Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Side 11
Fréttir 11Helgarblað 20.–23. júní 2014
í húsi Hirzlunnar, Smiðsbúð 6,
Garðabæ, s ími : 564 5040
HJÓLATÖS KU R
DOWNTOWN
FARTÖLVU-
TASKA
ULTIMATE 6
STÝRISTASKA
MESSENGER
BAKPOKI
SÖLUAÐILAR
Ellingsen, Fiskislóð 1
Kría Hjól, Grandagarði 7
Markið, Ármúla 40
Útilif, Glæsibæ og Smáralind
heimkaup.is
Skíðaþjónustan á Akureyri
BACK-
ROLLER
CLASSIC
Þórey með réttarstöðu grunaðs manns
n Aðstoðarkona Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra er starfsmaður B n Þórey er enn að störfum í ráðuneytinu en vill ekki tjá sig n Var tvívegis yfirheyrð við rannsóknina
inu, þar sem það hafi verið vistað
á skjáborði tölvunnar (desktop),
hafi [...] svarað að B hafi verið jafn
[...] og allir aðrir yfir þessu máli
og viljað sjá hvort eitthvað væri
inni í tölvu sinni sem ekki ætti að
vera þar. Þá getur sóknaraðili þess
að skjalið hafi ekki verið í tölvu B,
enda hafi [...] skýrt frá því að hann
hefði eytt því.“
Athygli vekur að kyni persón-
ufornafna í dómnum á netinu
hefur verið breytt. DV ræddi við
skrifstofustjóra hjá Hæstarétti
sem segir að allur gangur sé á því
hvort notuð séu karlkyns- eða
kvenkynspersónufornöfn þegar
nöfn hafa verið hreinsuð úr dóm-
um. Oft sé þess gætt að persón-
ufornöfn þeirra sem njóta nafn-
leyndar í dómsúrskurðum séu
karlkyns burtséð frá því hvort sá
sem nafnleyndarinnar nýtur er
karl eða kona.
Margir mánuðir eru síðan DV
greindi frá því að Þórey hefði átt í
símasamskiptum við blaðamenn
365 og Morgunblaðsins um mál-
efni hælisleitendanna stuttu áður
en þeir birtu fréttir um þá. Þessa
daga svaraði hún hins vegar ekki
ítrekuðum fyrirspurnum DV um
málið. Þegar DV sendi Þóreyju
tölvupóst hinn 25. nóvember og
spurði hvort hún hefði afhent fjöl-
miðlunum skjalið svaraði hún: „Ég
hef aldrei afhent eða miðlað með
neinum hætti persónuupplýsing-
um eða öðrum trúnaðargögnum
er tilheyra ráðuneytinu.“
Bjarni og Sigmundur þegja
Sem fyrr segir starfar Þórey enn
í ráðuneytinu þrátt fyrir að vera
grunuð um brot í starfi, en til sam-
anburðar má nefna að Baldur Guð-
laugsson, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri, vék úr embætti nokkru eftir
að hann fékk réttarstöðu grunaðs
manns vegna rannsóknar á inn-
herjasvikum.
Sú staða sem komin er upp í
máli innanríkisráðherra er for-
dæmalaus á Íslandi. Aldrei áður
hefur ríkissaksóknari mælt fyrir
um sakamálarannsókn sem beinist
gegn ráðherra og starfsmönnum
ráðuneytis. Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur ítrekað stokkið Hönnu Birnu
til varnar. Það sama má segja um
nokkra þingmenn flokksins, með-
al annars Ragnheiði Ríkharðs-
dóttur, þingflokksformann og
tengdamóður Þóreyjar Vilhjálms-
dóttur. Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson forsætisráðherra hef-
ur varið Hönnu Birnu og sagt
það fráleita kröfu að hún segi af
sér. Hvorki Bjarni né Sigmundur
urðu við beiðni DV um stutt viðtal
vegna málsins. n
Viðbrögðin
sættu furðu
Þórey hefur ekki sagt satt
Þórey Vilhjálmsdóttir er formaður
Landssambands íslenskra sjálfstæð-
iskvenna og hefur gegnt margháttuðum
félagsstörfum, meðal annars setið í stjórn
UN Women, íslenskri landsnefnd á vegum
Sameinuðu þjóðanna og í mannréttinda-
ráði Reykjavíkurborgar. Áður en hún hóf
störf sem aðstoðarkona Hönnu Birnu
gegndi hún starfi framkvæmdastjóra
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.
