Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Page 21
Helgarblað 13.–16. júní 2014 Fréttir Nærmynd 21
E
ins og fram kemur hér að
framan bjó Sveinbjörg í þrjú
ár í Lúxemborg þar sem hún
starfaði við fjárfestingar á
fasteignum, meðal annars
fyrir bankann Askar Capital og
einnig fyrirtækið Investum sem
bæði voru í eigu Íslendinga. Einnig
var hún í hópi fjárfesta sem áttu
fasteign í Panama, en samkvæmt
LinkedIn-síðu hennar var hún
framkvæmdastjóri hópsins. Svein-
björg talaði um hugsanlega byggð
í Vatnsmýri fyrir kosningarnar og
sagði það mögulegt að erlendir kröf-
uhafar myndu ásælast byggingar-
landið sem skapast í Vatnsmýri,
verði Reykjavíkurflugvöllur færð-
ur annað. Hún var spurð út í málið
á beinni línu DV og sagðist þar ekki
hafa nein gögn eða heimildir til að
styðja þessar vangaveltur. „Annað
en gagnrýna hugsun til að styðjast
við og tel að þetta sé ein af spurn-
ingunum sem þarf að velta upp,“
sagði Sveinbjörg.
Fjárfesti sjálf í fasteignum erlendis
„Við erum að horfa á markaðsmis-
notkun þar sem fjárfestingarsjóð-
ir eru að kaupa upp íbúðir,“ sagði
Sveinbjörg enn fremur í viðtali í út-
varpsþættinum Harmageddon.
Benti hún á draugahverfi í Abú Dabí
og Dubai máli sínu til stuðnings, sem
erlendir aðilar fjárfestu í og standi
svo auð meirihluta ársins.
Er þetta ekki einmitt það sem
Sveinbjörg vann við í Lúxemborg?
„Jú, ég held að þetta sé einmitt það
sem maður lærir af reynslunni. Ég fór
og tók myndir af sumum hverfunum
þarna í Abú Dabí og Dubai og fylgd-
ist vel með spjallborðum á netinu
þar sem rætt er um fjárfestingar í
fasteignum,“ segir Sveinbjörg.
„Ég er brennd eftir mína reynslu“
Hún vill greinilega ekki að erlendir
aðilar stundi slíkar fjárfestingar hér
á landi, en er þá í lagi að Íslendingar
geri það erlendis, líkt og hennar starf
snerist um á árum áður? „Það tengist
líka gjaldeyrishöftunum, það er það
sem þrýstir verðinu hér upp. Enda-
lausar verðhækkanir eru ekki vegna
viðskipta innanlands með fasteign-
ir, heldur vegna þrýstings á krónuna.
Ég myndi ekki fara aftur út í þenn-
an bransa, ég er brennd eftir mína
reynslu og varfærin,“ segir Svein-
björg.
Hún kynntist viðskiptum með fast-
eignum fyrst árið 1998 og vann með-
al annars við skjalagerð því tengdu.
Árið 2002 varð hún löggiltur fast-
eignasali og stofnaði sína eigin fast-
eignasölu haustið 2004, eftir að hafa
hætt störfum hjá Deloitte. Þar með
hófst hennar ferill í fasteignabraski
af alvöru. „Mig hefur alltaf langað
að vinna í þessu fasteignaumhverfi,“
segir Sveinbjörg. Sem fyrr segir keypti
hún fasteign í Panama, ásamt öðrum
fjárfestum, á þeim árum sem hún
bjó í Lúxemborg og vann sjálf við að
aðstoða aðra við fjárfestingar í fast-
eignum. Hún segir þó langt síðan að
hún hafi sett ferilskrá sína saman á
LinkedIn og segist ekki vita hvaðan
nafnið á fjárfestingarhópnum kemur,
Investment Panama. n
Átti eign
í Panama
Sveinbjörg óttast fjárfestingar erlendra aðila í Vatnsmýri
„Það má segja
að hún hafi
sýnt reynsluleysi
„Ég er
brennd
eftir mína
reynslu og
varfærin
Sveinbjörg Birna Segist brennd af
reynslu sinni við fjárfestingar erlendis og vill
ekki að hér verði til draugahverfi líkt og í Abú
Dabí og Dubai. Mynd Sigtryggur Ari
Hafðu samband!
Hjörtur Sveinsson hjortur@dv.is
Ólafur H. Hákonarson olafurh@dv.is
Guðmundur S. Hafsteinsson
gudmundur@dv.is
Tryggðu þér auglýsingapláss!
Sérblað um
sumarveislur
kemur út með helgarblaðinu
20. júní og verður
aðgengilegt frítt
inn á dv.is