Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Qupperneq 18
Helgarblað 13.–16. júní 201418 Fréttir
„Það er þörf fyrir
frjálslynt hægriafl“
n Rasistar ekki velkomnir í Viðreisn n Björt framtíð dugar ekki óánægðum sjálfstæðismönnum
U
m 170 manns mættu á undir
búningsfund Viðreisnar,
nýs stjórnmálaflokks, sem
haldinn var á Grand Hótel á
miðvikudaginn. „Á sólskins
degi í miðjum júní kemur stór hóp
ur fólks saman til þess að taka fyrstu
skref á leið sem gæti orðið löng og
ströng. Við ætlum að leggja okkar af
mörkum,“ sagði Benedikt Jóhannes
son, forsprakki hópsins, í ávarpi sínu
þegar hann bauð fundarmenn vel
komna.
Benedikt er framkvæmdastjóri
Talnakönnunar og fyrrverandi for
maður Félags sjáfstæðra Evrópu
manna. Honum blöskraði þegar
stjórnarliðar kynntu áform sín um
að slíta viðræðunum við Evrópusam
bandið án þess að efna til þjóðarat
kvæðagreiðslu líkt og lofað var fyrir
kosningar. Undanfarna mánuði hefur
hann, ásamt öðrum, unnið að stofn
un nýs stjórnmálaflokks sem mun
leggja áherslu á frjálslyndi, viðskipta
frelsi og Evrópusamstarf.
Augljós eftirspurn
Ýmsir þjóðþekktir einstaklingar létu
sjá sig á fundinum, meðal annars há
skólafólk og áhrifamenn úr viðskipta
lífinu. DV náði tali af Sveini Andra
Sveinssyni hæstaréttarlögmanni
þar sem hann beið í röð fyrir utan
fundarsalinn. „Mér sýnist nú á öllu að
það sé eftirspurn eftir nýjum flokki,“
sagði hann og bætti við: „Það er borð
leggjandi að pólitíska landslagið er
þannig að það er þörf fyrir frjálslynt
hægriafl.“
Lögmaðurinn telur að undanfarin
ár hafi Sjálfstæðisflokkurinn smám
saman farið út af sporinu. Ýmis
legt fleira en afstaðan í Evrópumál
um geti greint nýja hægriflokkinn
frá þeim gamla. „Svona stjórnmála
flokkur gæti tekið upp mörg af þeim
frjálslyndu stefnumálum Sjálfstæðis
flokksins sem birtast í landsfundar
ályktunum en er aldrei hrint í fram
kvæmd. Frelsi í viðskiptum, afnám
tolla, afnám hafta í innflutningi neyt
endaafurða og svo framvegis. Þetta
eru mál sem eru sett í landsfundar
ályktanir til hátíðabrigða en koma
aldrei til framkvæmda.“
Sveinn benti á að þegar
Sjálfstæðis flokkurinn var krafinn um
efndir á kosningaloforðum sínum um
þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópu
sambandsmálið vísaði flokksforystan
í landsfundarályktanir til að réttlæta
slit á viðræðunum. „En landsfund eft
ir landsfund hefur til dæmis staðið að
það eigi að leggja niður ÁTVR án þess
að því sé nokkurn tímann fylgt eft
ir þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi átt
fjármálaráðherra eftir fjármálaráð
herra.“
Vilhjálmur Egilsson, rektor á Bif
röst og fyrrverandi formaður Samtaka
atvinnulífsins, rabbaði stuttlega við
blaðamann. Aðspurður hvers vegna
hann teldi þörf á nýjum hægriflokki
sagði hann: „Ég hef áhuga á Evrópu
málunum og vil að það komist einhver
niðurstaða í þau. Annars á það eftir að
koma í ljós fyrir hvaða málefnum þessi
flokkur mun berjast að öðru leyti.“
Eins og Björt framtíð
Þótt Viðreisn sé enn sem komið er að
miklu leyti óskrifað blað er ljóst hver
grunnstefin í stefnu flokksins verða.
Á vefsíðu Viðreisnar kemur meðal
annars fram að stefnt sé að stöðugu
efnahagslífi, fjölbreyttum atvinnu
tækifærum, grósku í menningarlífi,
hallalausum fjárlögum og verðmæta
sköpun með hugviti og skynsamlegri
nýtingu auðlinda. Þá þurfi að skil
greina rétt allra til menntunar og heil
brigðisþjónustu, ljúka samningavið
ræðum við Evrópusambandið, fella
niður gjaldeyrishöft og samkeppn
ishindranir og tryggja frelsi, jafnrétti,
lýðræði og jafnan atkvæðisrétt.
Öll ofangreind markmið eru í takt
við stefnu Bjartrar framtíðar sem
leggur áherslu á frjálslyndi, opið
markaðs og samkeppnisumhverfi
á Íslandi, lok aðildarviðræðna við
Evrópusambandið og fjölbreytta at
vinnuhætti.
