Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2014, Síða 64
Helgarblað 13.–16. júní 2014
45. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Kattaveiðarar í
Rottuholti?
Safnar
túbusjónvörpum
n Í dag hafa flest heimili losað
sig við gömlu túbusjónvörpin,
enda plássfrek og úrsérgengin,
og skipt yfir í flatskjá. Tónlistar
maðurinn Atli Bollason er þó
ekki eins og flest fólk en hann
hefur nú hafið söfnun á túbu
sjónvörpum. Á fimmtudag setti
hann inn á sölutorg Bland.is
auglýsingu þar sem hann óskar
eftir túbusjónvörpum. „Ef þú
átt gamalt sjónvarp sem enginn
er að nota þá skal ég
rúlla við hjá þér
og sækja það.
Þau þurfa
ekki að vera
í topplagi en
þó þannig að
það kvikni
á þeim,“
skrifar
Atli. Óvíst
er hvað
hann
hyggst
gera við
þau.
Rottuveiðarar í Kattholti
Rekstrarstjóri hvetur alla til að fá sér kött
R
ottugangurinn í Reykjavík ríð
ur ekki við einteyming þessi
dægrin. Rottur af öllum stærð
um og gerðum ráfa nú blygð
unarlaust um götur og stræti mið
bæjarins, narta í rusl og bíta börn.
Meindýraeyðar segja að mögulega sé
um faraldur að ræða, sér í lagi í eldri
hluta borgarinnar, og biðja íbúa og
aðra að hafa varann á. Margir hafa
lýst áhyggjum sínum vegna þessa,
í athugasemdakerfum fjölmiðla og
víðar, og spurt hvað sé til ráða. Hall
dóra Björk Ragnarsdóttir er formað
ur stjórnar Kattavinafélags Íslands og
rekstrarstjóri Kattholts. Alls 40 óskila
kettir dvelja nú í Kattholti. Þá vantar
alla nýtt heimili. „Fólk fær sér gjarnan
kött hjá okkur til að fara með út í sveit
til að veiða mýs,“ segir Halldóra og
bætir við að þeir séu einkum lunknir
í að góma hagamúsina. En hvað með
miðbæjarrottur? „Stærri kettir og öfl
ugir fara kannski í rotturnar,“ seg
ir Halldóra. Hún hvetur alla, þá sem
eru að glíma við rottugang og aðra, að
mæta í Kattholt og næla sér í kött. Þar
eru kettir af öllum stærðum og gerð
um, líka stórir og sterkir. „Við erum
með allt frá litlum kettlingum og upp í
fullvaxta eldri kisur. En það er erfitt að
segja til um þetta. Þótt einhver köttur
sé stór þá þarf hann ekki nauðsynlega
að vera rottu eða músaveiðari.“ Að
spurð hvort hugsanlega sé best að fá
sér kettling og ala upp í honum veiði
eðlið frá unga aldri, segir Halldóra: „Ég
veit það ekki. En maður hefur heyrt
sögur um að fólk hafi tamið kisurnar til
að fara á klósettið, það sá ég í blöðun
um um daginn. En það er þolinmæð
isvinna.“ n baldure@dv.is
Plága Rottugangurinn í Reykjavík hefur
vakið óhug. Lausn vandans er hugsanlega
að finna í Kattholti. Mynd ShutterStock
Hamstrar eins
og Sigmundur
n Fjölmargar fréttir RÚV um
fund á földum gögnum Sig-
mundar davíðs Gunnlaugsson-
ar í Útvarpshúsinu vöktu athygli
á fimmtudag. Þann sama dag
greindi Ómar ragnarsson frá því
á bloggi sínu að hann hafi í gegn
um árin stundað álíka hömstr
un og forsætisráðherra. „Meðal
annars ákvað ég 1995 að geyma
allt myndefni, sem tekið var af
snjóflóðinu á Flateyri, alls 55
spólur. Skemmtileg tala, sama og
hjá SDG. Þessar spólur af aðeins
einum atburði tóku þá ansi mikið
pláss, en mér
fannst 1995
engin leið til
að vinsa úr
þessu efni
einhvern hluta
þess svo vel
væri og henda
megninu,“
skrifaði
hann.
Þurfti að skipta
um nafn
n Hljómsveitin Highlands hef
ur vakið nokkra lukku upp á
síðkastið með Loga Pedro Stef
ánsson fararbroddi. Á fimmtu
dag tjáði Logi vinum sínum á
Facebook að hljómsveitin hefði
ekki mátt heita því nafni og heiti
héðan í frá Young Karin. Nafnið
vísar að öllum líkindum til söng
konu sveitarinnar ungu, Karin
Sveinsdóttur, sem Logi uppgötv
aði þegar hann dæmdi í söng
keppni í menntaskóla. Þrátt fyr
ir ítrekaðar spurningar vina gaf
Logi Pedro ekkert upp um af
hverju hljómsveitin hefði ekki
mátt heita fyrra nafni.
Í áraraðir hefur Ragnar Björnsson ehf. framleitt rúm af öllum stærðum og gerðum,
allt eftir þínum óskum. Lengd, breidd og mismunandi hæð á rúmunum eykur þægindin.
Mismunandi stífleika er hægt að velja, allt eftir þyngd þeirra sem á dýnunum hvíla.
Þú velur rétta hæð á rúmið þitt og stígur létt framúr.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn okkar.
Svíf þú inn í svefninn
RÚMDalshrauni 8 - Hafnarfirði | Sími 555 0397 | rbrum@rbrum.is| rbrum.is
ÍSLENSK HÖNNUN – ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA