Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Síða 24
Helgarblað 13.–16. júní 201424 Fréttir Erlent
S
ú var tíðin að gamla fólkið í
Suður-Kóreu gat treyst því
að afkomendur þeirra myndi
framfleyta þeim í ellinni.
Kynslóðin sem unnið hefur
hörðum höndum að því að umbylta
efnahag landsins horfir nú framan í
þann blákalda veruleika að forgangs-
röðun unga fólksins hefur breyst.
Þetta hefur leitt af sér að eldri konur,
ömmur, hafa í síauknum mæli leiðst
út í vændi. BBC greinir frá þessu
vandamáli á vef sínum.
Kim Eun-ja er 71 árs gömul og
ein þessara kvenna. Hún heldur til
á brautarpalli neðanjarðarlestar í
borginni Seoul. Hún situr með vara-
lit og í rauðum áberandi glansjakka
á steinsteyptum pallinum og hefur
ekkert með sér nema einn poka af
vinsælum orkudrykk. Þúsundir eldri
kvenna vinna fyrir sér í Kóreu með
því að selja karlmönnum orkudrykk-
inn. Þær kallast „Bacchus Ladies“
eða „Bakkusdömur“ í hrárri þýð-
ingu. Drykkinn selja þær frekar dýrt,
margar hverjar, enda fylgir honum þá
annað og meira; vændisþjónusta.
460 krónur á dag
Bakkusdömurnar eru flestar á þeim
aldri að þær ættu að vera að setjast
í helgan stein. Það geta þær ekki af
fjárhagsástæðum og leiðast því út í
vændi, á gamalsaldri. „Sjáðu Bakkus-
dömurnar þarna hinum megin?“
spyr Kim blaðamann. „Þær sofa
stundum hjá körlunum og fá greitt
fyrir. En ég geri það ekki. Menn bjóða
mér það oft, hér þar sem ég sit, en
ég geri ekki svoleiðis. Ég hafna þeim
alltaf,“ segir hún. Kim þénar um 460
krónur á dag fyrir að selja drykk-
ina. Raunar er þessi staður, þar sem
Kim segist ekki selja vændi, nokkurs
konar miðstöð vændis í borginni.
Uppi á yfirborðinu, yfir pallinum, er
Jongmyo Park, almenningsgarður
þar sem eldri menn hópast saman á
kvöldin; til að tefla, spila, spjalla eða
drekka. „Drekktu hratt,“ segir konan
við blaðamanninn, sem kaupir af
henni drykk. „Lögreglan gerir engan
greinarmun.“
Að sögn kunnugra nýtir sér um
annar hver maður í garðinum þjón-
ustu kvennanna. „Við erum karl-
menn. Við erum forvitnir um konur,“
segir Mr. Kim, sextugur. „Við fáum
okkur drykk og látum þær hafa svo-
lítinn pening í staðinn. Karlmenn
vilja hafa konur í kringum sig; sama
hvort þær eru ungar eða gamlar,
stunda kynlíf eða ekki. Þannig erum
við bara gerðir.“ Annar, ríflega áttræð-
ur, segir að kynlíf með konu í garðin-
um kosti á bilnu 1.700 til 2.000 krón-
ur. „En stundum fær maður afslátt, ef
þær þekkja mann.“
Gríðarlegur uppgangur hefur ver-
ið í Suður-Kóreu á undanförnum
áratugum. Efnahagur landsins hefur
tekið stakkaskiptum. Hingað til hefur
það verið þannig að besta leiðin til að
tryggja sér notalega elli hefur verið
að koma börnunum vel á legg. Trygg-
asta ávísunin að áhyggjulausri elli í
landinu er að eiga afkomanda sem
gengur vel. En með auknum lífs-
gæðum og hærri „lifistandard“ hef-
ur forgangsröðun ungu kynslóðar-
innar breyst. Unga fólkið segist varla
hafa efni á því að framfleyta sjálfu sér,
hvað þá að hafa foreldra sína á fram-
færslu.
