Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Side 29
Umræða 29Helgarblað 13.–16. júní 2014
Vinstri og hægri eru ekki á útleið!
A
ð afloknum sveitarstjórn-
arkosningum er áhugavert
að líta yfir sviðið og skoða
hvernig pólitískt mynstur
leggst í sveitarstjórnum
vítt og breitt um landið. Í mörgum
minni sveitarfélögum voru óhlut-
bundnar kosningar og í öðrum voru
blönduð framboð sem stjórnmála-
flokkarnir áttu beina eða óbeina að-
ild að. Í stærstu sveitarfélögunum
voru í flestum tilfellum hrein flokks-
framboð þar sem stjórnmálaflokk-
arnir lögðu mikið undir til að skapa
sér sterka stöðu í hinu pólitíska
landslagi.
Ekki er hægt að segja að einn
flokkur hafi verið sigurvegari
þessara kosninga en vissulega unn-
ust sigrar staðbundið hjá flokkum
og eða framboðum sem skilgreina
sig til vinstri eða hægri eða einhvers
staðar þar á milli. Það sem mér
finnst umhugsunarvert og áhyggju-
efni fyrir utan lélega kjörsókn er
sá áróður sem víða er undirliggj-
andi að ekki eigi að skilgreina sig til
vinstri eða hægri, það sé úrelt hugs-
un og gamaldags. Tilhneigingin hef-
ur orðið sú að allt of mikið snýst
um tímabundnar persónuvinsældir
einstakra einstaklinga sem koma og
fara og pólitískar flugeldabombur
eins og moskur og Reykjavíkurflug-
völl sem ganga út á það að ná til sín
sem mestu hraðfylgi!
Stefnumarkandi pólitík
Það vill oftar en ekki gleymast að
leggjast yfir stefnuskrár flokka og
framboða og skoða fyrir hvað við-
komandi flokkur/framboð stend-
ur til lengri tíma litið. Er hann til
vinstri, hægri eða miðju eða sitt lítið
af hverju? Pólitíkin á að vera stefnu-
markandi vegvísir til framtíðar um
hvernig við viljum að þjóðfélagið og
nærsamfélagið þróist.
Því einstaklingar, hversu góð-
ir eða slæmir sem þeir kunna að
vera, koma og fara og því þarf að
vera hægt að treysta grunngildum
og stefnumörkun hvers flokks fram
á veginn. Í stað þess að sitja uppi
með eitthvert óskilgreint miðju-
moð sem stekkur á vinsældalestina
hverju sinni eða kemst áfram á yfir-
boðum eða spilar inn á lægstu hvatir
mannskepnunnar í von um atkvæði.
Vinstri græn mega þokkalega vel við
una að afloknum sveitarstjórnar-
kosningum miðað við hið pólitíska
landslag og þá pólitísku afvæðingu
sem vinsælt er að tala fyrir. Sveit-
arstjórnarkosningar snúast ólíkt
landsmálunum að miklu leyti um
staðbundin verkefni í nærsamfé-
laginu en samt sem áður liggja undir
grunngildi vinstri og hægri póla sem
tekist er á um ásamt umhverfis- og
virkjanamálum.
Þar er hægt að nefna sem dæmi
þá miklu áherslu hægri manna á
einkavæðingu sem er alfarið gagn-
stætt vilja okkar Vinstri grænna sem
viljum að almannaþjónustan og
orkufyrirtækin verði í höndum op-
inberra aðila og að sameign okkar á
auðlindunum sé tryggð.
Þessi sjónarmið kristölluðust
meðal annars í umræðunni sem
varð fyrir kosningarnar í vor um
hvort til greina kæmi að einkavæða
Landsvirkjun en fjármálaráðherra
hefur talað fyrir þeim sjónarmið-
um. Gjörólík skattapólitík er á milli
vinstri og hægri þar sem vinstri
menn vilja beita skattkerfinu til jöfn-
unar lífskjara en hægri menn vilja
lækka skatta og veikja þannig vel-
ferðarkerfið og láta almenning þess
í stað borga stærri skerf í þeirri þjón-
ustu sem hið opinbera veitir eins
og tillögur þeirra um legugjöld á
sjúkrahúsum bera glöggt vitni um.
Eiga að vera hreinar línur
Ég er þeirrar skoðunar að það sé
heilbrigðara og farsælla að kjós-
endur hafi það á hreinu fyrir kosn-
ingar fyrir hvaða stefnu flokkar og
framboð standa. Í stað þess að keyrt
sé á með þann áróður að vinstri og
hægri séu liðin tíð og nóg sé að vera
hress, hipp og kúl og viðhlæjend-
ur allra að minnsta kosti fram að
kosningum. Það eiga að vera hrein-
ar línur um þá stefnu sem stjórn-
málamenn standa fyrir svo seinna
komi ekki í ljós að kjósandinn hafi
keypt köttinn í sekknum.
Í minni sveitarfélögum hefur
reynslan oftar en ekki verið sú að
vel hefur tekist að vinna að málefn-
um sveitarfélaga þvert á flokkslín-
ur og það er gott. Stór hluti sveit-
arstjórnarmála er líka unninn í
samstöðu en það eru mál sem
sveitarstjórnir takast á um sem eru
mjög pólitísk, svo sem eignarhald
á orkufyrirtækjum, rekstrarform
almannaþjónustu, skattar, um-
hverfismál og forgangsröðun sam-
félagsverkefna. Í þessum mála-
flokkum skiptir miklu máli hverjum
þú treystir best fyrir atkvæði þínu.
