Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Page 22
Helgarblað 13.–16. júní 201422 Fréttir Nærmynd
Stuttur aðdragandi
Arnbjörnsson, Eygló Harðardóttir
og Sveinbjörg Birna ræddu um hús-
næðiskerfið, hvernig mætti breyta
því og hvort raunhæft væri að stór-
lækka leiguverð. Eins og kunnugt er
vann Framsóknarflokkurinn stór-
sigur í síðustu alþingiskosningum
og Sveinbjörg varð varaþingmaður í
Reykjavíkurkjördæmi suður.
Reglur flokksins brotnar
Hún hélt áfram að láta til sín taka í
flokknum og var síðastliðið haust
kosin í stjórn Landssambands fram-
sóknarkvenna. Hún var einnig í stjórn
Kjördæmasambands Framsóknarfé-
laga í Reykjavík en sambandið gerði
tillögu að uppstillingarlista í stað
kjörinnar uppstillingarnefndar eftir
að Óskar Bergsson sagði sig frá odd-
vitasæti listans. Hún átti þó ekki aðra
aðkomu að uppstillingu nýs lista
með öðrum hætti en þeim að hún
bauð sig fram í oddvitasætið og var
á endanum valin efst á listann, eftir
að Guðni Ágústsson ákvað að hann
myndi ekki fara í framboð.
Á nýjum lista voru konur í efstu
fjórum sætunum sem gengur þvert
á reglur Framsóknarflokksins um
kynjahlutfall. Samkvæmt þeim eiga
ekki að vera fleiri en tveir af sama
kyni í efstu þremur sætunum og í
þeim fimm efstu mega ekki vera
færri en tveir af öðru hvoru kyninu.
Í fimmta sæti listans var karlmað-
ur og hann sagði sig á endanum frá
listanum vegna þeirra ummæla sem
Sveinbjörg lét falla um byggingu
mosku í Reykjavík. „[...]Ég aftur á
móti held að við konur innan Fram-
sóknarflokksins verðum að rísa upp.
Það er búið að gera tilraunir til að fá
karlmenn að listanum. Það er byr
með því að það komi sterkar kon-
ur, leiði þennan lista og klári þetta
mál,“ sagði Sveinbjörg í samtali við
Vísi þegar umræða um val á odd-
vita Framsóknarflokksins í Reykjavík
stóð sem hæst.
Ummælin sem allir töluðu um
Víkur þá sögunni að ummælum
Sveinbjargar og fjaðrafokinu sem
þau ollu. Fyrir þau hefur hún orðið
einn umdeildasti stjórnmálamaður
landsins og hefur farið frá því að vera
nánast óþekkt yfir í að vera á allra
vörum. Hún er talin upp sem einn
af sigurvegurunum í sveitarstjórn-
arkosningunum enda náði hún að
rífa fylgi Framsóknarflokksins frá um
þremur prósentum miðað við kann-
anir í tæp ellefu prósent eftir að at-
kvæði höfðu verið talin. Ummæli
hennar eru mjög mikilvægur hluti
af þessari skyndilegu fylgisaukn-
ingu sem varð á tæpri viku. Á Face-
book setti hún inn stöðuppfærslu
þar sem hún sagði að margir hefðu
komið að máli við hana um byggingu
mosku í Reykjavík. Uppfærslan varð
tilefni viðtals sem blaðamaður á Vísi
tók við hana og þar lét hún þessi um-
mæli falla:
„Á meðan við erum með þjóð-
kirkju eigum við ekki að úthluta lóð-
um undir hús eins og moskur eða
kirkjur fyrir grísku rétttrúnaðarkirkj-
una.“
„Ég trúi því að allir eigi að geta
iðkað sína trú. En mér finnst ekki
rétt að múslimar eða önnur trúfélög
fái lóðir undir byggingu moskna eða
sambærilegra húsa. Mér finnst samt
bænahús vera annars eðlis og er ekki
mótfallin þeim.“
„Það er ekki eins og þessi skoðun
sé byggð á fordómum. Ég dæmi bara
eftir minni reynslu. Ég er til dæmis
nýkomin úr stærstu mosku í heimi
í Abú Dabí. Það er engin kirkja þar,
eðli málsins samkvæmt.“
Andúð á múslimum stóð upp úr
Rétt er að benda á að kirkjur eru til í
Abú Dabí þó að Sveinbjörg hafi ef til
vill ekki rekist á eina slíka. Þessi um-
mæli fóru sem eldur í sinu um sam-
félagsmiðla og fjölmiðla, og skyndi-
lega varð umræða um mosku að
stóru kosningamáli. Í útvarpsvið-
tali á Útvarpi Sögu ræddi hún um
þessi ummæli sín og sagði fyrrver-
andi eiginmann sinn, Hauk Albert
Eyjólfsson, vera kvæntan konu sem
er múslimi. Hún hefði ekkert á móti
múslimum, heldur snerist málið um
skipulag borgarinnar og úthlutun
lóða til trúfélaga.
