Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Síða 28
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi
Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri
og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéttASkot
512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AðAlnÚmeR
RitStjóRn
áSkRiFtARSími
AUglýSingAR
Sandkorn
28 Umræða Helgarblað 13.–16. júní 2014
Eva Longoria og
Anne Hathaway
Afturgöngur í framsæti
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir segir stjörnurnar skotnar í Gyðju. - DV
N
ýr stjórnmálaflokkur á hægri
væng stjórnmálanna á fullt
erindi ef marka má viðbrögð
í könnunum við hinni nýju
Viðreisn sem Benedikt Jóhannes-
son og fleiri fyrrverandi sjálfstæðis-
menn standa að. Á stofnfundi sam-
takanna voru um 200 manns mættir
og stemmningin svífur yfir vötnum.
Helsta ástæða þess að hljómgrunn-
ur er fyrir hinu nýja afli er sú harð-
línustefna sem orðið hefur ofan á í
Sjálfstæðisflokknum þar sem aftur-
göngur úr stjórnmálum virðast ráða
ferðinni. Þar ber hæst afstöðuna til
aðildar að Evrópusambandinu. Stór
hluti hægrimanna er á þeirri skoðun
að rétt sé að láta reyna á aðildina.
Forysta Sjálfstæðisflokksins ákvað
að fara leið harðlínuaflanna og slíta
viðræðum með ofbeldi án þess að
spyrja þjóðina eins eða neins. Þeir
létu öfgaöfl innan eigin flokks og
steintröll úr Framsóknarflokknum
leiða sig út í fenið. Þeir forsmáðu
vilja þjóðarinnar með slitatillögunni
sem leiddi til fjöldamótmæla á Aust-
urvelli. Allt það mál bar vott um
ótrúlega pólitíska heimsku. Vandinn
er sá að þjóðin er komin á bragð-
ið með að fá beina aðild að stórum
málum. Upphafið var þegar Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
ákvað að vísa fjölmiðlalögum Dav-
íðs Oddssonar í þjóðaratkvæði. Þar
á eftir fékk þjóðin að greiða atkvæði
um Icesave. Forystumenn Sjálfstæð-
isflokksins og Framsóknarflokks-
ins studdu í orði að þjóðin fengi að
kjósa um skuldaklafann. En þegar
þeir voru sjálfir komnir á valda-
stóla ákváðu þeir að krosssvíkja eig-
ið kosningaloforð um að þjóðin ætti
að skera úr um framhald viðræðna
um aðild að ESB. Þetta rökstuddi
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, með því að það væri
pólitískur ómöguleiki fyrir núver-
andi ríkisstjórn að halda áfram við-
ræðum. Þjóðarviljinn var þar með
settur aftur fyrir vilja fulltrúanna.
Það mátti ekki taka áhættuna af því
að kjósa því það leit út fyrir að niður-
staðan yrði ráðamönnum óhagstæð.
Það er í þessu andrúmslofti sem
hver sjálfstæðismaðurinn af öðrum
leggur á flótta og velur sér ný skoð-
anasystkini. Stofnun Viðreisnar er
staðfesting á klofningi innan Sjálf-
stæðisflokksins. Frjálslynt fólk sem
vill færa valdið til fólksins hörfar
undan afturgöngum Sjálfstæðis-
flokksins sem hafa komið sér fyrir í
framsætinu. Kjarninn í almennri óá-
nægju með framgöngu ríkisstjórnar-
flokkanna í ESB-málinu snýst ekki
um viljann til aðildar. Fólk vill ein-
faldlega fá að leggja sitt lóð á vogar-
skálarnar og ráða framvindunni.
Hins vegar liggur fyrir að tilraunin til
valdníðslunnar hefur orðið til þess
að þeim snarfjölgaði sem aðhyllast
aðild. Og yfirgnæfandi meirihluti
þjóðarinnar krefst þess að fá að
greiða atkvæði um framhald eða
slit viðræðna. Það er í skugga þessa
pólitíska ómöguleika sem nýtt afl á
hægri vængnum á mikla möguleika.
