Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2014, Page 53
Helgarblað 20.–23. júní 2014 Menning 53
S
igurður Sævarsson tónskáld
er listamaður Reykjanes-
bæjar en það var ákveðið
af nýskipaðri bæjarstjórn
Reykjanesbæjar 3. júní síðast-
liðinn. Sigurður hóf tónlistar-
nám ungur að aldri, og síðar
söngnám, í Tónlistarskólanum
í Keflavík. Síðan lá leiðin í Nýja
tónlistarskólann í Reykjavík þar
sem kennarar hans voru Sigurður
Demetz Franzson og Alina Dubik.
Sigurður nam bæði söng og tón-
smíðar við Boston-háskóla og
lauk þaðan meistaragráðu í báð-
um greinum 1997. Sigurður hef-
ur samið fjölda verka bæði stór og
smá. Aðaláhersla hans hefur verið
á óperur og kórverk. Má þar nefna
óperuna Z-ástarsaga, sem frum-
flutt var á óperuhátíð Norðuróps
2001 í Reykjanesbæ, óratoríuna
Hallgrímspassíu sem frumflutt
var í Hallgrímskirkju 2007 og aft-
ur í Ytri-Njarðvíkurkirkju og í
Hallgrímskirkju á Kirkjulistahátíð
2010. Var hún í kjölfarið hljóðrit-
uð og gefin út sama ár. Diskurinn
var tilnefndur til Íslensku tónlist-
arverðlaunanna sem plata ársins
í flokknum sígild og samtímatón-
list. Nýjasta verk Sigurðar, O crux,
verður frumflutt í haust, bæði hér
heima og á Norðurlöndum. n
asgeir@dv.is
B
aldvin Z. er skærasta stjarn-
an á íslenskum kvikmynda-
himni. Nýjasta mynd hans,
Vonarstræti, hefur hlotið
einróma lof gagnrýnenda
og margir telja hana boða vatnaskil
í kvikmyndagerð hérlendis. Í stað
þess að baða sig í velgengninni
hefur hann sökkt sér í nýtt verk-
efni; gerð kvikmyndar sem er með-
al annars innblásin af lífi Sigrúnar
Mjallar, dóttur fréttamannsins Jó-
hannesar Kr. Kristjánssonar, sem
lést árið 2010 eftir harða baráttu við
eiturlyfjadjöfulinn og þann heim
sem honum fylgir. „Við erum að
vinna með sögur margra stelpna,
en Jóhannes kom að verkefninu og
kynnti mig fyrir þessum heimi. Svo
erum við með dagbækur; það er alls
konar innspírasjón í þessu.“
Vinkonusaga úr
viðurstyggilegum veruleika
Þótt handritaskrifin séu fyrst að fara
af stað núna hefur sagan lengi ver-
ið í meltingarvegi Baldvins, saga um
heim undir því yfirborði sem við
þekkjum; heim ungra sprautufíkla.
„Þennan heim þekkja fæstir eða vilja
ekki viðurkenna. Sérstaklega stelpn-
anna, sá heimur er hreinlega viður-
styggilegur. Þetta er vinkonusaga úr
þeim veruleika.“ Baldvin segir að
þótt þessi mynd, sem ber vinnut-
itilinn Contalginbörnin, verði allt
öðruvísi en Vonarstræti þá ætli hann
að halda í sinn sérstaka leikstjórn-
arstíl. „Já, algjörlega. Við byrjuðum
að þróa þennan stíl í Óróa. Og ég er
með sama tökumanninn og sama
klipparann. Ég lagði upp með þessa
aðferð þar og við vorum rosalega
sátt við niðurstöðuna en ég sá samt
hvað hægt hefði verið að gera betur
og við héldum áfram að þróa þetta.
Þetta er rosalega mikil samvinna á
milli okkar þriggja og svo að sjálf-
sögðu leikaranna.“ Það er einmitt
frammistaða leikara Vonarstrætis
sem hvað mesta athygli áhorfenda
vakti. Þorsteinn Bachmann þykir
vinna leiksigur sem stórskáldið og
örlagabyttan Móri og eins hin unga
Hera Hilmarsdóttir.
