Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Side 26
Helgarblað 13.–16. júní 201426 Fréttir Erlent
Vilja loka fyrir
Pirate Bay
Ný samtök í Noregi gegn ólöglegu
niðurhali á netinu ætla að fara
fram á það við norska dómstóla að
lögbann verði sett á skráarskipta-
síðuna Pirate Bay. Gangi þetta eftir
munu norskir netnotendur ekki
geta heimsótt vefsíðuna. Sam-
kvæmt nýjum höfundarréttarlög-
um sem tóku gildi í Noregi síðasta
sumar geta eigendur höfundar-
réttarvarins efnis farið fram á það
við norsk netfyrirtæki að lokað
verði fyrir aðgang að vefsíðum
sem veita aðgang að höfundar-
réttarvörðu efni. Samtökin hafa
þegar farið fram á það við Telenor,
eitt stærsta netþjónustufyrirtæki
Noregs, að lokað verði fyrir aðgang
að Pirate Bay, en fyrirtækið hefur
neitað að verða við þeirri beiðni
nema það verið skikkað til þess af
norskum dómstólum. Næsta skref
er því að leita til dómstóla.
Ísland eitt mesta
múslimaríki heims
n Hagfræðidoktor mældi hvaða lönd starfa mest í anda Kóransins
S
amkvæmt Hossein Askari,
prófessor í alþjóðlegum
viðskiptum við George
Washington-háskóla í
Bandaríkjunum, er Ísland
meðal þeirra landa í heiminum sem
fer mest eftir kennisetningu Kór-
ansins. Réttara sagt er Ísland í fjórða
sæti á heimsvísu á svokallaðri vísi-
tölu íslams sem prófessorinn gerði
við fræðistörf sín. Skilgreining Ask-
ari á hversu íslömsk ríki eru felst þó
ekki í heiðursmorðum, sjálfsmorðs-
sprengjuárásum, barngiftingum
eða öðru sem tengt hefur verið við
trúarbrögðin í seinni tíð. Gengur
vísitalan út á hversu vel hvert land
uppfyllir að hans mati hugmyndir
íslams um meðal annars heiðarlega
og réttláta stjórnsýslu, varðveislu
réttindi borgara sem og jöfnuð í
samfélaginu. Askari er íranskur að
uppruna en hefur alla sína starfsævi
búið á Vesturlöndum. Hann er með
doktorsgráðu í hagfræði frá MIT
og starfaði lengi hjá Alþjóðabank-
anum. Vestræn lýðræðisríki rað-
ast efst á listann en efsta ríkið þar
sem múslimar eru í meirihluta er
Malasía, í 37. sæti.
Ójöfnuður óíslamskur
Í viðtali við BBC World Service á
dögunum skýrði Askari betur hvað
hann ætti við með íslömsku vísi-
tölunni. „Ef að land eða samfélag
sýnir einkenni svo sem ólýðræði,
spillingu, harðræði og óréttlæti, eða
mismuni frammi fyrir dómstólum,
eða skort á valfrelsi, eða ríkidæmi
hliðina á fátækt, þá er það að órann-
sökuðu máli ekki íslamskt samfélag.
Íslam er, og hefur verið, framsögn
um alhliða ást Allah á sköpun sinni.
Íslam snýst um sameiningu sköp-
unar Allah og framþróunar henn-
ar,“ skýrði Askari. Benti hann á kald-
hæðnina sem fælist í því að lönd
þar sem íslam er ríkistrú röðuðust
í flestum tilvikum mjög neðarlega á
vísitölunni.
Trúarbrögð stjórnunartæki
Telur Askari að mörg þau ríki, hvort
sem þau séu íslamstrúar eður ei,
sem raðast neðst á vísitölunni reyni
að nota trúarbrögð sem stjórnunar-
tæki en ekki raunverulega hug-
myndafræði. „Ef þú skoðar mörg
þessi lönd, til að mynda í Mið-
Austur löndum, sem telja sig, að eig-
in mati, vera mjög trúuð þá sést að
trúarbrögð eru oft notuð af ólýð-
ræðislegum og spilltum löndum til
að gefa stjórninni ímynd lögmæt-
is. Með öðrum orðum þá eru trúar-
brögð valdatæki. Þeir hvetja al-
menning ekki til að skoða Kóraninn
rækilega og mynda sér sína eigin
skoðun,“ segir prófessorinn. Bendir
hann á að til að mynda í tilfelli íslam
þá sé það mjög skýrt í Kóraninum að
þeir sem stjórni skulu vera valdir af
fólkinu.
Mannréttindi grundvallaratriði
Segir Askari að sömuleiðis sé virðing
fyrir almennum mannréttindum
eitt helsta grundvallaratriði íslam og
sé kveðið á um það, líkt og lýðræði,
með mjög skýrum hætti í Kóranin-
um. „Það eru ákveðnir hlutir sem
íslömsk ríki eiga að gera. Við litum
til að mynda á stjórnsýslu við gerð
vísitölunnar, það er að segja lög og
þess háttar. Við litum líka til mann-
réttinda þar sem þau eru algjört
grundvallaratriði í íslam. Spámað-
urinn sagði að á dómsdag myndi
kúgarinn, sá sem er undirokaður, og
hlutlausi áhorfandinn vera dæmd-
ir. Kúgarinn fyrir sína glæpi, þeir
sem væru undirokaðir fyrir að hafa
ekki barist gegn kúgaranum, og sá
sem stendur til hliðar fyrir að hafa
ekkert gert,“ svaraði Askari spurður
af fréttamanni BBC um tengingu ís-
lam og mannréttinda. n
„Það eru
ákveðnir
hlutir sem íslömsk
ríki eiga að gera
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Topp tíu
1 Nýja-Sjáland
2 Lúxemborg
3 Írland
4 Ísland
5 Finnland
6 Danmörk
7 Kanada
8 Bretland
9 Ástralía
10 Holland
Íslam Samkvæmt Askari er
Ísland meðal þeirra landa í
heiminum þar sem samfélagið
er mest í anda Kóransins.