Breytt forgangsröðun
Yfirvöld hafa sofnað á verðinum, að
sögn BBC, og mistekist að koma á fót
velferðarkerfi sem tekur við gamla
fólkinu og tryggir þeim áhyggjulaust
ævikvöld. Á meðan þarf gamla fólk-
ið að sjá fyrir sér sjálft. Það hefur lít-
inn sem engan lífeyri, litla innkomu
og ekkert öryggisnet. „Ég er sextugur
og á enga peninga. Ég get ekki reitt
mig á börnin mín. Þau eiga í basli við
að byggja upp sparnað fyrir eigin elli.
Næstum allir hérna eru í sömu stöðu.“
BBC hefur eftir dr. Lee Ho-Sun,
sem rannsakað hefur ástandið, að
Bakkusdömurnar hafi flestar leiðst út
í vændi eftir að þær hættu að vinna,
það er, hafi ekki verið vændiskonur
áður. Ein konan sem hún talaði við og
er ein fjögur hundruð vændiskvenna
í garðinum, seldi sig í fyrsta sinn 68
ára. Áður fyrr ríkti mikil virðing í garð
eldra fólks í Suður-Kóreu. Það hef-
ur breyst, að sögn Lee. „Ein Bakkus-
daman sagði við mig: „Ég þarf ekki að
njóta virðingar, ég þarf bara að borða
á hverjum degi.““
Karlarnir sem nýta sér þjónustu
Bakkusdamanna eru margir hverjir
með kynsjúkdóma. Hlutfallið er um
40 prósent, að lágmarki. Skýringuna
má meðal annars finna í þeirri stað-
reynd að vændiskonurnar sprauta
þá með kynörvandi lyfi, einhvers
konar Viagra, til að þeir nái honum
upp. Nálarnar eru notaðar 10 til 20
sinnum, áður en þeim er hent, að
sögn Lee.
Vændið fer yfirleitt fram á gisti-
heimili í nágrenni neðanjarðar-
brautarpallsins. Herbergin eru ágæt-
lega búin, að sögn blaðamannsins.
Rúm tekur stærstan hluta gólf-
plássins en á því er einn koddi. Í
herberginu er auk þess sjónvarp og
upphitað, rafknúið teppi. Við hlið
rúmsins er takki þar sem hægt er
að kveikja á sjónvarpinu og horfa á
klám. Í herbergjum eins og þessum
sækja karlarnir félagsskap, hlýju og
kynlíf. Í Suður-Kóreu er það á flestra
færi að kaupa kynlíf. Öðru máli }
gegnir um matinn. n
Kóreskar ömmur
leiðast út í vændi
n Velferðarkerfið í Suður-Kóreu er í molum n Gamla fólkið hefur ekki efni á mat
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Bruðlbiskup
fær nýtt heimili
Þýski biskupinn Franz-Pet-
er Tebartz-van Elst, sem fékk
viðurnefnið bruðlbiskupinn
vegna óhóflegrar eyðslu vegna
nýs biskupsseturs, er kominn
með nýtt heimili.
Páfagarður féllst á afsagnar-
beiðni Franz fyrr á þessu ári eftir
að hann eyddi fimm milljörð-
um króna af fé kirkjunnar í nýtt
og glæsilegt biskupssetur handa
sjálfum sér. Þrátt fyrir afsögnina
hefur Franz búið áfram á lúxus-
setrinu á meðan kirkjan hefur
reynt að finna honum nýtt hlut-
verk. Nú er komin lausn í málið
og í september mun Franz flytja
til Regensburg og taka að sér starf
þar. Leigð verður undir hann
íbúð og má ætla að reynt verði að
gæta hófs í leiguverði.
„Við fáum okkur
drykk og látum
þær hafa svolítinn
pening í staðinn
Kaupendurnir
Karlarnir í Suður-
Kóreu hafa tæplega
efni á mat en
vændisþjónusta er
mjög ódýr.
Drykkurinn Kaup á drykknum er ávísun
á vændi. Ömmurnar hafa meðferðis
sprautur með víagra.
