Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Síða 17
Helgarblað 20.–23. júní 2014 Fréttir 17
Jörðin gleypti þau
n Týndir eru skilgreindir eftir ákveðnum flokkum n Reikna út líkur á að fólk finnist n Formlegri leit ekki hætt fyrr en búið er að finna viðkomandi
Á
fimmtudag voru lögreglu-
menn í sérsveit ríkislög-
reglustjóra að störfum í
Bleiksárgljúfri í Fljótshlíð.
Lögreglumennirnir leita að Ástu
Stefánsdóttur, 35 ára lögfræðingi,
sem saknað hefur verið í tíu daga.
Sambýliskona Ástu, Pino Becerra
Bolaños, fannst látin á miðviku-
daginn í síðustu viku, hinn 10. júní
2014. Ljóst er að hún lést eftir 30
metra fall fram af fossi í gljúfrinu.
Engir leitarflokkar björgunar-
sveitanna voru formlega að störf-
um í Bleiksárgljúfri á fimmtudag,
en björgunarsveitarmenn stóðu
vakt við gljúfrið og liðsinntu sér-
sveitarmönnunum. Leit hófst að
þeim Ástu og Pino þriðjudaginn
eftir hvítasunnuhelgina þegar
þær skiluðu sér ekki til vinnu. Þær
höfðu verið í sumarbústað á svæð-
inu, en Ásta þekkir svæðið vel þar
sem fjölskylda hennar á sumar-
bústaðinn. Báðar voru þær vanar
göngukonur og miklar útivistar-
konur. Um liðna helgi var ákveðið
að draga úr leit að Ástu og er hún
talin af. Þrátt fyrir þá ákvörðun
hófst leitin að nýju þegar að
Bleiksárgljúfur var kembt í fjórða
sinn.
Fjölskyldur Ástu og Pino eru
harmi slegnar og fjölskylda Ástu
hefur beðist undan viðtali vegna
málsins.
Bræður Pino eru hér á landi og
hyggjast fara heim til Kanaríeyja
með jarðneskar leifar hennar á
næstu dögum þar sem haldin verð-
ur jarðarför. Pino hafði verið búsett
á Íslandi frá því í mars síðastliðn-
um, en hún var íþróttafræðingur
og starfaði á sínu sviði hér á landi,
meðal annars við hlaupaþjálfun og
Boot-camp þjálfun. Ásta starfar hjá
Héraðsdómi Reykjavíkur og voru
þær báðar búsettar í Reykjavík.
Leit stendur
enn yfir
Á
rið 2007 var lýst eftir tveimur
þýskum ferðamönnum sem
höfðu ætlað að ferðast um
Skaftafell, Langasjó, Lónsör-
æfi eða svæði norðaustan við
Vatnajökul. Annar þeirra var hinn
24 ára gamli Matthias Hinz og hinn
hét Thomas Grundt, 29 ára. Talið er
að þeir hafi lagt af stað í klifurleið-
angur frá tjaldbúðum sínum, sem
fundust á Svínafellsjökli. Hátt í
hundrað björgunarsveitarmenn
leituðu mannanna, þar á meðal sér-
þjálfaðir fjallabjörgunarmenn.
Aðstæður á jöklinum eru mjög
erfiðar, sérstaklega til leitar, og enn
hefur ekkert til mannanna tveggja
spurst. Leitarmenn sigu ofan í
sprungur, fóru eftir mögulegum
klifurleiðum og slóðum út frá tjöld-
um mannanna. Haft var eftir björg-
unarsveitarmanni að sprungurn-
ar hefðu sumar verið svo djúpar að
ekki sást til botns. Jafnvel er talið
að mennirnir hafi ætlað sér að fara
upp á Hvannadalshnjúk en leiðin
sem þeir gætu hafa farið er hins
vegar afar erfið.
Haustið 2010 fannst klifurlína
skorðuð á milli kletta og fóru vanga-
veltur af stað um að þetta væri hluti
af búnaði Þjóðverjanna. Leiðin er
afar torfærin og yfir henni er snjó-
hengja, sem hrynur úr á sumrin.
Þeir voru á ferð í ágúst, en þegar lín-
an fannst var leiðin örugg þar sem
frost var orðið verulegt á hnjúkn-
um. Þetta er eina vísbendingin sem
fundist hefur síðan gert var hlé á
leitinni. Minnisvarða hefur ver-
ið komið fyrir á Svínafellsjökli til
minningar um félagana.
