Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Qupperneq 60
Helgarblað 13.–16. júní 201460 Fólk
Rowland
er ólétt
Söngkonan Kelly Rowland á von
á barni. Þetta tilkynnti hún ný-
lega í gegnum Instagram með því
að deila þar mynd af skóm eigin-
manns síns, Tim Witherspoon, við
hlið barnaútgáfu af sömu skóm.
Tim og Kelly giftu sig í síðasta
mánuði á Kostaríka. Að eigin sögn
var brúðkaupið fullkomið. Það
mætti því segja að allt leiki í lyndi
hjá parinu þessa dagana.
Kelly Rowland er þekktust fyrir
að vera meðlimur í stúlkasveitinni
Destiny's Child en í dag er hún að
vinna að söngverkefni fyrir Pepsi.
Frægar
Miley Cyrus og
Selena gomez
Þau eru ófá skiptin þar sem ástarmál virð-
ast valda vinslitum en Miley Cyrus og Selena
Gomez voru áður góðar vinkonur
frá tíma sínum hjá Disney. Eftir
að Justin Bieber á að hafa haldið
framhjá Selenu með Miley Cyr-
us hófst stríð þeirra á milli. Sel-
ena fékk sameiginlegar vinkonur
þeirra, Demi Lovato og Taylor Swift,
með sér í lið og reyna þær hvað eftir ann-
að að varpa skugga á Miley. Meðal annars hafa
þær gert samninga við skemmtistaði um að
leyfa Miley ekki að koma fram þar. Miley lætur
sitt ekki eftir liggja í baráttunni og birtist fyrir
stuttu á tónleikum með eftirmynd af Selenu á
pappaspjaldi.
Mariah Carey
og Nicki Minaj
„Þetta var eins og að fara í vinnuna alla
daga í helvíti með Satan,“ sagði Mariah
Carey spurð um American Idol og sam-
starfskonu sína Nicki Minaj. Mariah
Carey hefur látið ljót orð falla um
Nicki í viðtölum og jafnvel spurt
„hver?“ þegar hún er spurð út í
samstarfskonu sína, til að vísa til
þess að fyrir sér sé hún ósýnileg.
Nicki Minaj hefur sést rjúka
af setti og kalla „ég var búin að
segja ykkur það, ég ætla ekki
að sætta mig við hennar há-
tign þarna“. Dramað á milli
þeirra er hvergi nærri búið
og segist Mariuh líða óör-
uggri í kringum Minaj og hef-
ur hún beðið um aukið öryggiseftirlit.
Cheryl Cole og Charlotte Church
Stríð söngkvennanna hófst eftir að Cheryl ásakaði Charlotte um að hafa stolið lagi frá sér.
Charlotte svaraði fyrir sig með því að segja að hljómsveit Cheryl, Girls Aloud, væru „fimm
hundar án kjarks“. Einnig sagði Charlotte að Cheryl hefði ekkert bein í nefinu vegna þess
að hún byrjaði aftur með eiginmanni sínum, sem hélt framhjá henni. Þegar þær loksins
hittust eftir þessi orðaskipti sagði Cheryl að hún hefði orðið hrædd við Charlotte.
n Eins og að fara í vinnuna með Satan n Ástarmál ollu vinslitum
Katie Price og Kelly
Brook
Það sauð upp úr
milli fyrirsætnanna
þegar Kelly Brook
tók saman við fyrr-
verandi eiginmann
Katie Price fyr-
ir nokkrum árum,
Danny Cipriani.
Katie kallaði Kelly
„kvígu“ fyrir vikið og vísaði með því til þyngd hennar.
Þeim virðist ómögulegt að nefna hvor aðra í viðtölum eða
á twitter án þess að allt fari í bál og brand, þátt fyrir að
Kelly og Danny séu hætt saman. Katie minnist enn reglu-
lega á að Danny hafi haldið framhjá henni en Kelly hef-
ur skorað hana á hólm og krafist þess að þær ræði þetta í
persónu í staðinn fyrir að eiga í internetstríði.
