Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Qupperneq 20
Helgarblað 13.–16. júní 201420 Fréttir Nærmynd
n Sveinbjörg Birna sögð hörkudugleg og gáfuð n Starfaði við fast-
eignafjárfestingar í Lúxemborg n Hlýtur eldskírn í borgarstjórn
Umdeildasta
S
tjórnmálakonan Svein-
björg Birna Sveinbjörns-
dóttir spratt fram á sjón-
arsviðið í aðdraganda
sveitarstjórnarkosninga
í vor þegar ákveðið var að hún
ætti að leiða lista Framsóknar í
Reykjavík. Sveinbjörg, sem er lög-
fræðingur, vakti mikla athygli með
ummælum sínum um mosku og
þvinguð hjónabönd og varð nán-
ast á einni nóttu einn umdeildasti
stjórnmálamaður landsins. Hún
hefur verið varaþingmaður Fram-
sóknar í kjördæmi Reykjavíkur
suður frá síðustu alþingiskosning-
um. Hún hefur hins vegar ekki ver-
ið kölluð á þing og hún hefur því
litla reynslu af pólitík. Fyrrverandi
samstarfsfólk Sveinbjargar og fjöl-
skylda lýsa henni með mjög svip-
uðum hætti. Hún er hörkudugleg,
gáfuð og á auðvelt með samskipti
við fólk. Það kom fáum á óvart að
sjá hana á vettvangi stjórnmála.
Var flugfreyja hjá Atlanta
Ferilskrá Sveinbjargar er nokk-
uð tilkomumikil en þar fer mik-
ið fyrir störfum tengdum lögfræði
og skattamálum. Samkvæmt fer-
ilskrá hennar á samfélagsmiðlin-
um LinkedIn útskrifaðist hún úr
Álftamýrarskóla árið 1989 og hélt
þaðan í Verslunarskóla Íslands þar
sem hún lauk stúdentsprófi á fimm
árum, en í eitt ár var hún skipt-
inemi í Nantes í Frakklandi. Árið
1995 hóf hún svo laganám við Há-
skóla Íslands sem hún lauk árið
2001.
Með námi starfaði hún sem
flugfreyja hjá Air Atlanta, frá ár-
unum 1995–1998. Hún hætti hins
vegar þar þegar hún eignaðist elsta
barn sitt og vann ekki með námi í
tvö ár. Fyrrverandi samstarfskonur
hennar þar bera henni vel söguna.
„Það var gaman að tala við hana.
Hún var alltaf brosandi, þægileg
og viðmótsblíð. Þetta er greinilega
kona sem veit hvað hún vill, þó ég
sé ekki sammála öllu sem hún ger-
ir í dag, þá er þetta flott kona. Það
kom mér ekki á óvart að sjá hana
í pólitík, maður sér það á sumum
að þeir vita hvað þeir eru að segja
og geta staðið fyrir máli sínu,“ seg-
ir kona sem starfaði sem flugfreyja
hjá Air Atlanta með henni.
Svipaða sögu segir önnur fyrr-
verandi samstarfskona hennar hjá
Air Atlanta. „Við þekktumst ekki
persónulega en það var mjög gam-
an að vinna með henni, hún var
skemmtileg samstarfskona. Hún
var einlæg og það var nóg um að
vera hjá henni. Hún var klár og
opin, átti auðvelt með að umgang-
ast fólk og segja það sem henni
fannst. Samt á diplómatískan hátt,
svo það kom mér lítið á óvart að sjá
hana í stjórnmálum.“
Fjárfesti í Panama
Hún fór síðar að vinna hjá Deloitte
sem ráðgjafi á sviði lögfræði og
skattamála og þar var hún í fjögur
ár. Frá árinu 2002 hefur hún ver-
ið löggiltur fasteignasali og einnig
fyrirtækja- og skipasali, samkvæmt
heimasíðu Lögmanna í Hamra-
borg. Eftir að hún lauk störfum hjá
Deloitte árið 2004 starfaði hún sem
sjálfstæður lögmaður í þrjú ár. Árið
2007 söðlaði hún hins vegar um og
fluttist til Lúxemborgar þar sem
hún var verkefnastjóri á fasteigna-
fjárfestingarsviði útibús Aska Capi-
tal í smáríkinu.
Samkvæmt LinkedIn-síðu
Sveinbjargar vann hún þó aðeins í
sex mánuði þar, áður en hún færði
sig til Investum s.á.r.l., sem einnig
var í Lúxemborg. Fyrirtækið sér-
hæfði sig í fjárfestingum í fasteign-
um, en Sveinbjörg hefur mikinn
áhuga á slíku eins og ferilskrá-
in hennar ber með sér. Meðfram
starfi sínu hjá Investum starfaði
hún fyrir hóp fjárfesta sem kallað-
ist „Investments Panama“ og átti
fasteign þar í landi. Vinnan var
ekki borguð en hún var sjálf á með-
al fjárfesta.