C
harles Egill Hirt týndist í sum-
arbyrjun ársins 1993 og leitað
var að honum stanslaust í sjö
daga á Snæfellsnesi. Leitin
var mjög umtöluð enda var margt
undarlegt sem kom í ljós við leitina.
Charles tók rútu til Ólafsvíkur,
spurði til vegar upp á Snæfellsjök-
ul og gekk upp Krókabrekkur, fyrir
ofan Ólafsvík. Þar spurði hann aft-
ur til vegar og var bent á í hvaða átt
jökullinn væri. Sama kvöld var aug-
lýst eftir manninum í fjölmiðlum
og þau sem höfðu leiðbeint honum
í síðara skiptið sögðu að lýsingin
passaði við manninn sem þau
höfðu hitt. Kölluð var út björgunar-
sveit og um kl. ellefu voru 20 menn
tilbúnir til leitar og aðrir þrjátíu
á leiðinni. Þetta gerðist í júní svo
bjart var allan sólarhringinn. Þyrla
frá Landhelgisgæslunni var kölluð
út og morguninn eftir kom spor-
hundur á svæðið. Í lok annars dags
leitarinnar voru 140 manns við leit
en ekkert fannst, og jafnvel hund-
ar fundu ekki neitt. Leitað var með-
fram Hvalsá, en hundarnir leiddu
björgunarmenn þangað án þess að
nokkuð kæmi í ljós.
Undarlegt var hins vegar að
ökuskírteini Charles fannst und-
ir gangstéttarhellu við hús á
Grundarbraut á þriðja degi og
lyfta þurfti hellunni til að ná því.
Fundurinn gaf þó engar frekar vís-
bendingar og á fjórða og fimmta
degi var leit haldið áfram án ár-
angurs. Á degi sex og sjö var leit
haldið áfram en ekkert fannst og
því var formlegri leit hætt. Að-
standendur mannsins leituðu þó
áfram og unnu rannsóknarvinnu
án þess að hún bæri nokkurn ár-
angur.
Það var svo árið 1998 að mað-
ur sem hafði tekið þátt í leitinni
gekk fram á líkamsleifar manns
sem hann taldi vera Charles og til-
kynnti fundinn til lögreglu. Rann-
sóknir staðfestu að þetta var hann
og seinna kom í ljós að svæðið sem
hann fannst á hafði verið skipulagt
sem leitarsvæði en aldrei var far-
ið þangað til leitar. Önnur svæði
þóttu líklegri og þá var einnig ekki
vitað að lykt gæti borist með vatni,
sem leiddi hundana að Hvalsá.
Hefði verið gengið ofar með henni,
hefði maðurinn líklega fundist við
skipulagða leit.
Hurfu á Svínafellsjökli
Fannst látinn
fimm árum seinna
Fórust á sjó
Í umfjöllun þessari hefur verið
einblínt á einstaklinga sem týnst
hafa á landi og vegna slysfara.
Þar með eru ótaldir þeir einstak-
lingar sem látist hafa í sjóslys-
um á undanförnum árum og hafa
ekki fundist. Á undanförnum
árum hafa nokkrir einstaklingar
drukknað við störf sín á sjó og
þrátt fyrir ítarlega leit björgunar-
sveita og samstarfsmanna hafa
þeir ekki fundist. Á síðustu fimm
árum hefur skipulagðri leit verið
hætt meðal annars að sjómanni
sem féll útbyrðis úr Skinney SF
020 í júlí árið 2013, að sjómanni
sem saknað var eftir að bátur hans
fékk á sig brot og hvolfdi við Skrúð
í Fáskrúðsfirði í desember 2009.
Í desember 2012 var mikil leit
gerð að sjómanni af togaranum
Múlabergi en leit var hætt tveim-
ur dögum síðar og var maðurinn
talinn af. Í janúar 2012 fórust þrír
íslenskir sjómenn við Noregs-
strendur eftir alvarlegt sjóslys. Að-
eins einn af áhöfninni lifði af slys-
ið, Eiríkur Ingi Jóhannsson, og var
bjargað úr sjónum. Leit var hætt
að mönnunum nokkru síðar og
eru þeir allir taldir af.
Pétur Þorvarðarson
við Langafell í Haukstaðaheiði
(eða Vopnafjörð)
Matthias Hinz
og Thomas Grundt
við Svínafellsjökul