Kóperníkusarbylting Baldvins
Árið 1511 lagði Kópernikus fram þá
tilgátu að jörðin snerist um sólina
en ekki öfugt. Í þessari færslu mið-
depils alheimsins er hans bylting
fólgin. Bylting Baldvins, og kannski
íslenskrar kvikmyndagerðar í heild
sinni, felst í þessu: „Í gamla daga var
þetta oft þannig að leikarinn þurfti
að finna ljósið, leikarinn mátti ekki
„overlappa“ hinn leikarann og eitt-
hvað svoleiðis,“ segir Baldvin sem
sjálfur snýr þessu algerlega á hvolf. Í
stað þess að leikarinn snúist í kring-
um kvikmyndina, snýst kvikmyndin
í kringum leikarana. „Mín aðferð er
að allir aðrir finni leiðir til að laga
sig að leikaranum. Ef leikarinn finn-
ur ekki ljósið verður ljósið að finna
leikarann. Þannig horfi ég á þetta.
En nú er ég farinn að upplýsa öll
mín helstu leyndarmál, það er ekki
nógu gott,“ segir Baldvin og hlær.
Baldvin vill þó meina að hann sé
ekki orsök þeirrar stefnubreytingar
sem íslensk kvikmyndagerð virð-
ist vera að taka heldur sé stíll hans
afleiðing aðstæðna sem liggja utan
við hann sjálfan; þess jarðvegs sem
öll hans kynslóð sprettur úr. „Við
erum náttúrlega alin allt öðruvísi
upp heldur en kvikmyndakynslóðin
á undan okkur. Og kynslóðin sem er
að koma á eftir okkur – YouTube-
kynslóðin – hún fékk líka allt öðru-
vísi kvikmyndafræðilegt uppeldi en
mín kynslóð. Ég er af þessari VHS-
kynslóð og fékk að horfa á miklu
fleiri bíómyndir en þeir sem á und-
an komu. Okkar skilningur á mynd-
máli er einfaldlega allt öðruvísi.“
Tökur 2016
Búist er við að tökur Contalginbarn-
anna hefjist 2016 og hún fari í sýn-
ingar ári síðar. Ingvar Þórðarson
og Júlíus Kemp munu framleiða
myndina, en þeir unnu einnig með
Baldvini að gerð Óróa og Vonar-
strætis og virðast vera að græða
ágætlega á þeirri síðarnefndu. Þegar
þessi orð eru skrifuð hafa tæplega 40
þúsund Íslendingar séð hana í bíó
og er hún söluhæsta mynd ársins. n
Kóperníkusar-
bylting Baldvins
Gerir mynd innblásna af sorgarsögu dóttur Jóhannesar Kr.
Baldur Eiríksson
baldure@dv.is
Vonarstræti Myndin hefur slegið rækilega í gegn og fengið einróma lof gagnrýnenda.
Vinsæll Baldvin
Z. sló í gegn með
Vonarstræti og
vinnur nú að gerð
nýrrar kvikmyndar.
Mynd RóBERT REynisson
Listamaður Reykjanesbæjar
Byrjaður á næstu óperu
fylgdi þessu einhver kvöð,“ seg-
ir Gunnar glettinn en hann segir
dagana 16. og 17. júní 2014 renna
seint úr minni sér. „Auðvitað er
maður bara þakklátur að hljóta
nafnbót sem þessa.“
Á vef Reykjavíkurborgar er
Gunnari lýst með eftirfarandi
hætti: „Gunnar Þórðarson er litríkt
og afkastamikið tónskáld, snjall gít-
arleikari, hljómsveitarstjóri, útsetj-
ari og upptökustjóri. Hann er einn
afkastamesti tónlistarhöfundur Ís-
lendinga og hefur samið bæði dæg-
urlög og sígilda tónlist – eftir hann
liggja yfir 650 lög sem hafa verið
gefin út á hljómplötum og auk þess
hefur hann samið tónlist við kvik-
myndir, söngleiki og leikverk.“
Frumstæð vinnubrögð
Gunnar segir að þrátt fyrir vel-
gengni Ragnheiðar sé hann og
verði ávallt lagahöfundur. „Ég hef
alltaf gaman af því að búa til lög
og hef setið dálítið við og samið
undanfarna daga. Það kemur alltaf
eitthvað til manns.“
Spurður um hver leyndar-
dómurinn sé á bak við laga-
smíðarnar segir Gunnar lítið um
galdra í spilunum. „Þetta er allt
mjög frumstætt. Ég sit bara og
spila þangað til mér líkar eitthvað.