Viðbrögð Þóreyjar Vilhjálmsdóttur við
umfjöllun um lekamálið hafa vakið athygli
í fjölmiðlum undanfarna mánuði. Eftir
að DV sendi Þóreyju fyrirspurn um kærur
á hendur starfsmönnum ráðuneytisins
hinn 10. janúar svaraði hún: „Það er engin
kæra á Hönnu Birnu hjá lögreglunni eða
ríkissaksóknara.“ Á þessum tíma höfðu
þó tvær kærur verið lagðar fram, annars
vegar til ríkissaksóknara og hins vegar til
lögreglu en sú kæra beindist að Hönnu
Birnu sjálfri ásamt öðrum starfsmönnum
ráðuneytisins.
Í lok janúar var Þórey beðin um að taka
þátt í léttu spjalli um fréttir vikunnar í
Sunnudagsmorgni, sjónvarpsþætti Gísla
Marteins Baldurssonar á RÚV. DV greindi
frá því 2. febrúar að hún hefði samþykkt
að koma í þáttinn með því skilyrði að ekki
yrði rætt um lekamálið. Ekki var orðið við
þeirri beiðni svo Þórey afþakkaði boðið.
Þórey þurfti hins vegar að svara fyrir lek-
ann á trúnaðargögnunum í viðtali á Rás 2
hinn 17. janúar en þá þvertók hún fyrir að
hafa sjálf lekið skjalinu á fjölmiðla. Þórey
fullyrti jafnframt að hjá ráðuneytinu væri
ekki vitneskja um hvaðan minnisblaðið
væri komið þrátt fyrir að sjálf hafi hún
fengið skjalið sent á tölvupóstfang sitt
klukkan 17.17 hinn 19. nóvember. Hún sagði
að búið væri að taka fyrir það að lekinn
kæmi úr ráðuneytinu, þrátt fyrir að henni
hafi mátt vera ljóst að örfáir einstaklingar
höfðu vitneskju um skjalið þegar því var
lekið, þar á meðal hún.
Spurningar til Bjarna
Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur ekki svarað
1 Í ljósi þess að lögreglurannsókn stendur yfir vegna háttsemi sem
átti sér stað í innanríkisráðuneytinu á vakt
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins, og í ljósi þess
að hún og pólitískir aðstoðarmenn hennar
eru í hópi þeirra átta sem lögregla telur
hafa verið í aðstöðu til að fremja brotið,
telur Bjarni Benediktsson, sem formaður
Sjálfstæðisflokksins, eðlilegt að Hanna
Birna gegni embætti meðan á lögreglu-
rannsókn stendur?
2 Í ljósi þess að dómsúrskurðir sýna að innanríkisráðherra sagði
ósatt í viðtölum og fréttatilkynningar á
vef innanríkisráðuneytisins áttu ekki við
rök að styðjast, mun ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins þurfa að axla pólitíska ábyrgð og
stíga til hliðar?
3 Ráðherra neitaði að gefa Alþingi upp í vikunni hvort hún eða
aðstoðarmenn væru með
réttarstöðu grunaðs.
Telur formaður
Sjálfstæðisflokksins
ekki að almenningur
eigi heimtingu á því að
vita hvort ráðherra eða
pólitískir aðstoðarmenn hennar séu með
stöðu grunaðs manns í sakamáli?
4 Mun formaður Sjálfstæðis-flokksins beita sér fyrir því að þeim
starfsmanni sem er með réttarstöðu grun-
aðs manns, í rannsókn á hegningarlaga-
brotum í starfi, verði vikið tímabundið frá
meðan rannsókn stendur yfir?
5 Finnst Bjarna forsvaranlegt að ráðherra lögreglumála noti vef
innanríkisráðuneytisins til að gagnrýna
saksóknara lögreglunnar og taka með
óbeinum hætti til varna fyrir þann grunaða
í sakamáli?