Vinstri græn hafa verið ófeimin við
að skilgreina sig sem vinstri græn-
an feminískan umhverfisflokk sem
leggur áherslu á félagslegt réttlæti,
samfélagslega ábyrgð, öflugt vel-
ferðarkerfi, mannréttindi, jöfn bú-
setuskilyrði, jafnrétti kynjanna og
umhverfisvernd.
Heilbrigð gagnrýni nauðsynleg
Við höfum komið til dyranna eins og
við erum klædd og okkar fulltrúar í
sveitarstjórnum munu halda á lofti
þessum grunngildum VG og styrkja
þannig lýðræðislega aðkomu fjöl-
breyttra sjónarmiða. Vinstri græn
hafa oftar en ekki verið sterk rödd
þeirra sjónarmiða sem annars hefðu
ekki eða átt sér fáa málsvara í sveit-
arstjórnum landsins og í lands-
málunum og gegna því mikilvægu
lýðræðislegu hlutverki hver og
einn hvort sem er í sveitarstjórn-
um landsins í landsmálunum eða
almennt í þjóðfélagsumræðunni.
Meðal annars þess vegna skipt-
ir miklu máli vægi vinstri og hægri
ása í stjórnmálum því allt þar á milli
verður alltaf erfiðara að henda reið-
ur á, það hefur sagan kennt okkur.
Niðurstaða mín er því sú að heil-
brigð og gagnrýnin stjórnmála-
umræða er lýðræðinu ekki bara holl
heldur líka nauðsynleg og vinstri
og hægri lifir áfram í nútímasamfé-
lagi þrátt fyrir tilraunir til að aftengja
þann pólitíska veruleika og útvatna
og sykurhúða alla samfélagslega
umræðu. n
„Er hann til vinstri,
hægri eða miðju
eða sitt lítið af hverju?
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Kjallari
Myndin Leit Kona fannst látin í Bleiksárgljúfri í Fljótshlið á miðvikudag. Samferðakona hennar var ófundin þegar blaðið fór í prentun. Umfangsmikil leit hefur staðið yfir, meðal annars á flatlendinu við Markarfljót. Mynd SigtRygguR ARi
1 Hröpuðu til dauða eftir ástarfund á svölum
Ungt par hrapaði til dauða eftir að hafa
stundað kynlíf á svölum á sjöttu hæð
í fjölbýlishúsi í Deptford í Lundúnum á
þriðjudag.
14.119 hafa lesið
2 Hrunið ekki Sjálfstæðis-flokknum að kenna
Benedikt Jóhannesson, stofnandi stjórn-
málaaflsins Viðreisnar, telur Sjálfstæð-
isflokkinn ekki bera höfuðábyrgð á hruni
íslenska fjármálakerfisins. Hann túlkar
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis ekki
á þá leið að hans gamli flokkur og þeir
stjórnmálamenn sem létu undir höfuð
leggjast að setja viðskiptalífinu skorður,
séu stóru sökudólgarnir í hruninu.
11.877 hafa lesið
3 Kim gat ekki stillt sig um að birta eina fjölskyldu-
mynd
Hjónavígsla Kim Kardashian og Kanye
West fór fram í í Flórens fyrir skemmstu
og voru aðeins birtar nokkrar opinberar
ljósmyndir frá brúðkaupsdeginum. Á
þriðjudag gat Kim hins vegar ekki stillt
sig um að birta eina slíka en um er að
ræða brúðkaupsmynd af fjölskyldunni
þar sem Kanye heldur á tæplega eins árs
gamalli dóttur þeirra, North.
8.330 hafa lesið
4 Kennari við Verkmennta-skólann á Akureyri varar
við múslimavæðingu
Kennari við Verkmenntaskólann á
Akureyri er í hópi þeirra sem vara við
múslimavæðingu Íslands. Þetta kemur
fram í Akureyri Vikublað þar sem kemur
fram að skólameistari Verkmenntaskól-
ans á Akureyri ætli að aðhafast vegna
ummæla kennarans, sem heitir Elías
Þorsteinsson.
8.292 hafa lesið
5 Orðaði svarið óheppi-lega: „Auðvitað olli
almenningur ekki hruninu“
Benedikt Jóhannesson, stofnandi stjórn-
málaaflsins Viðreisnar, segist hafa orðað
svör sín við spurningum DV í gær óheppi-
lega, enda hefði
hann átt að svara
mun ítarlegar
en hann gerði.
Auðvitað hafi
almenningur ekki
valdið hruninu heldur fyrst og fremst
auðjöfrar sem tóku geysilega áhættu og
lögðu meira undir en þeir áttu.
7.506 hafa lesið
Mest lesið
á DV.is
Ummæli mannsins
eru alveg forkastanleg
Jón Steinar gunnlaugsson segir meðdómara hafa fordóma gagnvart embætti sérstaks saksóknara. - Morgunútvarp Rásar 2
Þetta var
misskilningur
Myndirnar eru
áhrifamiklar
Ásta Kristjánsdóttir myndaði tilfinningar brotaþola. - DVPétur Sigurgunnarsson segir spjaldtölvur ekki bara fyrir Hafnfirðinga. - DV