Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Page 20
Helgarblað 20.–23. júní 201420 Fréttir
n Siglingar á norðurslóðum skapa tækifæri n Misjafnar skoðanir um hagkvæmni gámaflutninga n Sérfræðingar segja mikla óvissu ríkja um siglingarnar
M
álefni norðurslóða hafa
verið mikið í umræðunni
undanfarið og á mánu-
dag hófst enn ein ráð-
stefnan, ConneXiton
2014, í Hörpu. Siglingar og þjónusta
tengd þeim er einn þeirra þátta sem
helst eru nefndir sem tækifæri fyrir
Ísland en mikil óvissa ríkir enn um
slíkt. Rannsóknir í Finnafirði hefjast
á næstu vikum en þar er fyrirhugað
að reisa gríðarlega stóra höfn komi
þær vel út.
Páll Hermannsson flutningahag-
fræðingur ritaði nýverið grein þar
sem fram kemur að hann telji gáma-
flutninga norðurleiðina óraunhæf-
an kost sem og að Ísland gæti þjón-
ustað umskipun í miklum mæli
á þessum slóðum. Páll nefnir hin
ýmsu rök því til stuðnings.
Hafsteinn Helgason, verk-
fræðingur og sviðsstjóri viðskipta-
þróunar hjá Eflu, er á öndverðum
meiði. Hann er starfandi ráðgjafi
fyrir þýska fyrirtækið Bremen Ports
sem fjármagnar rannsóknir í Finna-
firði ásamt Langanesbyggð og
Vopnafjarðarhreppi. Hafsteinn seg-
ir mikla möguleika fyrir hendi en
hann hefur setið fjölda ráðstefna
undanfarin ár um málefni norður-
slóða. Sparnaðurinn sé gríðarlegur.
David Bull, breskur flutninga-
hagfræðingur, segir sparnað vera
í flutningum á norðurslóðum við
bestu mögulegu aðstæður. Óvissan
sé hins vegar mikil og aðstæður erf-
iðar. Sérstaklega með tilliti til gáma-
flutninga. Rætt er við David í sérboxi
sem fylgir greininni.
Steingrímur Jónsson, prófessor
við Háskólann á Akureyri og dokt-
or í hafeðlisfræði, telur siglingar
vissulega mögulegar þótt hann hafi
ekki lagt sérstakt mat á hagkvæmni
þeirra. Hann segir ljóst að ís muni
hopa mikið á næstu áratugum og
einhverja mánuði árs verði siglingar
yfir pólinn líklega mögulegar. Áfram
verði þó ís á þeim slóðum að vetri til
um ófyrirséða framtíð.
Gámaflutningar óraunhæfir
„Ég sé því miður enga glætu í því
að reka gámaumskipunarhöfn hér
á landi,” segir Páll Hermannsson
flutningahagfræðingur en Páll starf-
aði einnig sem stýrimaður í tíu ár.
Páll ritaði nýlega grein, líkt og fyrr
sagði, þar sem hann fer í ítarlegu
máli yfir ástæður þess að hann telji
gámaflutninga um norðurslóðir
óraunhæfan kost. Einnig að of mikið
hafi verið gert úr þeim mun sem er á
norðurslóðaleiðum og hefðbundn-
um siglingaleiðum um Súesskurð
og Panama.
„Svo að það komi skýrt fram er
ég einungis að tala um gámaflutn-
inga. Siglingar með aðra farma lúta
allt öðrum lögmálum. Þeim farmi
er hins vegar sjaldan umskipað. Það
getur hins vegar verið að upp komi
aðstæður sem ekki eru til í dag. Til
dæmis út af markaðs- eða tæknileg-
um ástæðum sem kalli á umskipun.
Hvað er það fyrsta sem þarf fyrir
gámasiglingar? Það er áreiðanleiki.
Ég tel engar líkur á því að siglingar
norðurleiðina geti gefið áreiðanleika
allt árið um kring. Ef menn vilja síðan
sigla þann tíma árs sem minnst er um
ís, eða yfir sumarið, þá er það frekar
magur tími í þessum hefðbundnu
siglingum. Það eru árstíðasveiflur í
flutningum af þessu tagi og yfir sum-
arið er minni traffík,” segir Páll.