Þá tek ég það út og vinn frekar með
það. Þeir fiska sem róa eins og sagt
er.“
Þrátt fyrir stífa vinnutörn
undanfarið segist Gunnar ætla að
stoppa stutt áður en hann held-
ur áfram með listsköpunina. „Frí?
Nei ég tek mér kannski örstutt frí
en síðan er það bara áfram veg-
inn.“ n
n Gunnar Þórðarson hlaut tvenn Grímuverðlaun n Borgarlistamaður Reykjavíkur 2014
Verðlaunahafar á Grímunni 2014
sýning ársins 2014
Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson
og Friðrik Erlingsson í sviðsetningu
Íslensku óperunnar
Leikrit ársins 2014
Stóru börnin eftir Lilju Sigurðardóttur í
sviðsetningu Lab Loka
Leikstjóri ársins 2014
Egill Heiðar Anton Pálsson fyrir
Gullna hliðið í sviðsetningu Leikfélags
Akureyrar
Leikari ársins 2014 í aðalhlut-
verki
Hilmir Snær Guðnason fyrir Eldraunina
í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikkona ársins 2014 í aðalhlut-
verki
Margrét Vilhjálmsdóttir fyrir Eldraun-
ina í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikari ársins 2014 í aukahlut-
verki
Bergur Þór Ingólfsson fyrir Furðulegt
háttalag hunds um nótt í sviðsetningu
Borgarleikhússins
Leikkona ársins 2014 í auka-
hlutverki
Nanna Kristín Magnúsdóttir fyrir Óska-
steina í sviðsetningu Borgarleikhússins
Barnasýning ársins 2014
Hamlet litli eftir Berg Þór Ingólfsson í
sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikmynd ársins 2014
Egill Ingibergsson fyrir Gullna hliðið í
sviðsetningu Leikfélags Akureyrar
Búningar ársins 2014
Helga Mjöll Oddsdóttir fyrir Gullna
hliðið í sviðsetningu Leikfélags
Akureyrar
Lýsing ársins 2014
Björn Bergsteinn Guðmundsson og
Petr Hloušek fyrir Furðulegt háttalag
hunds um nótt í sviðsetningu Borgar-
leikhússins
Tónlist ársins 2014
Gunnar Þórðarson fyrir Ragnheiði í
sviðsetningu Íslensku óperunnar
Hljóðmynd ársins 2014
Vala Gestsdóttir og Kristinn Gauti
Einarsson fyrir Litla prinsinn í sviðsetn-
ingu Þjóðleikhússins
söngvari ársins 2014
Elmar Gilbertsson fyrir Ragnheiði í
sviðsetningu Íslensku óperunnar
dansari ársins 2014
Brian Gerke fyrir F A R A N G U R í svið-
setningu Íslenska dansflokksins
danshöfundur ársins 2014
Valgerður Rúnarsdóttir fyrir F A R A N G
U R í sviðsetningu Íslenska dansflokks-
ins
Útvarpsverk ársins 2014
Söngur hrafnanna eftir Árna Krist-
jánsson. Leikstjórn Viðar Eggertsson.
Framleiðandi Útvarpsleikhúsið á RÚV
sproti ársins 2014
Tyrfingur Tyrfingsson – leikskáld
fyrir Bláskjá í sviðsetningu Óskabarna
ógæfunnar og Borgarleikhússins