Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Qupperneq 6
Helgarblað 20.–23. júní 20146 Fréttir
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
GAMMA keypti íbúða-
hótel á Hverfisgötu
Formaður Félags fasteignasala segir æ erfiðara fyrir almenning að kaupa íbúðir
E
ignarhaldsfélag í eigu sjóðs-
stýringarfyrirtækisins GAM
Management, eða GAMMA
eins og það er kallað, eignað-
ist í maí íbúðahótel á Hverfis-
götu 59. Afsalið vegna kaupa fyrir-
tækisins á fasteignunum, samtals
8 eignum, er dagsett hinn 19. maí
síðastliðinn. Félagið sem eignað-
ist íbúðahótelið heitir Eclipse fjár-
festingar slhf. GAMMA heldur því
áfram að kaupa upp eignir í miðbæ
Reykjavíkur af miklum móð og sýna
fasteignaupplýsingar mikið af nýleg-
um uppkaupum hjá fyrirtækinu.
Íbúðahótelið sem rekið er í hús-
næðinu heitir Hverfisgata Apart-
ments. Seljandinn er eignarhaldsfé-
lag sem heitir Hverfill ehf.
Lífeyrissjóðirnir fjárfesta
GAMMA er sjóðstýringarfyrirtæki
sem er meðal annars í eigu stofnanda
þess, Gísla Haukssonar, og Agnars
Tómasar Möllers. Á bak við félag-
ið eru ýmsir fagfjárfestar eins og til
dæmis lífeyrissjóðir en eignarhaldið
á eignunum sem eru í stýringu hjá
GAMMA er ekki gagnsætt þótt fyr-
ir liggi hverjir það eru sem eiga fyr-
irtækið sjálft. GAMMA stefnir í að
verða risi á fasteignamarkaðnum
í Reykjavík og nágrannabyggðum.
Sjóðir fyrirtækisins eru með um 32
milljarða króna í stýringu.
Úr 140 íbúðum í 1.200
DV greindi frá því vorið 2013 að fé-
lagið hefði keypt um 140 íbúðir í mið-
bæ Reykjavíkur, Vesturbænum og
Hlíðunum, fyrir um 4 milljarða króna.
Í samtali við DV sagði Gísli Hauks-
son, framkvæmdastjóri GAMMA, að
fasteignasjóður félagsins væri nánast
fullfjárfestur. „Hann er nánast full-
fjárfestur. Svo gott sem. Þetta er bara
lítill og nettur sjóður sem fjárfesti sér-
staklega mikið í fyrra.“
GAMMA hefur hins vegar haldið
áfram að kaupa upp íbúðir enda hef-
ur það sýnt sig að mat eigenda og
stjórnenda fyrirtækisins á fasteigna-
markaðnum í Reykjavík var rétt:
Markaðurinn var undirverðlagður.
Fasteignaverð og leiguverð í Reykja-
vík hefur rokið upp frá því fyrirtæk-
ið hóf stórfelldar fjárfestingar sínar
í íbúðum árið 2012. Ekki liggur fyr-
ir hversu margar íbúðir GAMMA á í
dag en þær gætu verið um 500.
Um undirverðlagninguna á mark-
aðnum sagði Gísli í mars í fyrra: „Við
hefðum ekki farið út í þetta nema af
því við töldum að markaðurinn væri
hagstætt verðlagður. Ég hef mikla
trú á fasteignamarkaðnum. En þetta
er samt aðallega hugsað sem öflugt
leigufélag. Við höfum verið á þeirri
skoðun að leiguverð hafi verið lágt
á Íslandi þannig að það hefur ekki
borgað sig fyrir eigendur íbúða að
leigja þær út. Leiguverð hefur verið
að þokast upp. Sjóðurinn er að horfa
allavega fimm ár fram í tímann.“
Í mars gaf Gísli Hauksson það út
að GAMMA ætlaði sér að eignast um
1.200 íbúðir alls í Reykjavík og ná-
grenni og stofna sérstakt leigufélag
utan um eignirnar. GAMMA leigir út
íbúðirnar sem fyrirtækið kaupir.