Frjó og drífandi í hugsun
Sveinbjörg missti hins vegar
vinnuna hjá Investum og var í heilt
ár atvinnulaus í Lúxemborg, ef frá
er talin staða sem hún gegndi hjá
EFTA-dómstólnum. Þar fékk hún
stöðu lærlings og fékk lágmarks-
laun fyrir. Á endanum sneri hún þó
aftur heim til Íslands og hóf störf
á skattasviði Ernst & Young. Fyrr-
verandi samstarfsmaður henn-
ar þar lýsir henni sem kraftmikilli
konu. „Það er mjög margt um hana
að segja, hún er rosalega drífandi
og frjó í hugsun. Hún getur ver-
ið með margt á prjónunum í einu
og sinnt mörgum stórum verkefn-
um. Ferilskráin hennar er þrælgóð
og einhverra hluta vegna er það
þannig að hún hefur náð að koma
sér rosalega vel áfram,“ segir sam-
starfsmaðurinn. Málflutningur
hennar í aðdraganda sveitarstjórn-
arkosninga kom honum á óvart.
„Ég held að þetta séu orð sem
hún hefur látið falla í fljótfærni og
ég held að meiningin á bak við séu
ekki trúarfordómar. Hún er ekki
týpan í að vera með andúð gagn-
vart einhverjum trúarhópum, ég
held að það hafi verið uppsafn-
að klúður einhvern veginn,“ segir
hann og á þar við ummæli Svein-
bjargar um mosku og þvinguð
hjónabönd í fjölmiðlum. Hann
segist ekki muna eftir því að hún
hafi misst hluti út úr sér í fljótfærni
í vinnunni: „En hún er mjög ör. Er
með margt á prjónunum og alltaf
með mörg járn í eldinum í hverju
sem hún er að gera, en á móti mjög
drífandi og ákveðin,“ segir maður-
inn og tekur undir orð þeirra sem
unnu með henni á Atlanta um að
hún sé skemmtileg og það sé gam-
an að vera í kringum hana.
Skilnaður og flutningur heim
Sveinbjörg kynntist fyrrverandi
eiginmanni sínum, Hauki Alberti
Eyjólfssyni, í Verslunarskóla Ís-
lands. Þau urðu hins vegar ekki par
fyrr en þau bjuggu bæði í Sádi-Ar-
abíu, en þar var hún í þrjú sum-
ur í vinnu fyrir Atlanta. Þau skildu
síðan árið 2009, eftir fimmtán ára
samband. Þá sneri hún heim til Ís-
lands frá Lúxemborg með börnin
þeirra þrjú. Haukur starfar enn fyr-
ir Atlanta og býr stóran hluta ársins
í Dubai, á milli þess sem hann
kemur til Íslands.
Starfaði í Háteigskirkju
Sveinbjörg gegndi starfi gjaldkera
í sóknarnefnd Háteigskirkju á síð-
asta ári. Formaður nefndarinn-
ar, Sigríður Guðmundsdóttir, ber
henni söguna vel. „Hún er eld-
klár og skemmtileg kona. Við höf-
um átt opin og góð samskipti, inn-
an kirkjunnar. Utan hennar hef
ég ekki kynnst henni, en það kom
mér ekki sérstaklega á óvart að sjá
hana í stjórnmálum. Mér finnst
hún frekar sýna umburðarlyndi en
að hún sé einhver heittrúuð mann-
eskja, það er mín reynsla af henni,“
segir Sigríður.
Tók frá lóð í Súðavík í tvö ár
Faðir Sveinbjargar er uppalinn í
Súðavík, og eftir að hún kom heim
frá Lúxemborg hugðist hún styrkja
tengslin við Súðavík. Hún tók frá
lóð þar sem hún hugðist byggja
einbýlishús. Aldrei gerðist samt
neitt og þegar fresturinn til að
greiða fyrir lóðina var að renna út
fóru sveitarstjórnarmenn í Súðavík
að ókyrrast og höfðu við hana sam-
band. Þá tók hún lóðina aftur frá í
annað ár, en aldrei varð úr áform-
um hennar um að byggja sér ein-
býlishús á svæðinu. Fólk í Súðavík
segir að mikið hafi farið fyrir henni
þegar hún heimsótti bæinn og að
gustað hafi um hana, þó aðallega
á jákvæðan hátt. Hún hafi ekki ver-
ið í neinum feluleik með plön sín
um að byggja á svæðinu, en á end-
anum fór þó svo að hún hætti að
koma og sveitarfélagið nýtti lóðina
undir bílastæði.
Í einni af heimsóknum sínum
fór hún á myndlistarsýningu hjá
listakonunni Sigríði Rannveigu
Jónsdóttur, sem hélt þá sína fyrstu
sýningu. Sveinbjörg tók frá tvö
málverk og sagðist ætla að sækja
þau síðar, og greiða fyrir þau um
leið. Ekkert varð þó af því frekar
en af byggingu hússins og eftir sat
listakonan með sárt ennið. Á end-
anum fór þó svo að verkin seldust
fyrir í kringum 160 þúsund krónur,
en Sveinbjörg hafði haft þær frá-
teknar í þó nokkurn tíma.
„Margir svolítið
hræddir við hana“
Allir fjölskyldumeðlimir Svein-
bjargar sem DV talaði við bera
henni vel söguna og segja hana
stórkostlega manneskju sem hafi
mikla yfirburði yfir annað fólk
hvað andlegt atgervi áhrærir. Svo
djúpur er brunnur visku hennar að
sögn móður hennar, Sesselju Ingj-
aldsdóttur, að valdafólk fyllist ótta
og upplifir hana sem ógn. „Það eru
margir svolítið hræddir við hana.
Manni sýnist það; þeir sem stjórna
hér. Það er út af því að hún er alltof
dugleg og klár í höfðinu, það er
stóra málið. Hún var svo dug-
leg í námi að menn þurftu að rífa
bækurnar af henni. Hún þurfti eig-
inlega ekkert að vera með bækurn-
ar, það var þannig,“ segir Sesselja.
Sem áður greinir mátti Svein-
björg þola mikla gagnrýni í að-
draganda kosninganna, en hvað
fannst mömmu hennar um
moskumálið? „Eigum við ekki að
fá gefins lóðir? Vilt þú ekki fá gef-
ins lóð? Ég vil fá gefins lóð. Fáum
við það? Fáum við það?“ spyr hún
blaðamann, sem svarar neitandi
um hæl, og heldur áfram: „Nei,
einmitt. Hún var ábyggilega að
spekúlera í réttlætinu. Það á að
vera þjóðaratkvæðagreiðsla um
þetta mál. Við eigum að fá að ráða
hvað við höfum í okkar borg; það
er lýðræðið með stóru elli. Hitt er
eins og Sovétríkin.“
Aðspurð hvort hún sé sammála
dóttur sinni um það að moska eigi
ekki að rísa í Sogamýrinni seg-
ir Sesselja: „Íslendingar eiga að fá
að ráða yfir sínu landi. Við eigum
ekki að láta einhvern einn eða tvo
segja okkur hvernig hlutirnir eiga
að vera. Við erum kristin þjóð. Við
höldum í okkar siði og megum fara
með okkar faðir vor – enn þá. Við
eigum að fá að ráða hvað kemur
inn í okkar land. Við eigum að fá að
hafa okkar land fyrir okkur líka. Ís-
lendingar eiga að ráða.“
Skopmyndin tók á
Sesselja segir umræðuna hafa ver-
ið óvægna og að hún hafi tekið
á fjölskylduna. Um þverbak hafi
síðan keyrt á kjördag þegar mynd
af dóttur hennar birtist á leiðara-
síðu Fréttablaðsins í Ku Klux Klan-
klæðnaði. Sú mynd særði Sesselju
og fjölskylduna alla djúpu sári.
„Hvað heldur þú? Þegar það er
verið að skíta fólk svona út. Það er
auðvitað áfall fyrir fólk. Mér fannst
myndin ógeðsleg. Þetta var óhugn-
anlegt. Ég er alveg hissa á því að Ís-
lendingar leggist svona lágt.“
Systir Sveinbjargar, Guðbjörg
Gerður Sveinbjörnsdóttir, tekur í
svipaðan streng. Hún segist ekki
kannast við þá mynd sem fjöl-
miðlar og fólk í athugasemdakerf-
um draga upp af Sveinbjörgu, sú
manneskja sé ekki Sveina systir.
„Ég tók þá ákvörðun að lesa þessar
athugasemdir ekki því mér fannst
þær svo ómálefnalegar.“ Hver er
þá Sveina systir? „Hvernig mann-
eskja er systir mín?“ svarar hún,
hlær létt og bætir við: „Hún er frá-
bær manneskja, réttsýn, vel gef-
in og traust manneskja. Það eru
fyrstu orðin sem koma upp í hug-
ann á mér.“
Pólitík Sveinbjargar
Afskipti Sveinbjargar af pólitík
hófust árið 2001 þegar hún skráði
sig í Sjálfstæðisflokkinn og tók þátt
í þeirra starfi. Eftir það var hún ekki
virk í flokknum og það var ekki fyrr
en árið 2012 sem hún gekk til liðs
við Framsóknarflokkinn. Hún tók
strax mikinn þátt í starfi flokksins
og var í þriðja sæti á lista flokksins
í Reykjavíkurkjördæmi suður. Strax
haustið 2012 var hún farin að láta
til sín taka í umræðu um skulda-
mál. Á YouTube má finna upp-
töku frá laugardagsspjalli Fram-
sóknarfélags Reykjavíkur þar sem
hún hélt fyrirlestur sem bar heitið
„Skuldin mín og skuldin þín?“
Frá aðdraganda kosninganna má
einnig finna myndskeið frá pall-
borðsumræðum þar sem Gylfi
kona Íslands
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is „Hún er
eldklár
og skemmtileg