Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Qupperneq 27
Helgarblað 13.–16. júní 2014 Fréttir Erlent 27
Vilja banna
betl í Noregi
Svo gæti farið að bannað verði
að betla á götum Noregs á næsta
ári. Þetta er að minnsta kosti vilji
ríkisstjórnar Noregs, en nokk-
uð hefur verið karpað um þetta
á norska stórþinginu að undan-
förnu.
Samsteypustjórn Hægriflokks-
ins og Framfaraflokksins náði
samkomulagi við Miðflokkinn,
sem er í minnihluta, um málið á
þriðjudag og bendir því flest til
þess að blátt bann verði lagt við
betli í Noregi. Ekki eru allir sáttir
við fyrirhugað bann. Einn þeirra
er Kjell Ingolf Ropstad, þing-
maður Kristilegra demókrata.
„Betl er neyðarúrræði hjá fá-
tæku fólki í Noregi og þess vegna
finnst mér skrítið að þetta verði
bannað,“ segir hann. Nokk-
uð hefur borið á því að erlendir
einstaklingar, flestir frá Rúmeníu,
komi gagngert til Noregs til að
betla á götum úti. Í stjórnarsátt-
mála Hægriflokksins og Fram-
faraflokksins eftir kosningarn-
ar í haust kom fram að það yrði í
höndum sveitarstjórna í Noregi
að ákveða hvort bann yrði lagt við
betli. Marka þessar áætlanir sam-
steypustjórnarinnar því nokkra
stefnubreytingu.
Starfar áfram
sem læknir
Þýskur læknir, sem dæmd-
ur var í Noregi fyrir kynferðis-
brot gegn fjórum sjúklingum
sínum, starfar nú sem læknir
í fullu starfi þrátt fyrir að hafa
verið sviptur starfsréttindum
í Noregi og leyfi fyrir að starfa
sem læknir.
Eftir að hafa verið fund-
inn sekur, bæði fyrir undir-
rétti og áfrýjunarrétti í Bergen,
flutti maðurinn til Þýskalands
þar sem hann hóf störf. Dag-
bladet greinir frá því að þar
sem ekki er til neitt samræmt
evrópskt leyfiskerfi fyrir lækna
höfðu þýsk heilbrigðisyfirvöld
ekki hugmynd um forsögu
mannsins. Í samtali við Dag-
bladet játaði læknirinn því að
hafa ekki látið vinnuveitendur
sína vita að hann hefði verið
dæmdur.
„Sýrland verður
eins og Sómalía“
n Lakdar Brahimi dregur upp dökka mynd af framtíð Sýrlands
L
akhdar Brahimi, fyrrverandi
friðarerindreki Sameinuðu
þjóðanna og Arababandalags-
ins í málefnum Sýrlands, dreg-
ur upp dökka mynd af stöðu
Sýrlands og telur að landið verði
aldrei eins og það var áður en stríðið
braust út. Árið 2012 var Brahimi, sem
er Alsíringur, fenginn til að freista þess
að koma á friði í Sýrlandi en hann lét
af störfum í maí síðastliðnum þegar
honum þótti augljóst að friðarumleit-
anir myndu engan árangur bera.
Brahimi var í ítarlegu viðtali í þýska
blaðinu Spiegel á dögunum.
Sagði af sér
Þegar Brahimi var ráðinn árið 2012
töldu margir að verkefni hans yrði
næsta ómögulegt. Í viðtalinu segir
Brahimi að hugmyndin hafi verið sú
að Bashar al-Assad, hinn umdeildi
forseti Sýrlands, myndi stíga til hliðar
sem forseti og verða valdalaus. Hann
myndi þó deila reynslu sinni áfram
með nýrri ríkisstjórn og hjálpa til
við að koma á stöðugleika í landinu.
„Þetta er það sem mig dreymdi um
og dreymir enn um,“ segir hann. Ekki
gekk þetta þó eftir og eftir að friðar-
viðræður í Genf fóru út um þúfur í
ársbyrjun tilkynnti Brahimi um af-
sögn sína. „Þegar þessar viðræður
skiluðu engu áttaði ég mig á því að
ekkert myndi gerast í bráð.“ Fulltrúar
sýrlenskra stjórnvalda og samtaka
stjórnarandstæðinga settust við
samningaborðið með Brahimi en
engin áþreifanleg niðurstaða fékkst.
Snýst um Assad
Bashar al-Assad hefur notið stuðn-
ings Rússa í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna á meðan önnur ríki hafa
stutt stjórnarandstæðinga, meðal
annars Bandaríkin. Brahimi segir að
hvorki Rússar né Bandaríkjamenn
hafi getað sannfært bandamenn sína
um að ganga til viðræðna með það
að markmiði að leysa deiluna. Hann
segir að deilan snúist að miklu leyti
um það að Bashar al-Assad sé enn
forseti Sýrlands þrátt fyrir að borg-
arastyrjöldin hafi dregið hundruð
þúsundir til dauða. „Fulltrúar sýr-
lensku stjórnarinnar komu til Genfar
til þess eins að þóknast Rússum og
vildu ekki ræða eitt né neitt. Stjórn-
arandstæðingarnir voru tregir til að
ganga að samningaborðinu og komu
mjög illa undirbúnir. Þeir vildu helst
hernaðarlega lausn en voru samt til-
búnir að ræða við Assad svo lengi
sem það væri einhver von um að
hann myndi hverfa frá völdum.“
Endurkjörinn til sjö ára
Bashar al-Assad hefur ávallt
harðneitað að stíga frá völdum jafn-
vel þótt það kæmi landinu til góðs.