Eftir að Benedikt hafði flutt ávarp
sitt hófst stefnumótunarvinna þar sem
gestum var skipt á borð eftir mála
flokkum. Þá gafst blaðamanni tæki
færi til að ræða stuttlega við Benedikt.
Ekki kynnt sér Bjarta framtíð
Aðspurður hver munurinn á Við
reisninni og Bjartri framtíð væri svar
aði Benedikt: „Ég verð að játa að ég
þekki ekki Bjarta framtíð nægilega vel,
en ég þekki hins vegar okkar stefnu.
Við leggjum áherslu á einstaklinginn,
hans framtak og að hér sé ekki nein
mismunun af neinu tagi. Hins vegar
sé ég að þau hafa unnið margt ágæt
lega, til dæmis hvað varðar umræðu
hefðina, en þar eru þau málefnalegri
en margir. Hins vegar finnst mér að
stundum mættu þau setja málefn
in skýrar fram þannig að ég, sem hef
mikinn áhuga á stjórnmálum, geti
áttað mig betur á þeim.“
Í ljósi þess að Björt framtíð skil
greinir sig sem frjálslyndan og
Evrópusinnaðan miðjuflokk, hvers
vegna vinnur Viðreisn ekki með
Bjartri framtíð? „Það getur vel verið
að við vinnum með þeim. Við eigum
bara eftir að sjá hvernig málin þró
ast.“ En kom aldrei til álita hjá hópn
um sem stendur að baki Viðreisninni
að ganga í Bjarta framtíð og vinna
að sínum málum þar? „Ekki hjá mér
að minnsta kosti,“ svaraði Benedikt
og bætti því við að honum sýndust
áherslur Bjartrar framtíðar vera aðrar
en sínar. Björt framtíð sé frjálslyndur
miðjuflokkur en Viðreisn verði líklega
frekar frjálslyndur hægriflokkur.
Ekkert sameiginlegt með Breivik
Benedikt sagðist þó telja flokkunina í
hægri og vinstri villandi. „Ég hef ekki
alveg trú á þessari röðun í hægri og
vinstri, ég held að að mörgu leyti eigi
hún ekki við. Ég á til dæmis ekkert
sameiginlegt með manni sem er kall
aður öfgahægrimaður, heitir Breivik
og býr í Noregi, ekki nokkurn skap
aðan hlut. En frjálslyndi lýsir mínum
skoðunum vel,“ sagði hann og benti
á að oftast er málum betur fyrir kom
ið hjá einstaklingum en ríkinu. „Ríkið
er hins vegar nauðsynlegt því einstak
lingar hafa ekki kraft til alls. Suma
hluti munum við eðli málsins sam
kvæmt alltaf gera saman.“
En hvað finnst stofnanda Við
reisnar um skattamál, á ríkisvaldið að
jafna kjör fólks í gegnum skattkerfið
með stighækkandi skattheimtu? „Ég
held að betra sé að menn líti á skatt
kerfið sem tekjustofn. Ég held að það
leiði til meiri afraksturs hjá ríkinu.“
Rasistar ekki velkomnir
Benedikt sagði sig fyrst og fremst úr
Sjálfstæðisflokknum vegna áform
anna um að slíta aðildarviðræðun
um við Evrópusambandið án undan
genginnar þjóðaratkvæðagreiðslu.
Fleira spilaði þó inn í og hafði Bene
dikt verið óánægður með ýmis
legt innan flokksins. „Svo er það til
finningin sem fólk hefur, að það séu
menn sem stjórni á bak við tjöldin.
Hvort sem það er nú rétt eða ekki, þá
er það ekki hollt fyrir neinn flokk.“
Í ljósi þeirrar umræðu sem hef
ur skapast um rasisma og þjóðernis
hyggju í kringum borgarstjórnar
kosningarnar fannst blaðamanni rétt
að spyrja Benedikt um afstöðu hans
í þeim efnum. Mun Viðreisnin loka
dyrunum fyrir hörðum þjóðernissinn
um og þeim sem ala á andúð gagnvart
útlendingum? „Já, ég er mjög á móti
slíku og tel slíkt afar ógeðfellt.“ Get
urðu hugsað þér að hvetja slíkt fólk
hér og nú til að halda sig utan við mál
efnastarf Viðreisnar? „Já. Þetta er ekki
öfgahægriflokkur að neinu leyti. Þetta
er frjálslyndur flokkur fyrir umburðar
lynt fólk,“ sagði Benedikt að lokum. n
„Ég verð að játa að
ég þekki ekki Bjarta
framtíð nægilega vel
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
Rabbað Benedikt
Jóhannesson spjallar
við Vilhjálm Egilsson.
Ýmsir áhrifamenn úr
viðskiptalífinu létu sjá
sig. MyndiR SigtRygguR ARi
Ávarp Benedikt Jóhannesson, forsprakki Viðreisnar, flutti ávarp áður en málefnastarf hófst.
Fólk streymdi að Um 170 manns létu sjá sig á undirbúningsfundi Viðreisnar.