Arion fjármagnaði kaupin
Í tryggingabréfi sem hvílir á hús-
eigninni á Hverfisgötu kemur fram
að Arion banki hafi fjármagnað við-
skiptin. Á íbúðunum hvílir 100 millj-
óna króna tryggingabréf frá Arion.
Í september 2013 keypti GAMMA
56 íbúðir í þremur fjölbýlishúsum
í Vindakór í Kópavogi sem einnig
voru fjármagnaðar með láni frá
Arion banka. Seljandinn var Íbúða-
lánasjóður. Á þeim eignum hvílir
1.730 milljóna króna tryggingabréf
frá Arion. Arion hefur því fjármagn-
að viðskipti GAMMA oftar en einu
sinni.
Yfirlit yfir fasteignaeign Eclipse
fjárfestinga sýnir nýleg uppkaup á
fleiri eignum, til dæmis íbúðum á
Meistaravöllum, Snorrabraut, Æsu-
felli, Rjúpufelli og Flúðaseli. GAMMA
hefur því í auknum mæli fært sig frá
miðsvæði Reykjavíkur og til úthverfa
og nærliggjandi sveitarfélaga.
Áhyggjur vegna leiguverðs
Í viðtali við DV í mars í fyrra sagði
Ingibjörg Þórðardóttir, fasteignasali
og formaður Félags fasteignasala, að
hún hefði verulegar áhyggjur af því
að uppkaup GAMMA á fasteignum í
Reykjavík gætu haft þau áhrif að verð
á fasteignamarkaði myndi hækka.
„Við höfum verulegar áhyggjur af
þessu, við fasteignasalar, að þetta
gæti haft veruleg áhrif á verðmynd-
un á markaði. Og hvernig mun al-
menningi ganga að standa undir
slíku leiguverði?“
Spurð um hvernig hún sjái þessa
þróun á uppkaupum GAMMA í dag
segir Ingibjörg að skoðun hennar
hafi ekki breyst. Hún segir að verð
á fasteignum í miðbæ Reykjavík-
ur sé orðið mjög hátt. „Almenning-
ur, pöpullinn, á æ erfiðara með að
komast inn á fasteignamarkaðinn
og eignast íbúðir. Það eru bara ein-
hverjir fjárfestar sem eiga að eignast
húsnæðið okkar með húð og hári.
Ég sé ekki að þetta sé heilbrigður
leigumarkaður.“ n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Ég sé ekki
að þetta
sé heilbrigður
leigumarkaður
Stórtækir Stjórnendur GAMMA,
meðal annars Gísli Hauksson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, hafa verið
umsvifamiklir á fasteignamarkaði í
Reykjavík síðastliðið ár. Mynd Arnþór BIrkISSon
100 milljónir Arion banki lánaði
félagi GAMMA 100 milljónir vegna
fjárfestingarinnar í íbúðahótelinu
á Hverfisgötu.
Kostnaður jókst um 65 milljónir
E
ndanlegur kostnaður við rann-
sóknarskýrslu Alþingis um fall
sparisjóðanna liggur ekki enn
fyrir og ekki er víst hvenær
vinnu við skýrsluna verður endan-
lega lokið. Hann hefur hækkað um
65 milljónir króna síðan skýrslan var
gefin út og er nú rúmlega 672 millj-
ónir króna. Ekki er gert ráð fyrir fjár-
veitingum í hana á núverandi fjár-
lagafrumvarpi. Í skýrslunni, sem
kom út í apríl, er kostnaður sagður
vera 607 milljónir króna og var þá
miðað við þær tölur sem lágu fyr-
ir í mars. Þar af voru 355 milljón-
ir í launakostnað og 178 milljónir í
sérfræðikostnað. Í sameiginlegan
kostnað nefndarinnar með rann-
sóknarnefnd um Íbúðalánasjóð fóru
67 milljónir króna.