Það hefur ekki einu sinni komið til
greina að annar aðili, sem stríðandi
fylkingar væru sáttar við að tæki
að sér völdin, tæki við embætti for-
seta. „Þetta er hans stjórn og hann
hefur enn löngun til að vera for-
seti,“ segir Brahimi þegar hann er
beðinn um að segja sína skoðun á
þessu tangarhaldi Assads. „Stjórnin
er byggð í kringum hans persónu.
Hann segir: Ef meira en helmingur
þjóðarinnar vill hafa mig í embætti
verð ég áfram í embætti. Ef ekki þá
hverf ég frá völdum.“ Assad var ný-
lega endurkjörinn forseti Sýrlands
og mun hann gegna því embætti
næstu sjö árin að óbreyttu. „Önn-
ur fylkingin segir að engin lausn fá-
ist nema Assad verði áfram forseti á
meðan hin fylkingin segir að engin
lausn fáist nema Assad fari,“ segir
Brahimi og bendir á hversu erfitt það
sé að fá lausn í deilumálin í Sýrlandi.
Veit af voðaverkum
Brahimi segir að Assad viti allt um
það hvernig herinn beitir sér í Sýr-
landi, en þúsundir óbreyttra borg-
ara hafi látið lífið í sprengjuárásum
í landinu – oftar en ekki í árásum
sem stjórnarherinn hefur staðið fyr-
ir. „Hann veit fjandi mikið. Kannski
veit hann ekki um öll smáatriðin en
ég er viss um að hann geri sér grein
fyrir því að það er verið að pynta
fólk, drepa fólk, varpa sprengjum
og leggja borgir í rúst. Hann getur
ekki litið framhjá þeirri staðreynd að
fjöldi flóttamanna þar er 2,5 milljónir
– tala sem mun bara hækka. Hann
veit að það eru 50 til 100 þúsund
manns í fangelsum og margir þeirra
eru pyntaðir á degi hverjum.“
Brahimi segist hafa borið þetta
undir Assad og meðal annars látið
hann hafa lista sem innihélt 29 þús-
und nöfn einstaklinga sem taldir eru
vera í fangelsum landsins.
Stríðsglæpir dag hvern
Að sögn Brahimis eru voðaverk-
in ekki bara framin af stjórn Assads
því stjórnarandstæðingar og upp-
reisnarhópar beri sína ábyrgð líka.
„Þarna eru stríðsglæpir framdir á
hverjum einasta degi, af báðum að-
ilum. Hungur er notað sem vopn,“
segir hann. Hann hefur trú á því að
þeir sem beri ábyrgð verði dregn-
ir til ábyrgðar fyrr en síðar en sér-
stök rannsóknarnefnd á vegum
Sameinuðu þjóðanna safnar saman
gögnum um mannréttindabrot og
stríðsglæpi sem framdir eru í Sýr-
landi.
Stríðsherrar í öllum hornum
Ljóst er að langur tími mun líða þar
til friður kemst á í Sýrlandi. Þegar
Brahimi er beðinn um að spá fyrir um
framtíð Sýrlands og nágrannaríkja
þess segist hann hafa vissar áhyggj-
ur. „Nema mikil og alvöru vinna verð-
ur lögð í að koma á friði er hætta á
að allt fari í loft upp. Þessi deila verð-
ur ekki bundin við Sýrland. Nú þegar
er óstöðugleiki í Líbanon þar sem 1,5
milljónir flóttamanna eru, það jafn-
gildir þriðjungi af íbúafjölda lands-
ins,“ segir hann. Bendir hann á að
samtökin ISIS, sem stendur fyrir Ís-
lamska ríki Íraks og Sýrlands, séu
mjög virk í Sýrlandi og Írak og hafi
náð fótfestu í Jórdaníu og í Tyrklandi.
Brahimi er svartsýnn á fram-
tíð Sýrlands sem fyrr segir. „Sýr-
land verður eins og Sómalía. Landið
verður ekki sundrað eins og margir
hafa spáð. Þetta verður mislukkað
(e. failed) ríki þar sem stríðsherrar
verða hver í sínu horni.“
Þegar hann er spurður hvað al-
þjóðasamfélagið, Evrópa einna
helst, getur gert, segir hann: „Ríkis-
stjórnir verða að átta sig á því hversu
hættuleg staða er komin upp og
hversu mikilvægt það er að vinna að
pólitískri lausn.“ n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Ömurlegt ástand Ástandið í Sýr-
landi hefur verið hryllilegt undanfarin
ár. Enn sér ekki fyrir endann á stríðinu.
Sagði af sér Brahimi sagði af sér eftir að honum þótti ljóst að friður myndi ekki komast á í
Sýrlandi í bráð.
Fangelsaður
í fimmtán ár
Egypskur dómstóll hefur dæmt
aðgerðasinnann Alaa Abdul
Fattah í fimmtán ára fangelsi fyr-
ir ólögleg mótmæli og árás á lög-
regluþjón. Fattah lék lykilhlut-
verk í uppreisninni gegn Hosni
Mubarak, fyrrverandi forseta Eg-
yptalands, árið 2011. Hann var
handtekinn í nóvember síðast-
liðnum fyrir þátttöku sína í mót-
mælum sem beindust gegn banni
við mótmælum, eins einkennilega
og það hljómar. Fattah fékk ekki
að vera viðstaddur réttarhöldin
yfir sér og hefur lögmaður hans
tilkynnt að dómnum verði áfrýjað.