Það er klókt af forsvarsmönnum þar
að leggja til að framhald viðræðna
fari í þjóðaratkvæði. Farvegur fyr-
ir óánægða hægrimenn er kominn.
Full ástæða er fyrir forsvarsmenn
Sjálfstæðisflokksins að hafa áhyggj-
ur. Ekki er víst að þeir eigi sér við-
reisnar von. n
Tár Sveinbjargar
Einhver skrautlegasti stjórn-
málamaður á síðari tímum er
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir sem
dröslaði inn tveimur borgarfull-
trúum eftir að hafa lýst því yfir að
afturkalla ætti leyfi til byggingar
mosku í Sogamýri. Í umræðunni
sem spratt í framhaldinu hafði
hún ýmsar athugasemdir við
framgöngu múslíma. Í viðtals-
þættinum Eyjunni á Stöð 2 sagð-
ist hún með eftirgangsmunum
harma hvernig umræðan þróað-
ist og lýsti fjölmiðla þar ábyrga.
Þá kallaði hún eftir samúð vegna
skopmyndar af henni í Frétta-
blaðinu og sagðist hafa grátið
þegar hún opnaði blaðið.
Áfall bæjarstjórans
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, stendur eftir laskað-
ur eftir að hann náði ekki kjöri
sem bæjarfull-
trúi. Mikið írafár
varð í talningu
þegar fulltrúar
Sjálfstæðisflokks-
ins sáu í hvað
stefndi. Þegar fyrir
lá að Gunnar var
fallinn fyrir Halldóri Jörgenssyni,
frambjóðanda Bjartrar framtíð-
ar, var krafist endurtalningar en
allt kom fyrir ekki. Í ofanálag fékk
bæjarstjórinn flestar útstrikanir
af öllum.
Þriðja kynslóðin
Einn helsti sigurvegari sveitar-
stjórnarkosninganna er Björt
framtíð og formaður hennar,
Guðmundur Stein-
grímsson. Flokk-
urinn er búinn að
fóta sig á lands-
vísu og með sam-
starfinu við Sjálf-
stæðisflokkinn í
stórum sveitarfé-
lögum á borð við Kópavog hef-
ur tekist að slíta naflastrenginn
yfir til Samfylkingar. Þar með er
flokkurinn að mjaka sér hægra
megin við miðju. Það kemur síð-
an í ljós hvort flokknum telst að
fóta sig inn í framtíðina. Fari svo
að Guðmundur verði forsætis-
ráðherra verður hann sá þriðji í
beinan karllegg til að sinna því
embætti.
Sveinn er einn
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður
hefur verið áberandi í sambandi
við stofnun hinnar nýju Viðreisn-
ar sem ætlað er
að koma Íslandi
inn í Evrópusam-
bandið. Stofnend-
ur hins nýja flokks
munu þó ekki
vera áhugasam-
ir um að hleypa
Sveini inn í forystuna. Því veld-
ur að maðurinn er umdeildur
fyrir ýmsar sakir og þá sérstak-
lega fjölbreytt ástarmál þar sem
ungmeyjar koma við sögu. Fyrir
nokkru slitnaði upp úr áralöngu
samstarfi Sveins innan Lög-
fræðistofu Reykjavíkur og er hann
nú einn með skrifstofu.