Það var þó ekki það sem stóð
upp úr. Þegar opnað var fyrir sím-
ann í viðtalinu hringdu mest megn-
is inn hlustendur sem sögðust vera
andsnúnir því að byggð yrði moska
í Reykjavík. Sveinbjörg ítrekaði sína
skoðun, sem var að hún væri ekki á
móti mosku eða múslimum, held-
ur ætti að leyfa fólkinu í borginni að
kjósa um hvort gefa ætti lóðir til trú-
félaga eins og gert hefur verið. Það
varð undir í umræðunni og skyndi-
lega snerist umræðan um það hvort
fólk væri með eða á móti mosku og
múslimum.
Sleppti seinni sprengjunni
Sveinbjörg sleppti síðan annarri
sprengju í umræðuþætti á Stöð 2,
kvöldið fyrir kosningadag. Þegar
oddviti Dögunar tjáði sig um
byggingu mosku í Reykjavík greip
Sveinbjörg fram í fyrir honum og
sagði meðal annars: „Vilt þú búa
í samfélagi þar sem, eins og Svíar
þurftu að setja í síðustu viku, að það
er refsivert, hver hefði getað ímynd-
að sér það, að Svíar þyrftu að setja
lög þar sem væri refsivert að þvinga
fólk í hjúskap.“ Sveinbjörg vísaði þar
til breytinga sem orðið hafa í Svíþjóð,
þar sem innflytjendum sem eru ís-
lamstrúar hefur fjölgað gífurlega.
Ýjaði hún með þessum orðum að
því, að samfélagið hér myndi þróast
í þessa átt ef hér yrði byggð moska.
Lögfræðingurinn gerði sér þó ekki
grein fyrir því að nú þegar eru í gildi
lög um að bannað sé að þvinga í
hjónaband.
Tjáði sig um skopmyndina
Með þessum ummælum má segja
að fjandinn hafi orðið laus og á sjálf-
an kosningadaginn birti Fréttablaðið
skopmynd af oddvitunum í Reykja-
vík þar sem Sveinbjörg var teiknuð
íklædd Ku Klux Klan-búningi. Myndin
vakti upp hörð viðbrögð framsóknar-
fólks og í þættinum Eyjunni á Stöð 2
fyrir viku síðan ræddi hún málið. Þar
sagði hún meðal annars: „Ég velti því
fyrir mér hvort ég gæti lifað hér áfram
á Íslandi með börnin mín [...] þetta
var ekki neitt sem ég óska neinum
einasta manni.“ Leiða má að því líkur
að ummælin hafi hins vegar skilað sér
í fylgisaukningu, því eins og fyrr seg-
ir jókst fylgið á mjög skömmum tíma
eftir að þau féllu. Athygli vakti þegar
forsvarsmaður Facebook-síðu til-
einkaðri stuðningsmönnum sem eru
gegn byggingu mosku sagði að þeir
4.000 stuðningsmenn sem fylgja síð-
unni myndu styðja Framsókn og flug-
vallarvini.