Reyndi að
brenna foreldra
sína lifandi
Sextán ára piltur frá Ohio í
Bandaríkjunum, Mitchell Simon,
hefur verið dæmdur í níu ára
fangelsi fyrir brennu og tilraun til
manndráps á síðasta ári. Simon
var dæmdur fyrir að kveikja í
húsi foreldra sinna meðan þau
voru í svefni, en áður en hann
gerði það lokaði hann öllum út-
gönguleiðum með reipi. Ástæð-
an er talin vera sú að hann fékk
skammir í hattinn fyrir að sleppa
hljómsveitaræfingu og að hafa
uppi ósæmilegt orðbragð á sam-
skiptavefnum Facebook. For-
eldrar hans báru vitni fyrir dómi
og sögðu meðal annars að þau
vildu ekki að hann færi í fangelsi,
það væri ekki rétti staðurinn fyrir
hann. Sálfræðingur sem kom fyr-
ir dóminn sagði að Simon hefði
sýnt framfarir í viðtalstímum.
Þrátt fyrir það væri ákveðin hætta
á að hann myndi aftur reyna að
vinna foreldrum sínum mein.
Seldu vopn fyrir
930 milljarða
Þjóðverjar seldu vopn til erlendra
ríkja fyrir sex milljarða evra, 930
milljarða króna, á síðasta ári. Er
um að ræða 24 prósenta aukn-
ingu frá árinu 2012.
Spurningarmerki hafa ver-
ið sett við suma af stærstu við-
skiptavinum Þjóðverja vegna
stöðu mannréttindamála, þar á
meðal Alsír, Katar, Sádi-Arabíu
og Indónesíu. Vopn að verðmæti
562 milljóna evra, 87 milljarða
króna, voru seld til þróunarríkja
og vopn að verðmæti 12 milljónir
evra, 1.800 milljóna króna, voru
seld til fátækustu ríkja heims.
Stærstu viðskiptavinir Þjóðverja
voru Alsír, Katar, Bandaríkin,
Sádi-Arabía, Indónesía og Ísrael.
Á
tján ára gamall maður og nítján
ára gömul kona létust eftir að
hafa fallið fram af svölum sjö-
undu hæðar íbúðablokkar í
suðausturhluta Lundúna. Sjónarvott-
um ber saman um að parið hafi verið
að stunda kynlíf á svölunum – en inni
í íbúðinni var gleðskapur í gangi.
Samson Oguntayo, 32 ára sjónar-
vottur, segist hafa séð parið falla
niður. „Þau voru að reyna að athafna
sig á svölunum. Maðurinn lyfti henni
ítrekað upp á svalahandriðið á með-
an þau voru að. Þau hreyfðust fram og
aftur. Maður sá að þetta var háskaleik-
ur,“ hefur Daily Mail eftir manninum,
sem tekur fram að þetta sé alls ekki
í fyrsta sinn sem hann verði var við
að kynlíf sé stundað á svölum blokk-
arinnar. „Á einum tímapunkti virðist
sem einhver hafi komið að þeim því
þau fóru inn í íbúðina. Svo komu þau
út aftur og tóku upp þráðinn,“ seg-
ir Oguntayo sem virðist hafa fylgst
nokkuð náið með því sem fram fór.
Skyndilega sá hann parið falla
fram af svölunum. „Við öskruðum
bara,“ segir hann um fyrstu viðbrögð
sín. Hann hljóp niður stigann, stökk
yfir girðingu og hljóp í átt að parinu.
Hann fann þau liggjandi í blóði sínu.
Annar sjónarvottur fullyrðir að stúlk-
an hafi ítrekað beðið drenginn að
hætta. Þau hafi þó verið að kyssast.
Hann fór að sofa en hrökk upp við há-
væran skell tíu mínútum síðar.
Helen Millichap, yfirmaður rann-
sóknar málsins, segir að svo virðist
sem um hafi verið að ræða hræði-
legan harmleik. Þau hafi látist af slys-
förum og að málið sé rannsakað sem
slíkt. n baldur@dv.is
Ungmenni létust í ástarleik
Hröpuðu fram af svölum sjöundu hæðar í miðjum klíðum
Slysstaðurinn Maðurinn ungi lyfti konunni ítrekað upp á handriðið á meðan þau athöfn-
uðu sig, að sögn sjónarvotta.