Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Page 41
Helgarblað 13.–16. júní 2014 Skrýtið Sakamál 41
Lagði líkið
sér til munns
Þrjátíu og sjö ára karlmað-
ur frá Tennessee í Bandaríkjun-
um, Gregory S. Hale, hefur verið
ákærður fyrir morð og illa meðferð
á líki. Hale er grunaður um að hafa
myrt kunningjakonu sína, Lisu
Marie Hyder, í litlu þorpi í sveitum
Tennessee. Að því er Huffington
Post greinir frá sundurlimaði Hale
lík Lisu og lagði hluta af því sér til
munns. Haft er eftir saksóknar-
anum í málinu, Mickey Lane, að
málið hafi komið flatt upp á alla.
Þannig hafi hann starfað við sak-
sóknaraembættið frá áttunda ára-
tug liðinnar aldar og aldrei séð
neitt þessu máli líkt. Hale er nú í
fangelsi og verður þar að öllum
líkindum næstu áratugina.
Hraunaði yfir
konuna í svefni
Óvenjulegt mál kom til kasta lög-
reglunnar í Bozeman í Montana í
Bandaríkjunum á dögunum. Það
varðaði bálilla konu sem réðist á
kærasta sinn eftir að hann talaði
illa um hana upp úr svefni. Réðist
konan á manninn með haglabyssu
og lét höggin dynja á honum.
Maðurinn, sem átti sér einskis ills
von, reyndi að flýja en kærastan
elti hann út úr húsi þeirra og braut
meðal annars framrúðuna í bíl
hans og sprengdi dekk. Konan var
handtekin og færð í fangageymslu.
Kærastinn slasaðist ekki illa.
Peningaþvottur
af bestu gerð
Tveir kínverskir karlmenn hafa
verið dæmdir í fangelsi fyrir að
kaupa tíu tonn af erlendri smá-
mynt, hreinsa hana og selja hana
svo aftur til upprunalandsins.
Myntin sem um ræðir hafði verið
tekin úr umferð vegna skemmda
og send til Kína þar sem hún átti
að fara í endurvinnslu. Keyptu
mennirnir myntina fyrir litla fjár-
hæð og græddu fúlgur fjár þegar
þeir seldu hana aftur til baka.
Annar mannanna, Liang Enmei,
sem er forngripasali, var dæmd-
ur í sex ára fangelsi vegna málsins
en hinn maðurinn, Wang Chuwei,
var dæmdur í tveggja ára fangelsi.
Enmei réð Chuwei í vinnu til sín
og fól honum að hreinsa myntina
og láta hana líta út eins og nýja.
Chuwei sagðist ekki hafa gert sér
grein fyrir því að hann væri að gera
eitthvað rangt. Í frétt Daily Mail
er haft eftir kínverskum yfirvöld-
um að þau vilji ekki greina frá því
hvaðan myntin kom. Fleiri samb-
ærileg mál hafa komið upp í Kína
á undanförnum árum. Þannig
voru þrír dæmdir í fangelsi ekki
alls fyrir löngu fyrir að endurvinna
og selja erlenda mynt að upphæð
rúmlega tveggja milljarða króna.
Í
lok mars, árið 2002, hvarf Janelle
Patton, 29 ára framkvæmdastjóri
veitingastaðar, á Norfolk-eyju í
Kyrrahafi, í um 1.600 kílómetra
fjarlægð frá Ástralíu.
Hvarf Janelle markaði upphaf
máls sem kom eyjaskeggjum, 1.800
að tölu, í opna skjöldu því flestir
töldu sig búa í paradís, þar sem of-
beldisglæpir voru fátíðir.
Því var von að íbúum eyjarinnar,
sem margir hverjir eru afkomendur
uppreisnarseggja af skipinu HMS
Bounty, brygði við þau tíðindi
að unga konan, sem hafði sést á
öðrum enda eyjunnar í gönguferð á
páskadag, 31. mars, væri horfin.
Janelle Patton fannst síðar sama
dag, látin á hinum enda eyjarinnar,
við Cockpit Waterfall Reserve, og
hafði líkinu verið vafið í svart plast.
Varnaráverkar
Janelle hafði verið stungin 64 sinn-
um, mjaðmabein hennar var brotið
sem og annar ökklinn. Höfuðkúpan
var brákuð og á höndum Janelle voru
áverkar sem bentu til þess að hún
hefði barist hetjulega fyrir lífinu.
Rannsóknarlögreglumenn komu
til eyjunnar frá Canberra og tóku
stjórn rannsóknarinnar í sínar
hendur. Fyrsta skrefið sem þeir tóku
var að taka fingraför af öllum íbúum
eyjunnar, á aldrinum 15 ára til sjö-
tugs.
Janelle Patton hafði komið til
Norfolk-eyju tveimur árum fyrr,
frá Sidney, og var ekki vinsæl með-
al allra sem til hennar þekktu. Ein-
hverjum var meira í nöp við hana
en öðrum og áður en langt um leið
hafði lögreglan nöfn nokkurra sem
ástæða þótti til að kanna nánar.
