Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Blaðsíða 27
Viðtal 27Helgarblað 2.–4. mars 2012
bara verið notuð of stíft. Ég er ekki
viss um að það sé ólöglegt.“
Tapaði á hruninu
„Ég átti hlutabréf í bönkunum þrem-
ur og tapaði því öllu,“ segir Pétur að-
spurður hvort hann hafi sjálfur tap-
að á hruninu. „Það voru um sjötíu
milljónir. Næstum helmingurinn af
eignunum. Það þýðir það að ég vissi
ekki í hvað stefndi. Ég reyndar taldi
mig ekki mega selja sem formann
efnahags- og viðskiptanefndar.“
Taldir þú þig innherja?
„Nei, ég vissi raunar ekki neitt en
það kynni að hafa litið illa út. Ég ótt-
aðist þetta bara ekki meira en þetta.
Þarna sögðu matsfyrirtækin að það
væri bara allt í lagi með allt. End-
urskoðendur komu með reikninga
sem voru glimrandi góðir um mitt
ár. Þetta virtist alveg í lagi þótt ýmis-
legt væri ef til vill að. Að bankarnir
færu á hausinn – það datt engum í
hug. Þegar Glitnir fór þá sögðu allir
hérna á Alþingi að það væri nú gott
að Kaupþing stæði. Það er nú traust-
ur og sterkur banki, sögðu menn.
Það verða bara þessir tveir bankar,
Landsbankinn og Glitnir sem fara.
Þetta sögðu menn daginn áður en
Kaupþing féll.“ Pétur bætir við að
hann sé ekki viss um að Kaupþing
hefði átt að falla. Þar sé ábyrgð Dar-
ling, fjármálaráðherra Bretlands,
mikil.
Sjálfið minnkar
„Einkalífið kemur málinu bara ekki
við,“ svarar Pétur spurningum um
hvort hann haldi einkalífinu með-
vitað út úr umræðunni. „Aðalfórnin
í starfinu er að eftir því sem maður
verður frægari því meira minnkar
sjálf manns. Þú ert til dæmis ekki að
tala við mig sem persónu. Þú ert að
tala við mig sem fígúru,“ segir Pétur.
Er það þá ástæða þess að þú ræð-
ir ekki þína einkahagi við fjölmiðla?
„Meðal annars, já en ég er bara
að segja að mesta fórnin í þessu
starfi er frægðin. Stjörnur sem
fremja sjálfsmorð eða eitthvað slíkt
gera það oft vegna þess að egóið er
horfið. Þau fatta allt í einu að sjálf-
ið er farið. Það tala allir við þau sem
fígúrur. Það er raunar hætt að vera
til sem manneskjur.“ Pétur segist
mjög meðvitaður um þetta og hann
geri það sem hann geti til að spyrna
við að hans eigið sjálf hverfi, eins
og hann orðar það. Hann segist þó
finna að það minnki stöðugt.
„Ég er mjög vakandi yfir þessu
og átta mig mjög vel á því að þú ert
ekkert að tala við mig sem pers-
ónu, þú kemur til að taka viðtal við
stjórnmálamanninn, fígúruna. Svo
kemur þú núna og ætlar að fá einka-
lífið upp á borðið til að flaka mig al-
veg. Ég segi nei takk.“
Finnst þér þú ekki skulda al-
menningi aðgang að þínu einkalífi?
„Nei, ég er bara ekki tilbúinn í það.“
Pétur segist finna fyrir minnk-
andi sjálfi. Fólk hringi í hann á nótt-
unni og hann geti varla farið á veit-
ingastað lengur. Fólki finnist eins og
það eigi hann. „Það henti einhver
eggi í hausinn á mér. Ég hugsa að sá
sami hafi ekki hent eggi í mig pers-
ónulega, vegna þess að honum sé
illa við mig persónulega. Það atvik
er bara hluti af því hvað þingmenn
verða miklar fígúrur. Þeir hætta að
vera til.“
Krabbameinið
kemur engum við
Blaðamaður spyr Pétur út í frétt-
ir af því að hann hafi fyrir nokkru
greinst með krabbamein. Þeirri
spurningu er svarað svipað og öðr-
um spurningum um hans pers-
ónulega sjálf. Veikindi hans komi
engum við. „Ég hef aldrei skilgreint
mig sem sjúkling. Ef ég drepst þá
skal ég láta þig vita,“ segir hann
og hlær en minnir blaðamann um
leið á eigin dauðleika. „Á meðan ég
stend mig í starfinu þá er þetta ekk-
ert mál. Þegar ég get það ekki leng-
ur þá hætti ég bara. Þú átt sjálfur
eftir að drepast líka.“
Fjölskyldumál verða pólitísk
Málefni fjölskyldu Péturs hafa þó
blandast í stjórnmálaumræðuna.
Frægt er þegar Pétur sagði á fundi
að dóttir hans misnotaði bótakerf-
ið. „Það var virkilega ógeðslegt mál.
Ég sagði konu það í trúnaði og hún
óð með það í DV. Blaðið birti virki-
lega meiðandi umfjöllun um dóttur
mína. Ég mun ekki fyrirgefa DV
það.“
Það er samt mál þar sem fjöl-
skylda þín og stjórnmálin bland-
ast saman. „Það eru einmitt svona
mál sem fá mann til að vilja hætta
í pólitík. Menn skyldu passa sig á
að hrekja fólk ekki úr stjórnmálum
með þessu.“
Þingmenn fórna sjálfinu„Sennilega
yrði ég kall-
aður til sem sér-
fræðingur ef ég
væri ekki á þingi
„Þú ert til dæmis
ekki að tala við mig
sem persónu. Þú ert að
tala við mig sem fígúru.
Miklir hagsmunir Pétur segir
mikla hagsmuni að baki stjórn-
málaflokkunum. „Sumir flokkar
mega ekki segja styggðarorð um
Alþýðusambandið, aðrir geta ekk-
ert sagt um Samtök atvinnulífsins
og þriðji flokkurinn má ekkert segja
um sjávarútveg.“ Myndir SigTryggur ari