Ráðist á bestu
vinkonu Kim
Ráðist var á bestu vinkonu Kim
Kardashian, Brittny Gastineau,
á hótelherbergi í vesturhluta
Hollywood nú nýverið. TMZ
greinir frá því að Brittny, sem er
fyrrverandi raunveruleikastjarna,
hafi verið á hótelinu ásamt karl-
manni sem hafi gengið svo illi-
lega í skrokk á henni að hún end-
aði á spítala.
Læknarnir hringdu á lög-
reglu sem síðan ræddu við hana
um málið. Heimildir herma að
Brittny sé búin að ráða sér lög-
fræðing í von um að leita réttar
síns.
Kærasti Brittny, götulistamað-
urinn Marquis Lewis, var einnig á
hótelinu en hann er ekki grunað-
ur um árásina. Hann er líkamlega
illa á sig kominn eftir hnéaðgerð.
óviNKoNur
Gerir aðdáendur
forvitna
Justin Bieber setti inn mynd af
sér og fyrrverandi kærustu sinni,
Selenu Gomez, á Instagram-að-
gang sinn á dögunum. Und-
ir myndinni stóð: „Ást okkar er
skilyrðislaus.“ Stuttu seinna var
myndin hins vegar horfin. Bieber
setti líka inn mynd af Gomez í
síðasta mánuði þar sem stóð:
„Glæsilegasta prinsessa í heimi.“
Þetta hefur valdið aðdáendum
Biebers miklu hugarangri enda
mikið verið spáð í það hvort þau
muni taka saman aftur. Margir
aðdáendur þrá það heitast að
þau taki saman á ný enda þóttu
þau fullkomin saman. Sjálf hafa
þau ekkert viljað gefa upp um
það hvort þau taki nokkurn tím-
ann saman á ný.
Adam Levine biðst afsökunar
Tónlistarmaðurinn vill laga samviskuna áður en hann kvænist
T
ónlistarmaðurinn Adam
Levine vill laga samviskuna
áður en hann gengur í það
heilaga með fyrirsætunni
Behati Prinsloo. Samkvæmt heim-
ildamönnum amerísku slúður-
pressunnar hefur Levine, sem er
söngvari Maroon 5 og dómari og
lærifaðir í raunveruleikaþættinum
The Voice, beðið um fyrirgefningu
fyrrverandi kærasta sinna.
Í tímaritinu Us Weekly kemur
fram að Levine hafi beðið ofurfyrir-
sæturnar Önnu V. og Ninu Agdal
afsökunar á því hvernig hann hag-
aði sér á stefnumótum með þeim.
„Hann hefur beðið þær afsökun-
ar á því hvernig hann kom fram við
þær,“ sagði ónefndur heimildamað-
ur við tímaritið og bætti við: „Þeim
gæti hins vegar ekki verið meira
sama um hans samvisku.“
Sagan segir að söngvarinn hafi
slitið sambandinu við Agdal með
því að hætta að svara símtölum
hennar. Hann á einnig að hafa sagt
henni frá trúlofun sinni og Behati í
gegnum sms-skilaboð.
Levine, sem var valinn kyn-
þokkafyllsti karlmaður á lífi af
tímaritinu People, er staðráðinn
í að láta samband sitt við Behati
ganga og ætlar að láta húðflúra nafn
hennar á líkama sinn. „Hann ætlar
að tattúvera nafnið hennar á brjóst
sitt svo ást þeirra fari ekki fram hjá
neinum,“ sagði ónefndur heimilda-
maður í Us Weekly.
Tónlistarmaðurinn er 35 ára en
Prinsloo 24 ára Victoria's Secret-
fyrirsæta sem ólst upp í Afríku.
Hún var aðeins 16 ára þegar stofn-
andi Storm Model Management,
Sarah Doukas, uppgötvaði hana en
Doukas er sú sem gerði Kate Moss
fræga á sínum tíma. n indiana@dv.is
Verðandi hjón Rúmlega tíu ára aldursmunur er á kærustuparinu.