Reynir Traustason
rt@dv.is
Leiðari
Helgi Hjörvar
þingmaður Samfylkingarinnar
Kjallari
Fleiri leiguíbúðir
Þ
að er gaman að sjá áhersl-
ur nýs meirihluta í borgar-
stjórn Reykjavíkur. Þar eru
barnafjölskyldur, lýðræðis-
þróun og ekki síst húsnæð-
ismál í forgangi. Meðal þess gleði-
lega eru áform nýja meirihlutans
um byggingu þúsunda leiguíbúða
og búseturéttaríbúða á næstu
árum. Það er einfaldlega mjög
brýnt að auka framboð á leiguí-
búðum sem bjóðast á sanngjörn-
um kjörum til langs tíma og líka að
fjölga valkostum okkar í húsnæð-
ismálum. Búseturéttaríbúðir hafa
reynst góður valkostur fyrir marga
og sameina að ýmsu leyti kosti þess
að eiga og leigja. Áform um fjölg-
un félagslegra íbúða eru einnig sér-
staklega ánægjuleg enda biðlist-
ar eftir slíkum íbúðum enn allt of
langir. Ástandið í húsnæðismálum
hefur ekki farið fram hjá neinum og
mikilvægt að stjórnmálamenn setji
framfarir þar í forgang því húsnæð-
ismálin skipta svo miklu fyrir vel-
ferð fólks. Það er ekki bara skortur
á leiguíbúðum sem hefur skapað
leigjendum erfiða stöðu. Því mið-
ur ákváðu Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur á Alþingi í vor
að sleppa því sérstaklega að leið-
rétta lán á leiguíbúðum og búsetu-
réttaríbúðum þannig að hækkan-
irnar á leigu og lánum hjá þessum
hópum eru óleiðréttar meðan þeir
sem eiga húsnæði hafa fengið lof-
orð um leiðréttingu úr ríkissjóði.
Við þetta bætist að ríkið hefur lengi
veitt meiri peningum í vaxtabætur
til þeirra sem kaupa en í húsaleigu-
bætur til þeirra sem leigja. Á síð-
asta kjörtímabili kynntum við til-
lögur um að sameina vaxta- og
húsaleigubætur þannig að þeir
sem eiga húsnæði og leigja sitji við
sama borð. Það er mikilvægt að
sú breyting verði gerð nú í kjölfar
skuldaaðgerða því það er einfald-
lega ósanngjarnt að þeir sem leigja
fái minni stuðning en hinir sem
kaupa.
Heimilin í forgang
Fyrsta þingmál okkar í Samfylk-
ingunni á Alþingi á þessu kjör-
tímabili var um bráðaaðgerðir til
að efla leigumarkað á Íslandi. Erf-
ið staða margra í húsnæðismálum
kallaði á það en líka sú staðreynd að
við þurfum að fjölga möguleikum
fólks til að vera í öruggu húsnæði.
Slæm reynsla af stökkbreytingu
lána og því hvað mikil skuldsetning
íbúðarhúsnæðis er viðkvæm fyrir
sveiflum á fasteignamarkaði, kaup-
máttarbreytingum og vaxtahækk-
unum veldur því að mun fleiri vilja
aðra valkosti í húsnæðismálum en
100% lán með tilheyrandi skuld-
setningu. Það er sameiginlegt fram-
tíðarverkefni okkar allra að stuðla
að uppbyggingu heilbrigðs og rétt-
láts húsnæðiskerfis með fjölbreytt-
um valmöguleikum sem koma til
móts við þarfir ólíkra hópa. Þau
skref sem nýr meirihluti í Reykjavík
stígur í samstarfssáttmála sínum
eru í þá átt. Ríkisstjórnin hefur enn
tækifæri til að koma með í þenn-
an leiðangur og sýna í verki að hún
setji heimilin í forgang eins og lof-
að var fyrir síðustu þingkosningar.
Hvort heimilin á leigumarkaði eru
með í þeim forgangi fáum við að sjá
í fjárlagatillögum ríkisstjórnarinn-
ar í haust. n
„Það er einfald-
lega mjög brýnt að
auka framboð á leigu-
íbúðum sem bjóðast á
sanngjörnum kjörum
„Hver
sjálf-
stæðismaður-
inn af öðrum
leggur á flótta
Við berum
öll ábyrgð
Benedikt Jóhannesson segir hrunið ekki Sjálfstæðisflokknum að kenna. - DV
Hjarta
mínu blæðir
Ragna Erlendsdóttir saknar Ellu Dísar sem lést aðeins átta ára. - DV