Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Page 16
16 Fréttir Helgarblað 13.–16. júní 2014
Sjóðurinn gefur ekki upp nafn kaupanda
Ó
nafngreindur fjárfestir, eða
fjárfestar, sem fékk samþykkt
kauptilboð í 154 íbúðir í eigu
Íbúðalánasjóðs í apríl síðast-
liðinn vinnur enn þá að fjármögnun
kaupanna. Þetta kemur fram í svari frá
Íbúðalánasjóði við fyrirspurn DV um
stöðuna á viðskiptunum. Ekki er hægt
að fá uppgefið hvaða fjárfesti, eða fjár-
festa, um ræðir. Íbúðirnar eru með-
al annars á Suðurnesjum og Austur-
landi.
Íbúðalánasjóður er ríkisstofnun
sem veitir lán til íbúðakaupa og hef-
ur sjóðurinn eignast umtalsvert magn
íbúða í kjölfar hrunsins árið 2008.
Í apríl 2014 átti Íbúðalánasjóður til
dæmis 2.121 íbúð víða um landið.
Kaupandinn er því að bjóða í rúmlega
7 prósent allra íbúðaeigna sjóðsins
sem er umtalsvert magn.
Fjallað var um viðskiptin í mánað-
arlegri skýrslu Íbúðalánasjóðs sem
kom út í apríl en þar sagði meðal
annars: „Í apríl var gengið frá viljayfir-
lýsingu um sölu eða kauptilboð sam-
þykkt í 201 eign, þar af 154 eignir til
sama aðila. Tilboðshafar vinna nú að
fjármögnun.“
Staðan á viðskiptunum hefur ekki
breyst mikið síðan þetta gerðist; kaup-
andinn vinnur enn þá að fjármögn-
uninni samkvæmt svari frá Íbúða-
lánasjóði „Þegar kaupsamningum
er þinglýst verða nöfn kaupenda og
söluverð opinberar upplýsingar, ekki
fyrr. Kauptilboð var gert í 107 íbúðir
í apríl með fyrirvara um fjármögnun
og var því tilboði tekið. Þar sem ekki
hefur verið skrifað undir kaupsamn-
ing, né kaupsamningi þinglýst er ekki
tímabært að gefa nánari upplýsingar
um söluferlið og söluna.“
Líkt og fram kemur í svarinu hér að
ofan hefur Íbúðalánasjóður ekki gefið
upp hver hinn áhugasami kaupandi
er né greint frá ætluðu kaupverði. DV
hefur heimild fyrir því að kaupverðið
sé 1,9 milljarðar króna og ætlaður
kaupandi hafi gert tilboð í þær sem
var hafnað en Íbúðalánasjóður hafi
svo ákveðið að taka tilboðinu eftir að
hafa hafnað því í fyrstu tilraun.
Tilboðið fór ekki í gegnum fast-
eignasala, líkt og almennt gildir um
eignasölu Íbúðalánasjóðs, heldur
hafði kaupandinn beint samband við
Íbúðalánasjóð sem stríðir gegn verk-
lagi sjóðsins. Með því að nota ekki
fasteignasala sparar Íbúðalánasjóður
sér söluþóknun í viðskiptunum sem
getur numið á milli einu til tveimur
prósentum.
Íbúðalánasjóður reynir nú að selja
margar af þeim eignum sem sjóð-
urinn á. Í apríl voru rúmlega 1.000
íbúðir í sölumeðferð en samtals hefur
Íbúðalánasjóður selt 1.550 íbúðir frá
árinu 2008. Aukinn kraftur hefur verið
settur í sölu fasteigna Íbúðalánasjóðs
en fyrstu fjóra mánuði ársins í fyrra
seldi sjóðurinn 88 íbúðir en 675 íbúðir
á sama fjögurra mánaða tímabili í ár.
Af 1.550 íbúðum sem seldar hafa ver-
ið frá hruninu voru 675 þeirra seldar á
fjögurra mánaða tímabili á þessu ári.
Íbúðalánasjóður hefur glímt við
það vandamál að sumir kaupendur
telja sig geta keypt íbúðir sjóðsins fyrir
lítið, fremur en eðlilegt markaðsverð.
Fasteignaverð í Reykjavík hefur farið
hækkandi eftir að hafa hrunið í kjölfar
hrunsins og er nú keppst um íbúðir í
miðbæ Reykjavíkur og nærliggjandi
hverfum. Sala Íbúðalánasjóðs á eign-
um núna hefur því aukist eftir að sjóð-
urinn hefur haldið að sér höndum í
sölu eigna. n ingi@dv.is
n Íbúðalánasjóður samdi beint um 154 íbúðir n Kaupverð 1,9 milljarðar króna
Unnið að fjármögnun Sigurður Erlingsson er
framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs.
Áttatíu milljóna króna
fjárdráttur á Selfossi
Ásgeir Vilhjálmsson sakaður um að hafa millifært milljónir á eigin bankareikning
F
yrirtaka í máli sérstaks sak-
sóknara gegn Ásgeiri Vil-
hjálmssyni fór fram á fimmtu-
dag. Hann er sakaður um að
hafa í starfi sínu sem fram-
kvæmdastjóri byggingafyrirtækisins
ÁK – hús dregið að sér fé í heildina að
virði nærri áttatíu milljónum króna. Í
samtali við DV segir Ásgeir að þetta
leggi „líf hans í rúst“.
