Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Page 12
12 Fréttir M argir í starfsliði Grunn- skóla Grindavíkur eru ósáttir vegna við- bragða skólastjórnenda í eineltismálum er varða kennarann Frímann Ólafsson. Samkvæmt skýrslum sálfræðinga lagði hann stúlku í einelti og gerð- ist sekur um ámælisverða hegðun gagnvart öðrum nemanda. Þriðja málið er til athugunar auk þess sem nokkrir fyrrverandi nemend- ur við skólann hafa sent bæjaryfir- völdum yfirlýsingu um að þeir hafi sjálfir orðið fyrir einelti af hendi kennarans. „Málið hefur verið höndlað illa frá upphafi. Auðvitað hefðu utan- aðkomandi aðilar átt að ganga í málið, en ekki stjórnendateymið, því þar eru svo mikil hagsmuna- tengsl,“ segir starfsmaður við skól- ann í samtali við DV. Annar við- mælandi fullyrðir að í Grindavík hafi gætt gríðarlegrar meðvirkni gagnvart skólastjórnendum og Frí- manni. Líkt og DV greindi frá í apr- íl var efnt til undirskriftasöfnun- ar til stuðnings kennaranum auk þess sem eggjum var kastað í hús drengs sem kvartað hafði undan einelti. Eineltið yfirfærist „Enginn þorir að segja neitt. Þannig er staðan. Maður finnur samt að margir eru ósáttir, enda býr þessi skóli að mjög góðu starfsfólki. En þarna er líka gríðarleg meðvirkni og það er klíka á svæðinu sem hef- ur haldið skólanum í heljargreip- um og tekið þá sem ekki eru sam- mála fyrir,“ segir viðmælandi DV og bætir því við að með þessum hætti hafi eineltið að nokkru leyti yfir- færst á þá sem taka afstöðu gegn kennaranum. Þá skiptist þeir íbú- ar Grindavíkur sem láta sig málið varða í fylkingar og margir standi með Frímanni. Í skýrslu Kolbrúnar Baldurs- dóttur, sálfræðings og sérfræðings í eineltismálum, er fullyrt að ekki sé hægt að afgreiða mál Frímanns og stúlkunnar sem samskipta- vanda kennara og nemanda. Þrátt fyrir þetta sagðist Halldóra Kristín Magnúsdóttir, skólastjóri Grunn- skóla Grindavíkur, vilja „eyða þess- um árekstrum“ í bréfi sem hún sendi foreldrum fyrr á árinu. Umdeild viðbrögð Viðbrögð skólastjórnenda við niður- stöðum sálfræðiskýrslnanna voru í meginatriðum þau að námshóp- ar Frímanns voru færðir í aðra stofu innar á stofugangi í grunnskólan- um. Þá var tekin ákvörðun um að þeim nemendum sem ekki treystu sér til að sækja kennslustundir hjá Frímanni yrði veitt einkakennsla á skólaskrifstofu síðustu vikur skóla- ársins, en loks ákvað Frímann sjálfur að taka sér veikindaleyfi. Í sameiginlegri yfirlýsingu Hall- dóru og Róberts Ragnarssonar bæj- arstjóra var fullyrt að skólastjórinn hefði „tekið á þessu flókna og erf- iða máli í samræmi við stefnu skól- ans og málsmeðferð verið í samræmi við stjórnsýslulög, kjarasamning og góða stjórnunarhætti“. Að öllu óbreyttu mun Frímann kenna áfram í haust, en stúlkan sem varð fyrir ein- eltinu hefur skipt um skóla. Ólga vegna skólaslita Að því er fram kemur í opnu bréfi Viktors Scheving Ingvarssonar, föð- ur stúlkunnar, til menntayfirvalda mun Halldóra Kristín Magnúsdótt- ir, skólastjóri Grunnskóla Grinda- víkur, nýlega hafa fundað með nem- endum og foreldrum tíunda bekkjar með Vöndu Sigurgeirsdóttur, sér- fræðingi í eineltismálum, og tilkynnt að „um staðfest einelti og ámælis- verða hegðun hefði verið að ræða“ af hendi Frímanns. Engu að síður voru honum færð blóm og gjöf fyrir vel unnin störf á skólaslitum 10. bekkjar. Athöfninni var stjórnað af eig- inkonu Frímanns og deildarstjóra í skólanum, en hún hóf samkom- una með því að lesa upp ljóð Einars Benediktssonar þar sem fram kem- ur ljóðlínan „Aðgát skal höfð í nær- veru sálar“. Samkvæmt lýsingum nemenda og foreldra hélt eiginkon- an ræðu þar sem hún sagði að flest- ir nemendur hefðu reynst vel en ekki allir. Þá voru tíundubekkingar kall- aðir upp á svið til að færa Frímanni viðurkenningu, en ekki var haft sam- ráð við nemendurna um að viður- kenningin yrði veitt. Lýsingar nemenda og foreldra á skólaslitunum eru talsvert dramat- ískari en þær sem birtast á vef Grunnskóla Grindavíkur, en þar er hvorki minnst á ljóðaflutninginn né ræðuhöldin. Ritstjórar vefsíðu grunnskólans eru Frímann sjálfur og systir eiginkonu hans. Frímann lagði á þegar blaðamað- ur sló á þráðinn til hans en ekki náð- ist í Halldóru Kristínu við vinnslu fréttarinnar. n Helgarblað 20.–23. júní 2014 Starfsmenn Grunnskólan Grindavíkur eru afar óánægðir með viðbrögðin í eineltismálinu„Það er klíka á svæðinu sem hefur haldið skólanum í heljar- greipum Jóhann Páll Jóhannsson johannp@dv.is „Höndlað illa frá uppHafi“ Einelti Frímann Ólafsson er sagður hafa lagt stúlku í einelti og sálfræðiskýrsla Kolbrúnar Baldursdóttur rennir stoðum undir ásakanirnar. Mynd Af vEf GrUnnskÓlA GrindAvíkUr Umdeild viðbrögð Halldóra Kristín Magnúsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur, hefur brugðist við eineltisásök- unum með umdeildum hætti. Mynd Af GrindAvik.is Grunnskóli Grindavíkur Í skýrslu sérfræðings í eineltismálum er fullyrt að ekki sé hægt að afgreiða mál Frímanns og stúlkunnar sem samskiptavanda kennara og nemanda. Mynd siGtryGGUr Ari opnunartímar Hverfisgata 33 Mánudaga – miðvikudaga 11:30 – 21:00 Fimmtudaga – laugardaga 11:30 – 23:00 Sunnudaga 17:00 – 22:00 Skúlagata 17 Mánudaga – föstudaga 11:30 – 15:00 Lokað um helgar Kryddlegin Hjörtu Með hjartað á réttum stað Ofsaakstur á Reykjanesbraut Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært 35 ökumenn fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 167 kíló- metra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetr- ar á klukkustund. Um var að ræða erlendan ferðamann sem var á leiðinni í flug. Má hann eiga von á 150 þúsund króna sekt, samkvæmt upplýsingum sem finna má á vef FÍB. Annar mældist á 148 kílómetra hraða, einnig á Reykjanesbraut- inni. Hann kvaðst vera að flýta sér að sækja flugfarþega í Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar. Af þessum 35 ökumönn- um voru sextán erlendir ferðamenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.