Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Page 43
Lífsstíll 43Helgarblað 13.–16. júní 2014
Gæludýr fræga fólksins
n Sjáðu bestu vinina n Gæludýr eru flestra manna hugljúfi n Ómissandi fjölskyldumeðlimir n Skemmtileg nöfn
S
teinþór Hróar Steindórsson, betur þekktur sem
Steindi Jr., á franskan bolabít sem heitir Pulla.
Hundurinn er tæplega eins árs en þegar blaða-
maður náði á Steinda var að eiga sér stað afdrifa-
ríkur dagur hjá Pullu, hún
byrjaði á blæðingum þann
morguninn. „Þetta útskýr-
ir alla þessa greddu sem
er búin að vera í götunni,“
segir Steindi um þetta
breytingarskeið Pullu.
Steindi segist hafa sett
Pullu í bleiu og nærbuxur
til að halda þessu í skefj-
um. „Við erum búin að
skella henni í naríur.“
Spurður um hæfileika
Pullu segir Steindi Jr. að
hún reki mikið við. „Franskir bolabít-
ar reka mikið við, en hún rekur alveg sérstaklega mikið
við, meira en tegundin. Fyrst fannst okkur þetta mjög
skemmtilegt en í dag drögum við bolinn bara upp fyrir
haus á hálftíma fresti.“
Steindi segir að hann og Pulla taki nokkra spretti
saman á hverjum degi og hangi mikið saman. Pullu finnst
einnig mjög gaman að grilla. „Stundum nennir maður
ekkert að grilla en þá gerir maður það bara fyrir hana.“
H
undarnir Stjarna og Sesar búa í
góðu yfirlæti hjá Lindu Péturs-
dóttur á Álftanesinu þar sem þeir
hafa góðan aðgang að útiveru en
stór garður er við húsið og fjara rétt hjá.
„Þetta er algjör paradís fyrir þá.“
Sesar er chiuwava-hundur sem Linda
tók í fóstur frá Bryndísi Schram en Snæ-
fríður dóttir hennar átti hundinn. Stjarna
er enskur Cocker Spaniel í eigu Ísabellu,
dóttur Lindu, sem hefur haft hunda á
heimilinu frá því að hún fæddist.
Linda segir að fólk mætti taka hunda
til fyrirmyndar þegar kemur að hugarfar-
inu enda séu þeir alltaf í núinu. „Stjarna
er alltaf svo glöð. Hún vaknar í brjáluðu
stuði á hverjum einasta morgni. Það er
alltaf svo gaman hjá henni,“ segir Linda
og vildi óska að hún gæti tileinkað sér að
vera í núinu eins og Stjarna. „Hún er alltaf
hamingjusöm.“
„Henni finnst hún, held ég, ekki beint
vera hundur,“ segir Linda. Hún hefur átt
marga hunda yfir ævina en segist aldrei
hafa átt hund eins og Stjörnu. Þær stunda
meðal annars saunaböð saman en Linda
fer á hverjum degi í saunu og er það orðin
hefð að Stjarna fari með. „Ég var að pæla í
því fyrst hvort þetta væri í lagi, en dýr gera
hvorki né neyta þess sem er vont fyrir þá.
Þannig að þetta er í lagi.“ Stjarna hugleiðir
einnig með Lindu á hverjum morgni.
Linda segist vera með báða hundana
á hráfæði og hún hafi séð mikla líkam-
lega breytingu á þeim eftir að þeir byrj-
uðu á því. Feldurinn er betri og þeir eru
í réttu holdafari. Sérstaklega má sjá mun
á Sesari. „Hann var með gigt, vaggaði og
var of feitur þegar ég tók við honum en
nú hleypur hann út um allt og er eins og
hann sé genginn í barndóm.“
Hráfæði og saunaböð
Hún rekur mikið viðKarlkyns fiðraður Birgitta Haukdal
B
irgitta er reyndar karl,
þannig að það er hann
Birgitta Haukdal,“ segir
Sunna Valgerðardóttir,
fréttakona á RÚV, um karlkyns
páfagaukinn sinn, Birgittu
Haukdal. Þegar Sunna eignað-
ist Birgittu hélt hún að gárinn
væri kvenkyns. Henni fannst
óþarfi að skipta um nafn þegar
hún áttaði sig á raunverulegu
kyni fuglsins. „Ég er svo kven-
leg að ég hélt að þetta væri
kerling.“
Sunna segir að sonur sinn
sé mikill Eurovision-aðdáandi
og þaðan komi nafnið á páfa-
gauknum. „Við áttum Heru
Björk en hún dó þannig að við
keyptum Birgittu Haukdal í
staðinn.“
Birgitta Haukdal er eins
árs og vekur mikla lukku í fjöl-
skyldunni.
Í nærbuxum Hér er Pulla í
nærbuxunum sínum.