Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Side 62
Helgarblað 13.–16. júní 201462 Fólk
J
á, hann er snúinn aftur. Ég fann
að þetta var að verða vinsælt aft-
ur svo ég dreif bara í þessu. Ég hef
alltaf átt búninginn, tennurnar,
gleraugun og allt,“ segir Magn-
ús Ólafsson leikari, maðurinn að baki
einni frægustu grínpersónu lands-
ins, Bjössa bollu. Maggi hefur endur-
vakið Bjössa bollu af værum blundi
og ætlar að skemmta víða um land
sem þessi merka grínfígúra sem svo
sannarlega á sess í hjarta þjóðarinnar.
Grínistar þroskast seinna
Magnús, sem er orðinn 68 ára gam-
all, hefur engu gleymt. „Ég er orðinn
eldri borgari, hættur að vinna og
það er bara skemmtilegt að vera aft-
ur kominn í þetta. Maður verður
bara ungur aftur. Það er svo gaman
að skemmta börnum, þau eru kröf-
uhörð og taka mikinn þátt. Svo er
það líka þannig með okkur grínistana
að við þroskumst seinna en aðr-
ir,“ segir hann kankvís. Athygli vek-
ur að Bjössi bolla er töluvert léttari á
sér nú heldur en þegar hann var síð-
ast í sviðsljósinu. „Þegar ég byrjaði
fyrst á Bjössa á sínum tíma þá var
hann tággrannur. Síðan þegar ég fór
að vinna óreglulegan vinnutíma og
borða of mikið þá þyngdist ég. Síðan
tók ég mér taki og grennti mig. Nú er
þetta náttúrlega miklu léttara.
Hét fyrst Pétur prakkari
Bjössi bolla varð fyrst til í Sumar-
gleðinni 1983. Þá hét hann reynd-
ar Pétur prakkari. „Við Hemmi Gunn
lékum skets í Sumargleðinni þar
sem Hemmi var kennarinn og ég var
Pétur prakkari. Eftir sumarið sá ég
hvað hann var vinsæll og hafði sam-
band við Stundina okkar og spurði
hvort þeir vildu ekki taka upp atriði
með honum. Við tókum það upp
og svo eftir upptökur hringdi fram-
leiðandinn í mig og spurði hvað
hann ætti að heita. Þá datt mér í hug
Bjössa-nafnið út frá teiknimynda-
sögu sem var í Æskunni og var held ég
norsk. Þannig að nafnið var eiginlega
bara tilviljun.“
Vinsældirnar komu á óvart
Maggi segir það hafa komið sér á
óvart hversu vel Bjössi höfðaði enn til
yngri kynslóðarinnar. „Þau sem voru
börn þegar Bjössi var að byrja eru nú
orðin fullorðin og eiga börn. Ég keypti
þættina sem ég gerði fyrir sjónvarpið
af þeim og prófaði að setja inn á leig-
urnar hjá Vodafone og Símanum. Það
sló í gegn og þess vegna ákvað ég að
nýta það að áhuginn var til staðar.
Þetta er svo skemmtilegt.“ Maggi seg-
ist oft í gegnum tíðina hafa fengið fyr-
irspurnir um að skemmta sem Bjössi
bolla en ekki látið undan fyrr en nú.
„Það hefur oft verið hringt í mig og ég
beðinn um að mæta í afmæli og ann-
að en ég hef ekki gert það,“ segir hann.
Þorgeir með í för
Maggi setur stefnuna á að ferðast
um landið með Þorgeiri Ástvalds
og troða upp sem Bjössi bolla. „Við
erum að setja saman prógramm,
við Þorgeir, og vonumst til að
skemmta á bæjarhátíðum og svona
viðburðum í sumar ef einhver
vill fá okkur. Þorgeir spilar und-
ir hjá Bjössa því hann syngur mik-
ið með börnunum sem taka und-
ir.“ Hann segir þá rétt vera að koma
sér af stað og vonast til þess að við-
tökurnar verði góðar. Reyndar er
Bjössi bolla aðeins farinn að láta
sjá sig. Hann skemmti til að mynda
í steggjun um síðustu helgi og svo
mætti hann óvænt í útvarpsþáttinn
Virka morgna á Rás 2 á miðvikudag
þar sem hann fór á kostum. „Ef ein-
hver vill fá Bjössa þá er umboðs-
maðurinn hans Magnús Ólafsson
leikari og hann er í símaskránni,“
segir hann spenntur fyrir sumrinu
fram undan. n
„Þetta er svo
skemmtilegt“
Bjössi bolla snúinn aftur
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Þrír góðir Bjössi mætti í stúd-
íóið til þeirra Sólmundar Hólm
og Andra Freys Viðarssonar
sem stjórna þættinum Virkum
morgnum. Mynd SiGtryGGur Ari
„Gleði, söngur, glens og gaman“
Helgi Björns tjaldar öllu til á tónleikum í Hörpu
Þ
að verður bara gleði, söng-
ur, glens og gaman,“ seg-
ir söngvarinn síkáti, Helgi
Björnsson, sem stendur fyr-
ir tónleikum í Eldborgarsal
Hörpu, mánudaginn 16. júní. Öllu
verður tjaldað til en Helgi hefur feng-
ið til liðs við sig vini sína í Reiðmönn-
um vindanna og fleiri góða lista-
menn.