Erfið rannsókn
En þrátt fyrir allt og allt var rann-
sóknin á morði Janelle erfið og í
reynd dró ekki til tíðinda fyrr en 1.
febrúar 2006. Þá var maður að nafni
Glenn Peter Charles McNeill, 28 ára
kokkur frá Nýja-Sjálandi, handtek-
inn.
Hann hafði verið á Norfolk-eyju
þegar Janelle var myrt, en snúið til
síns heima í Nelson á South Island í
Nýja-Sjálandi árið 2004 og tekist að
forðast arm laganna allt þar til hann
var handtekinn í Nelson.
Hann var að lokum framseld-
ur til Norfolk-eyju og ákærður fyrir
morðið á Janelle. Þar ku hann hafa
sagt að hann hefði fyrir slysni ekið á
Janelle í marslok 2002, en síðar dró
hann þá frásögn til baka.
Erfitt að mynda kviðdóm
Það reyndist erfiðleikum háð að
mynda kviðdóm, margir höfðu þekkt
fórnarlambið og slíkt hið sama mátti
eflaust segja um Glenn en það hafð-
ist að lokum.
Kviðdómarar voru upplýstir um
að Glenn hefði játað fyrir lögreglu
að hafa ekið á Janelle og farið í kerfi
og hent henni í farangursrými bif-
reiðar sinnar.
Síðar þegar Janelle komst til með-
vitundar hefði hann banað henni
með hníf. Sjálfur fullyrti Glenn að
hann hefði ekkert með morðið að
gera: „Ég banaði ekki Janelle Patt-
on“, „Ég nam hana ekki á brott“, „Ég
sá Janelle Patton ekki þennan dag“.
Sagðist Glenn ekki muna hvað
hann hefði sagt lögreglunni, hann
hefði verið við slæma heilsu.
Fingraför
En fingraför Glenns fundust á plast-
inu sem vafið hafði verið um lík Jan-
elle og fleiri sönnunargögn fund-
ust þar sem hann hafði búið á þeim
tíma, sem og í bifreið hans.
Hinn 9. mars 2007 komst kvið-
dómur að niðurstöðu. Glenn var
fundinn sekur og fékk lífstíðardóm.
Hann áfrýjaði dómnum í maí 2008,
en áfrýjuninni var vísað frá og fyrri
dómur stóð.
Glenn nýtur þess vafasama
heiðurs að hafa verið fyrsti maður-
inn á Norfolk-eyju sem kærður var
fyrir morð síðan árið 1893. n
n Janelle hvarf í gönguferð n Lík hennar fannst síðar vafið í svartan plastdúk
MORÐ Í PARADÍS
„Ég banaði
ekki Janelle
Patton
Janelle Patton Var
myrt á Norfolk-eyju, sem
að mati eyjaskeggja er
nánast paradís.
Glenn McNeill
Sagðist ekki hafa séð
Janelle Patton daginn
sem hún var myrt.
Býður upp kjól svikullar eiginkonu
Segir kjólinn hentugan fyrir svikulan og undirförlan lífsförunaut
Á
strali, sem varð fyrir því
að giftast konu sem hélt
fram hjá honum, hefur sett
brúðkaupskjól konunnar
á uppboð. Maðurinn, 32 ára íbúi
í Sidney, lýsir kjólnum á kostu-
legan máta í auglýsingunni. Hann
segir að hann hafi sannað gildi sitt
sem hentugur kjóll fyrir kvenkyns
lífsförunaut sem sé svikull, fjöl-
þreifinn og undirförull. Hann sé
tilvalinn og hafi sannað gildi sitt
sem hentugur kjóll fyrir ótrúar
konur sem haldi fram hjá eigin-
mönnum sínum.
Auglýsingin hefur vakið nokkra
athygli og meira en 200 þúsund
hafa skoðað hana, þegar Orange
News greindi frá málinu í vik-
unni. Þegar höfðu borist tilboð
upp á nokkur hundruð dollara. Í
auglýsingunni segir: „Ætlarðu að
gifta þig bráðum? Stendur ekki til
að vera heiðarleg? Hyggstu sofa
hjá besta vini eiginmanns þíns?“
stendur í auglýsingunni en maður
að nafni Dan Campbell setti hana
inn fyrir vin sinn í ástarsorg. Sá
sem kaupi kjólinn geti vænst að
hámarki tveggja ára heilbrigðs
trúnaðarsambands. Vinurinn hef-
ur eftir þeim brotna að hann sé í
öngum sínum eftir svikin. Konan
hans fyrrverandi búi nú hamingju-
söm með einum besta vini hans.
Viðbrögðin við auglýsingunni hafi
hins vegar létt honum lundina. n
baldur@dv.is
Falleg Kate Middleton,
hertogaynja af Wales,
hefur ekki orðið uppvís
að því sem Ástralinn
varð fyrir.