Lestað og losað í mörgum höfnum
Í grein sinni nefnir Páll þrjár megin-
ástæður þess að gámaflutningar um
norðurpólinn séu óraunhæfir. Auk
áreiðanleika, líkt og áður kom fram,
fari siglingar á milli heimsálfa fram
að mestu á mjög stórum skipum
sem þurfi að lesta og losa á mörgum
viðkomustöðum. Flest skip stoppi
í um tíu höfnum. Oft þegar mæld-
ur sé tími norðursiglinga sé miðað
við nyrstu stórskipahafnir beggja
megin, eða Yokohama í Japan og
Rotterdam eða Hamburg í Evrópu.
Mjög skip lesta á Guangdong-
svæðinu í Kína á ferðum sínum frá
höfnum eins og Yokohama. Þau
losi og lesti síðan í Evrópuhöfn-
um svo sem Le Havre í Frakklandi.
Því sé nær að nota þær hafnir til
viðmiðunar þótt einnig sé lestað í
höfnum eins og Rotterdam og fleiri
evrópskum stórskipahöfnum.
Þá segir Páll að eigi að sigla
norður leiðina þurfi að fjárfesta í
gríðarlega dýrum skipum sem eru
tvöfalt dýrari en hefðbundin skip
sem fari um Súesskurð. Rekstrar-
kostnaður sé einnig mun meiri.
Páll bendir á að skipastærð sé ekki
einungis verkfræðilegt viðfangsefni
heldur þurfi að fylla þessi skip svo
rekstur þeirra borgi sig. Risaskip
hafi verið byggð nú þegar sem voru
of stór, dýr og óhagkvæm og því ekki
endurnýjuð. Skipastærð hafi tak-
mörk og minni skip komu í staðinn.
Í öðru lagi nefnir Páll að um fyrir-
sjáanleg framtíð sé næg flutnings-
geta um Súsesskurð, sem hægt sé að
stækka, en þörfin á nýrri siglingaleið
hefur verið nefnd sem ástæða fyr-
ir norðursiglingum. Þá verði búið
að stækka Panamaskurðinn um
helming innan tveggja ára auk þess
sem aðrir skurðir á suðurleið séu á
teikniborðinu.
Segir Ísland úr leið
Í þriðja lagi nefnir Páll að Ísland
henti illa þeim tveimur helstu sigl-
ingaleiðum sem séu í umræðunni
þegar kemur að norðursiglingum.
Önnur sé norðausturleiðin með
ströndum Rússlands þar sem Ísland
liggi hreinlega of fjarri auk þess sem
flestir hafi afskrifað þá leið. Vegna
þess að Rússar rukki há gjöld og
leiðin beri aðeins 5.000 TEU-ein-
inga skip sem sé ekki nógu stór til að
hagkvæmt sé að sigla þeim á milli
Asíu og Evrópu þegar kemur að
gámaflutningum. Á hinni leiðinni,
Norðurskautsleiðinni, sem liggi yfir
miðjan pólinn sé Tromsö í Noregi
eða Jan Mayen betri staðsetning ef
ferðinni er heitið til Evrópu.
Að lokum nefnir Páll að umskip-
unarhafnir af þessum toga séu mjög
dýrar og þar sé sjálfvirkni beitt til
hins ýtrasta og því ekki um neina
atvinnuskapandi stóriðju að ræða
tengdri höfninni sjálfri.
Önnur umskipun einnig óraunhæf
Þótt grein Páls fjalli um gámaflutn-
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
„Ég tel engar
líkur á því að
siglingar norður-
leiðina geti gefið
áreiðanleika allt
árið um kring
Mörg tækifæri, Mikil óvissa
Páll Hermannsson Páll ritaði ítarlega
grein um gámaflutninga yfir norðurpólinn
sem hann telur óraunhæfan kost. Mynd nærMynd
Gámaflutningar um norðurpól Eru mögulegir en ólíklegt að þeir séu raunhæfur kostur samkvæmt þeim sérfræðingum sem rætt var við.
Finnafjörður Svona gætu hafnarmannvirki í
Finnafirði litið út. Rannsóknir hefjast á næstunni en
framkvæmdir gætu í fyrsta lagi hafist í lok árs 2018.