Umdeilt lögheimili
Sveinbjörg sagði frá því fyrir kosn-
ingar að hún væri búsett í Kópavogi
og að hún hefði neyðst til að flytja
þangað vegna ástands á leigumark-
aði. Það væri þó aðeins tímabund-
ið og hún áformaði að flytja aftur til
Reykjavíkur við fyrsta tækifæri. Hún
er þó með skráð lögheimili í Reykja-
vík og þetta hefur valdið talsverðum
deilum. Formaður Dögunar í Reykja-
vík kærði málið til sýslumanns og
vísaði í lög um lögheimili, en áður
hafði kjörstjórn úrskurðað Svein-
björgu kjörgenga. Sýslumaður hef-
ur hins vegar skipað nefnd vegna
kærunnar, sem á að fjalla um skrán-
ingu lögheimilis Sveinbjargar. Hún
býr sannarlega í Kópavogi og því er
það umdeilt hvort að bjóða megi
fram með lögheimili skráð annars
staðar en viðkomandi býr. Búast má
við niðurstöðu í málinu á næstu vik-
um.
Reynsluleysið skein í gegn
Niðurstaða kosninganna er sú að
Sveinbjörg Birna er orðin borgar-
fulltrúi, eins og Guðfinna Jóhanna
Guðmundsdóttir, sem var í öðru sæti
listans. Fjölmörgum framsóknar-
mönnum líkaði þó ekki við kosn-
ingabaráttu þeirra og hefur hún
verið opinberlega gagnrýnd af með-
limum flokksins. Blaðamaður ræddi
við framsóknarkonuna Silju Dögg
Gunnarsdóttur, sem hefur kynnst
Sveinbjörgu vegna starfa fyrir flokk-
inn. „Sveinbjörg er rosalega hress,
skemmtileg og dugleg. Ég get ekki
sagt að ég þekki hana persónulega
en hún vann vel á flokksþingi Fram-
sóknarflokksins,“ segir Silja Dögg.
Hún segir rétt að skiptar skoðan-
ir séu um mosku innan flokksins en
aðallega sé rætt um lögfræðilegar
hliðar á lóðarúthlutunum til trúar-
félaga.
Eins og áður kemur fram hefur
Sveinbjörg ekki verið lengi í stjórn-
málum, má skrifa þessi ummæli
hennar á reynsluleysi? „Hún var
greinilega ekki að vanda sig mikið
þegar hún ræddi við blaðamanninn
hjá Vísi. Í útvarpsviðtali viðurkenndi
hún að hún hafi ekki verið mikill
pólitíkus í viðtalinu. Hún hefur ekki
verið starfandi lengi í flokknum og
ekki áður verið í framboði til sveitar-
stjórnar, svo jú það má segja að hún
hafi sýnt reynsluleysi. Hvernig hún
orðar sína skoðun er óheppilegt og
gerir fólk reitt. Ef hún hefði sagt þetta
öðruvísi, til dæmis að hún myndi
vilja skoða lögin um lóðaúthlutanir,
þá hefði hún komið betur út,“ segir
Silja Dögg.
Eldskírn Sveinbjargar
Sveinbjörg Birna mun því fá eldskírn
sína í stjórnmálum nú þegar hún
tekur sæti í borgarstjórn og verður í
minnihluta ásamt sjálfstæðismönn-
um. Flokkur hennar, Framsókn og
flugvallarvinir, mun berjast fyrir því
að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram
í Vatnsmýri auk þess að umrædd-
ar lóðaúthlutanir til trúfélaga verði
dregnar til baka. Erfitt verk er fyrir
höndum að sannfæra meirihlutann
um slíkt, sem aldrei þessu vant er
settur saman úr fjórum flokkum og
fleiri borgarfulltrúum en þörf er á.