Doktor í hagfræði Hossein Askari
gerði vísitölu þar sem löndum heimsins er
raðað eftir því að hvaða marki þau fara að
kennisetningu íslamstrúar.
Fjöldamorðingi
laus úr haldi
Sænska fjöldamorðingjanum
Mattias Flink hefur verið sleppt
úr haldi, tuttugu árum eftir að
hann hóf afplánun fyrir morð á sjö
einstaklingum. Flink var dæmdur
í lífstíðarfangelsi árið 1994, en
hann skaut sjö manns til bana og
særði þrjá til viðbótar í nágrenni
Dalregementet þar sem hann var
liðsforingi í hernum. Skömmu
áður hafði hann rifist heiftarlega
við kærustu sína, en þegar hann
framdi verknaðinn var hann undir
miklum áhrifum eiturlyfja. Alls
skaut Flink 51 skoti og létust fimm
konur og tveir karlar á aldrinum
20 til 35 ára í árásinni sem framin
var í miðbæ Dalregementet. Í síð-
ustu viku, eftir að hafa afplánað
tvo þriðju hluta dómsins, var Flink
veitt reynslulausn.
Braut gegn
fjölda barna
Tuttugu og eins árs karlmaður
hefur verið ákærður í Svíþjóð
fyrir kynferðisbrot gegn þrett-
án ungum börnum. Maðurinn
var í starfsnámi á dagheim-
ili sem er í borginni Kalmar
þegar hann framdi brotin.
Grunur leikur á að maður-
inn hafi nauðgað börnum á
dagheimilinu, tekið myndir af
gjörðum sínum og deilt þeim á
netinu. Hann hóf störf hinn 27.
janúar síðastliðinn. Að sögn
saksóknara í málinu, Lindu
Caneus, leikur grunur á að
hann hafi framið fyrsta brot-
ið sama dag og hann byrjaði
að vinna á dagheimilinu. Við
húsleit á heimili hans fundust
um 300 myndir sem sýna börn
á kynferðislegan eða klám-
fenginn hátt og fjöldi mynd-
skeiða. Talið er að hann hafi
deilt myndunum áfram, meðal
annars með samskiptaforritinu
Skype. Meirihluti barnanna
sem brotin beindust gegn voru
á aldrinum tveggja til sex ára.
Óttast blóðug átök vegna Boko haram
Hryðjuverkasamtökin hafa tekið fleiri stúlkur
Þ
rátt fyrir aðstoð frá alþjóða-
samfélaginu hefur nígerískum
yfirvöldum ekki tekist að hafa
uppi á hópi ungra kvenna, alls
200 stúlkum, sem íslömsku öfga-
samtökin, Boko haram, rændu fyrir
rúmum tveimur mánuðum. Það sem
meira er, samtökin rændu um liðna
helgi tuttugu konum.
Ekkert hefur til kvennanna spurst
síðan um helgina en vitni segja Boko
haram-samtökin bera ábyrgðina og
fylgdust með þegar stúlkurnar voru
settar inn í flutningabíla og reknar á
brott. Hópur manna kom inn í þorp,
Garkin Fulani, í norðausturhluta
Níg eríu, vopnaður byssum og sveðj-
um. Konurnar eru hluti af Fulani-
ættbálknum sem er hópur hirðingja.
Konurnar voru ekki í skóla eða
á heimavist, heldur aðeins á heim-
ilum sínum í þorpinu. Þrír menn
sem reyndu að verjast hryðjuverka-
mönnunum voru einnig handsam-
aðir.
Nígerísk stjórnvöld virðast
standa ráðalaus frammi fyrir Boko
haram og skæruhernaði samtak-
anna. Óttast er að þetta sé korn-
ið sem fyllti mælinn hjá stjórnvöld-
um sem hefji nú hernaðaraðgerðir
gegn Boko haram. Það gæti þýtt
allsherjar stríðsátök í ríkinu, sem nú
þegar glímir við alvarleg efnahagsleg
vandamál sem og óstöðugt stjórn-
málaástand. Boko haram vilja koma
á íslömsku öfgaríki í Nígeríu og eru
alfarið á móti því sem þeir kalla vest-
ræn áhrif.
Þeir telja menntun kvenna vera
hluta af slíkum áhrifum og telja það
vera í sínum verkahring að koma í
veg fyrir það. Aðgerðir þeirra verða
sífellt alvarlegri og gætir stöðugt
meira ofbeldis af hendi þeirra. Kon-
urnar sem falla í hendur þeirra eru
oft seldar til eiginmanna eða neydd-
ar í þrældóm. n astasigrun@dv.is
Skilið stúlkunum okkar Það hefur tekið óralangan tíma að koma stúlkunum heim. Nígerísk
stjórnvöld sæta mikilli gagnrýni vegna málsins en alþjóðasamfélagið óttast að þrýstingurinn
verði til þess að til stríðsátaka komi milli Boko haram og nígeríska stjórnarhersins. MynD ReuTeRS