Þetta eru þó ekki endanlegar
tölur, eins og áður kemur fram, og
uppgjöri er ekki enn lokið því ekki
er búið að ganga frá gögnum til
Þjóðskjalasafnsins. Um slíkt gilda
strangar reglur en umfang skýrsl-
unnar er mikið, enda voru spari-
sjóðirnir margir og vinnan tímafrek.
Einn starfsmaður er enn að störfum
við frágang á heimildum og skjölum
sem notuð voru við rannsóknina og
ekki er ljóst hversu lengi hann verð-
ur að störfum. Kostnaðurinn mun
þó líklega ekki hækka jafn mikið og
hann hefur gert á síðustu mánuðum,
því nú eru flestir reikningar búnir að
skila sér og sem fyrr segir er aðeins
frágangurinn eftir.
Í skýrslunni kom einnig fram að
þessi rannsóknarnefnd hafi, eins
og aðrar sambærilegar nefndir, far-
ið fram yfir tímamörkin sem henni
voru sett og upphaflega kostnað-
aráætlun. Því er ljóst að betur þarf
að huga að þessum þáttum þegar
nefndir sem þessar eru skipaðar.
Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinns-
son, sagði sjálfur í janúar síðastliðn-
um í samtali við Vísi, að þingsálykt-
unin hafi verið „alltof opin, hún var
ekki nægilega markviss og hún var
ekki nógu skýr“. n rognvaldur@dv.is
Endanlegur kostnaður rið rannsóknarskýrslu Alþingis liggur enn ekki fyrir
rannsóknarnefnd Ekki er búið að ljúka
uppgjöri vegna skýrslunnar og enn er verið
að vinna að frágangi hennar.
Telur túlkun
Sveins ranga
Kolbrún Benediktsdóttir, sak-
sóknari í málinu gegn Friðriki
Brynjari Friðrikssyni, telur að álit
Sveins Andra Sveinssonar um að
Hæstiréttur hafi fallist á niðurstöð-
ur dómskvaddra matsmanna um
atvik sé ekki rétt. Hún segir dóm
Hæstaréttar „í samræmi við kröfur
ákæruvaldsins um að héraðsdóm-
ur yrði staðfestur“. Friðrik Brynjar
var dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir
að verða Karli Jónssyni að bana að-
faranótt 7. maí 2013 á Egilsstöðum.
„Ég skil [dóminn] þannig að
ekki sé tekin bein afstaða til þess
hvort atburðarásin sé „rétt“. Það er
hins vegar mitt mat að fram hafi
komið hjá hinum erlenda mats-
manni, þegar hún gaf skýrslu fyr-
ir dómi, að líkur bentu til þess að
stuttur tími hafi liðið frá því að
Karli voru veittir áverkar í stofunni
og þar til hann var dreginn út. Ég
færði rök fyrir því í Hæstarétti og
vísaði í ákveðin atriði í framburði
matsmannsins,“ segir Kolbrún.
Hún segir enn fremur að þegar
Sveinn Andri segir að þegar rétt-
armeinafræðingur hafi talað um
að allt að 20–30 mínútur hafi get-
að liðið frá því að Karli hafi ver-
ið veittir áverkar og þar til hann
var dreginn út hafi réttarmeina-
fræðingurinn hins vegar bara verið
að svara því hve langur tími hefði
getað liðið frá því að áverkarn-
ir voru veittir og þangað til hann
var dreginn út. Kolbrún segist að
öðru leyti vísa til þess sem fram
kemur í forsendum dómstólanna.
„Það er fyrst og fremst byggt á því
að framburður ákærða
sjálfs hafi verið óstöð-
ugur og tekið mikl-
um breytingum. Auk
þess liggur fyrir að
framburður ákærða
fyrir dómi geng-
ur ekki upp að mati
neinna sérfræðinga,
hvort sem þeir eru
starfsmenn
lögreglu eða
dómkvaddir
matsmenn.“