Sérstaklega er það erfitt því oddvit-
ar meirihlutans lýstu því yfir að þeir
efuðust um það hvort Framsóknar-
flokkurinn væri stjórntækur og svo
virðist sem það hafi aldrei kom-
ið til greina að ganga til viðræðna
um meirihluta með flokknum. Í það
minnsta ekki eftir þau ummæli sem
Sveinbjörg lét falla í aðdraganda
kosninganna. Nú er því komið að
Sveinbjörgu að sýna hvort hún sé
komin til að vera í íslenskum stjórn-
málum. n
23. apríl Sveinbjörg Birna
segir við mbl.is að hún hafi
gefið kost á sér til að leiða lista
Framsóknar í
Reykjavík.
Hins vegar
myndi listi
sem leiddur
yrði af Guðna
Ágústssyni
verða lagður
fram daginn eftir og að vænta
mætti yfirlýsingar frá honum
þess efnis þá. Hún sagðist ekki
hafa átt aðkomu að valinu þar
sem hún hafi verið erlendis.
29. maí Stuðningur við
Framsóknarflokkinn hefur
aukist gríðarlega. Fylgið mælist
rúmlega níu prósent og flokk-
urinn virðist öruggur með einn
borgarfulltrúa.
1. júní Niðurstöður kosninga liggja
fyrir og ljóst að Framsókn og flug-
vallarvinir hafa unnið kosningasigur
með því að ná inn tveimur borgarfull-
trúum. Í umræðum oddvita kemur fram
að þeir sem líklegir eru til meirihluta-
viðræðna telja Framsóknarflokkinn
óstjórntækan.
8. júní Sveinbjörg tjáir sig um
skopmyndina sem birtist í Fréttablað-
inu. Segist hafa grátið þegar hún sá
myndina og að hún hafi hugsað hvort
hún gæti búið áfram á Íslandi með
börnin sín eftir myndbirtinguna.
30. maí
Sveinbjörg
Birna sleppir
annarri sprengju
um múslima og
segist hafa áhyggjur af nauð-
ungarhjónaböndum múslima
á Íslandi og segir að líta verði til
þróunar sem orðið hafi í Svíþjóð.
31. maí Gengið til kosninga.
Fyrstu tölur sýna að Framsókn er
með einn mann inni og vel er fagn-
að á kosningavöku Framsóknar.
22. maí
Fylgi Framsóknar
í Reykjavík mælist
fjögur prósent og
ekki með borgar-
fulltrúa.
23. maí
Sveinbjörg segir í
viðtali við Vísi að
hún vilji afturkalla
úthlutun lóðar
til múslima undir
mosku. Segist jafn-
framt byggja sína
skoðun á reynslu
en ekki fordómum.
Einnig að peningar
myndu streyma
inn að utan til
múslima yrði
byggð moska hér.
12. maí Sveinbjörg talar um
draugahverfi í Vatnsmýri í útvarpsviðtali
hjá Harmageddon. Segist þar halda að
fólk frá útlöndum ásælist fasteignir í
hverfinu líkt og gerst hefur í Abú Dabí og
Dubai, verði flugvöllurinn færður annað.
16. maí Greint frá orðaskaki
Sveinbjargar og Láru Hönnu á Facebook.
Sveinbjörg segir börnin sín hafa spurt
sig hvers vegna Lára Hanna „væri svona
ógeðslega vond“ við hana. Segir í sama
viðtali að þótt hún sé ný í pólitík þá komi
henni það ekki á óvart hversu óvægin
umræðan hefur reynst vera.
29. apríl Tilkynnt á
kjördæmisþingi Framsóknar í
Reykjavík að Sveinbjörg Birna
verði oddviti Framsóknar og
flugvallarvina í sveitarstjórnar-
kosningum.
„Hún er
mjög ör
Vigdís og Sveinbjörg Sveinbjörg kallaði Vigdísi upp á svið á kosningavöku Framsóknar eftir að fyrstu tölur bárust. Þær virtust góðar
vinkonur og stilltu sér upp fyrir ljósmyndara DV. Mynd ÞoRMAR V GUnnARSSon