laginu en hann verður haldinn
á Grænlandi í júní á næsta ári.
Samkomulagið tekur gildi 1. júlí
næstkomandi.
kristján Þór
Júlíusson