„Við verðum með stóra sveit með
okkur og síðan koma hestamennirn-
ir og leikararnir, Jóhann Sigurðarson,
Hilmir Snær og Örn Árna, til að og
syngja og sprella,“ segir hann.
Helgi er spenntur fyrir tónleikun-
um en þetta er ekki í fyrsta skipti sem
hann heldur tónleika daginn fyrir
þjóðhátíðardaginn. „Ég hélt tónleika
fyrir tveimur árum en datt svo út í
fyrra því ég var í tökum á mynd,“ seg-
ir hann. Í anda þjóðhátíðardagsins
verður aðaláhersla á lög sem þjóð-
in þekkir. „Við sækjum í sönglagaarf
þjóðarinnar, þetta eru lög sem all-
ir kunna því þau nánast fæðast með
DNA-menginu okkar,“ segir hann og
nefnir þar nokkur þjóðþekkt. „Fram í
heiðanna ró, Lindin tær, Vinakveðja,
Sveitapiltsins draumur og Ég vil fara
upp í sveit,“ segir Helgi dreyminn.
„Þetta eru svona lög sem fylgja þjóð-
inni og allir þekkja.“
Það er nóg um að vera hjá Helga
sem ætlar þó að taka sér frí í júlí.
„Ég reyni alltaf að taka mér frí þann
mánuðinn og gera sem minnst.
Mér sýnist stefna í það núna en
svo kem ég endurnærður og spila á
þjóðhátíð.“ n viktoria@dv.is
Spenntur Helgi
ætlar að syngja
þekktar dægurlaga-
perlur í Hörpunni.
Mynd SiGtryGGur Ari
Ólétt í æfingum
Ásdísar Ránar
Margrét Lára Viðarsdóttir fylgist
greinilega með Heimi Ísdrottn-
ingarinnar, nýjasta þætti Ásdísar
Ránar, en hún sást gera æfingarn-
ar sem Ásdís kennir í þáttunum á
Kaplakrikavelli. Margrét er ólétt
en lét það ekki aftra sér frá því að
prófa æfingarnar og sitja fyrir á
myndum hjá vinkonu sinni, Silju
Úlfarsdóttur hlaupakonu. Silja
birti myndina á Instagram.
Margrét er komin 40 vikur á
leið en virðist ekki láta það stöðva
sig í að halda sér í formi. Þetta er
hennar fyrsta barn.
Þakkar konunni
stuðninginn
Eiður Smári Guðjohnsen er í ein-
lægu viðtali í fylgiriti Viðskipta-
blaðsins, Eftir vinnu, sem kom
út á fimmtudag. Þar ræðir hann
til dæmis hversu þétt eiginkona
hans hafi staðið við bakið á hon-
um í gegnum ferilinn. „Þegar
ég var pirraður eftir leiki þá var
Ragga sú sem tók á móti því og
reyndi að fá mann til að dreifa
huganum. Hún á jafn mikið hrós
skilið fyrir minn feril eins og ég,“
segir Eiður í viðtalinu. Edda Her-
mannsdóttir tók viðtalið en hún
er komin aftur á Viðskiptablað-
ið eftir stutt stopp á sjónvarps-
stöðinni sem núna er hætt. Edda
er vel kunnug Eiði og fjölskyldu
en hún var „aupair“ hjá fjöl-
skyldunni fyrir átta árum síðan.
Högni með
nýja kærustu
Ástin blómstrar með hækkandi
sól en Högni Egilsson og Snæ-
fríður Ingvarsdóttir eru nýtt par.
Högni er best þekktur sem Högni
í Hjaltalín en einnig sem með-
limur hljómsveitarinnar GusGus.
Snæfríður er 22 ára dansari og
nemi við Listaháskóla Íslands þar
sem hún nemur leiklist. Leiklist-
aráhugann hefur hún ekki langt
að sækja en hún er dóttir leik-
arahjónanna Ingvars E. Sigurðs-
sonar og Eddu Arnljótsdóttur.