Samkvæmt ákæru felast meint
brot Ásgeirs fyrst og fremst í því að
hafa millifært milljónir á sinn eigin
bankareikning ásamt því að greiða
reikninga vegna byggingar tveggja
húsa. Meint brot hans eiga að hafa
átt sér stað á árunum 2004 til 2005.
Ásgeir var helmingseigandi ÁK –
húsa á móti Kristjáni K. Péturssyni.
Í samtali við DV segist Kristján ekki
hafa riðið feitum hesti frá því sam-
starfi.
Byggði hús
Ásgeir er sakaður um að hafa í alls
níutíu og tvö skipti greitt reikninga
út af bankareikningi í eigu ÁK –
húsa, að virði rúmlega þrjátíu millj-
óna, vegna byggingar húss við Kálfa-
hóla á Selfossi sem var í hans eigu.
Í ákæru gegn Ásgeiri er hver og ein
greiðsla vegna byggingar einbýl-
ishússins sundurliðuð og af þeim
að dæma virðist húsið hafa verið
reist að mestu fyrir fé félagsins. Háar
greiðslur til verkfræðistofu, glerverk-
smiðju, verktaka, BYKO, pípu- og
raflagningaþjónustu eru tíundað-
ar í ákærunni. Langmest fé rennur
þó til byggingaþjónustunnar Smíð-
andi ehf. Auk þessa er hann sakaður
um að hafa greitt reikninga að virði
tæplega einni milljón króna af sama
reikningi vegna iðnaðarhúsnæðis á
Selfossi. Ásgeir bjó sjálfur í einbýlis-
húsinu við Kálfahóla í það minnsta
fram til ársins 2010 en þá var hann
í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur
til að greiða vangoldna skuld vegna
klæðningar sólstofu í húsinu. Að því
er DV kemst næst býr hann ekki þar
lengur.
Óskýrðar millifærslur
Ásgeir er sömuleiðis sakaður um
að hafa á sama tveggja ára tímabili
millifært fé inn á sinn persónulega
bankareikning eða einfaldlega tek-
ið út reiðufé af reikningi ÁK – húsa.
Samkvæmt ákærunni virðist hann
hafa farið hægt í sakirnar árið 2004
fram til jóla það sama ár en þá fara
millifærslur upp á slétta milljón
krónur að verða reglulegar. Til marks
um það urðu í marsmánuði árið 2005
fjórar milljón króna millifærslur. Í
heildina millifærði hann 23 milljón-
ir króna. Samkvæmt ákæru voru þær
óútskýrðar bæði á bankareikningi
sem og í bókhaldi félagsins.
Gaf upp sex milljónir
Auk óskýrðu millifærslnanna er Ás-
geir sagður hafa lagt inn á sig sjálf-
an tuttugu og átta milljónir króna
á þessum tveimur árum sem voru
skýrð sem laun. Samkvæmt ákæru
var þó uppgefið reiknað endurgjald
Ásgeirs samkvæmt skattframtali á
þessum tveimur tekjuárum einung-
is ríflega sex milljónir króna. Var því
meintur fjárdráttur, sem skýrður var
sem laun, á þessum tveimur árum
í heildina rúmlega tuttugu og tvær
milljónir króna.
Er DV sóttist eftir viðbrögðum Ás-
geirs vegna málsins vildi hann sem
minnst tjá sig um málið. „Nei, ég vil
ekki tjá mig um þetta að svo stöddu.
Það er náttúrlega heilmikið í þessu
sem þarf að fara yfir. Þetta leggur allt
mitt líf í rúst,“ segir hann.
Gott sem launalaus
Kristján, sem var helmingseigandi
ÁK –húsa á móti Ásgeiri, segir að
hann hafi ekki komið vel út úr sam-
starfinu við hann. „Ég var svo gott
sem launalaus á þessu tímabili sem
við störfuðum saman miðað við tí-
mann sem ég vann. Það var ekkert
öðruvísi. Maður var ekki að safna
neinum aur,“ segir hann. Segist hann
hafa orðið var við eitthvað óeðlilegt
en hafi þó viljað klára þau verkefni
sem fyrir lágu. „Svo var alltaf ein-
tómur djöfulsins feluleikur. Það var
nú löngu sjálfhætt í þessu samstarfi
áður en þetta komst upp. Þetta var
eins og það er. Maður hlustar bara
aldrei á það sem er sagt við mann,
það er að segja að fara ekki í samstarf
við hann. Maður ætlaði bara að gera
góða hluti þarna í framkvæmdum og
tók sem hverri annarri vinnu.“ n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Kálfhólar Hér má sjá umrætt hús á
Selfossi sem Ásgeir er sakaður um að
hafa greitt fyrir að miklu leyti með sjóði
félagsins ÁK – hús. Tekið skal fram að
hann býr annars staðar í dag.
„Þetta leggur
allt mitt líf í rúst
„Svo var alltaf ein-
tómur djöfulsins
feluleikur.
Ákæra Sérstakur saksóknari hefur ákært
Ásgeir fyrir tugmilljóna fjárdrátt.