Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Qupperneq 42
Helgarblað 13.–16. júní 201442 Lífsstíll
Gæludýr fræga fólksins
n Sjáðu bestu vinina n Gæludýr eru flestra manna hugljúfi n Ómissandi fjölskyldumeðlimir n Skemmtileg nöfn
Að hafa dýr inni á heimilinu getur verið upplífgandi
og skemmtilegt. Það er sömuleiðis þó nokkur skuld-
binding. Eigendur taka yfirleitt ástfóstri við dýrin sín
og verða þau gjarnan hluti af fjölskyldunni sem ekki er
unnt að vera án. DV hafði samband við nokkra þekkta
Íslendinga sem sögðu okkur frá gæludýrunum sínum.
salka@dv.is
H
ann er mikill gleðigjafi,“
segir Edda Sif Pálsdóttir
dagskrárgerðarkona um
hundinn sinn Fróða. Hann
er af tegundinni Bichon Frise og
er fjögurra og hálfs árs. Hann býr
með Eddu og kærastanum henn-
ar en sækir þó mikið í félagsskap
hunds foreldra Eddu.
Fróði er mikið ljúfmenni. „Hon-
um finnst náttúrlega mjög gaman
að vera úti að hlaupa og leika sér.
Svo er hann líka mjög kelinn og
gæfur. Vill rosa mikið bara vera í
hálsakotinu hjá manni og kúra og
hafa það notalegt.“
Edda Sif segist nánast alltaf hafa
átt hund. „Ég gæti eiginlega ekki án
þess verið.“
Þau Fróði fara í hið minnsta í
tvær göngur á dag en nákomnir
Eddu fara gjarnan með Fróða í
lengri göngur, eins og til dæmis upp
á Esju.
„Hann er algjör snilli,“ segir Edda
Sif að lokum.
M
ér finnst þetta yndisleg dýr.
Þeir eru skemmtilegir og það
er gaman að hafa þá á heim-
ilinu. Þeir koma með góða
orku inn á heimilið finnst mér,“ seg-
ir söngkonan Ragnheiður Gröndal
sem á „skilnaðarbörnin“ eins og hún
kallar kettina sína; Róbert Bangsa
og Mura. Þeir enduðu í höndum
Ragnheiðar eftir skilnað eiginmanns
hennar við fyrrverandi konu hans, en
kettirnir voru upprunalega í hennar
eigu.
Róbert Bangsi, kallaður Bangsi í daglegu tali, er af
Sómala-tegund en það er loðnari útgáfan af Abyssini-
an-kattartegundinni. Hann er um tíu ára gamall en
fluttist til Ragnheiðar eftir að hann fótbrotnaði árið
2010. Í dag er Bangsi þrífættur eftir það slys. Það aftrar
honum þó ekki og sést lítið, enda afar loðinn.
Hinn köttur Ragnheiðar, Muri, er Abyssinian-köttur
og er orðinn um tólf ára gam-
all. Hún telur hann þó hvergi
nærri orðinn of gamlan. „Ég
held að Muri sé kandídat í að
slá heimsmetið í kattaaldri.
Hann er mjög sprækur og algjör
búddi. Hann er mjög líkamlega
vel á sig kominn.“
Ragnheiður segist alltaf hafa
viljað eignast kött þegar hún var
yngri en eftir að hún eignaðist
barnið sitt þá hafi ákafinn ekki
verið eins mikill. „Þá varð ég ekki alveg svona klikkuð
kattakona, eins og ég var kannski kandídat í að verða.“
„Mér finnst þetta yndisleg dýr. Þeir eru skemmtileg-
ir og það er gaman að hafa þá á heimilinu. Þeir koma
með góða orku inn á heimilið finnst mér.“
Ragnheiður telur það mjög hollt fyrir börn að alast
upp með dýrum en hún upplifir Bangsa og Mura sem
hluta af fjölskyldunni.
V
ið erum mikil
kattafjölskylda,“
segir Björgvin Hall-
dórsson sem er
mikill kattavinur en hann
er með fimm ketti á heim-
ili sínu. Sjálfur á hann
fjóra en einn er í pössun.
„Sonur minn, Krummi, er
með kött og Svala er með
tvo ketti í Los Angeles.
Við erum miklir katta-
vinir.“
Björgvin á núna þrjá
persneska ketti og einn heimiliskött.
Fjölskyldan missti nýlega einn af elstu
persunum, hann Jökul Ljónshjarta. „Þá
fengum við annan sem er núna rúmlega
eins árs. Hann heitir Markús Árelíus og
er af Mýrdalskyni.“
Sömuleiðis er Björgvin með tvo
dvergpersa sem Svala Björgvinsdóttir,
dóttir hans, skildi eftir hjá þeim þegar
hún flutti til Los Angeles. Það eru
þau Sheila og Elvis. Fjórði meðlimur
kattafjölskyldu Björgvins er loks
Emma Lína, íslenskur heimilisköttur.
Björgvin segir að kettirnir séu allir
innikisur. „Þær bara fara út á svalir,
kela, borða, fara á klósettið og leika
sér. Við erum mikið að dekra þær. Við
gerum allt fyrir þær.“
Björgin segist vera alinn upp með
kisum og alltaf haft ketti í kringum
sig. Hann segir að elsti kötturinn sem
hann hafi átt hafi orðið 22 ára. „Enda
fékk hún bara rækjur og humar.“
Þrífættur skilnaðarköttur
Fimm kettir á heimilinu
„Hann er algjör snilli“