Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Síða 32
32 2.–4. mars 2012 Helgarblað Hvenær og hvar ertu fædd? „Ég fæddist á Akranesi þar sem pabbi var skólastjóri og mamma húsmóðir á Hagkaupsslopp með rúllur í hárinu. Ég stundaði mikla ánamaðkarækt í blómabeðunum á meðan óþekktarormarnir Arnar og Bjarki, sem mamma passaði, spörk- uðu bolta á milli sín. Ég man ekki mikið frá Akranesi en ég fæddist þar árið 1972 með naflastrenginn vaf- inn þrjá hringi í kringum hálsinn. Það ku vera lukkumerki.“ Hvar ertu uppalin? „Fjölskyldan flutti fyrst frá Akranesi þegar ég var fimm ára og uppeldi mitt fór svo fram í Svíþjóð, aftur á Akranesi, Reykjavík, aftur í Svíþjóð, Bandaríkjunum, Mexíkóborg, Pu- erto Angel, Reykjavík, Kópavogi, Spáni, aftur í Kópavogi og þá taldi ég mig að fullu uppalda og yfirgaf foreldrahús.“ Hvernig var skólaganga þín? „Alls konar og fjölbreytt og oft var hún meira að segja menntandi. Ég slapp þó í gegnum skólakerfi ým- issa landa án þess að læra að draga almennilega til stafs svo að hand- skriftin mín er með afburðum ljót, sem mér finnst mjög leiðinlegt þeg- ar ég þarf að árita bækur en skiptir að öðru leyti engu máli. Ég sakna þess líka að hafa ekki lært að prjóna, svona eins og börn læra í íslenskum skólum. Ég hef séð hvað prjónaskapur er mörgum konum mikil huggun í harðræði lífsins. “ Áttu þér eftirminnilegan afmælisdag? „Flest afmælin mín eru í einhverri þoku en hin síðari ár hef ég átt mörg góð því mín heittelsk- aða hefur gert mér dagamun með ýmsum hætti. Oft í útlöndum.“ Hvernig sástu fyrir þér lífið um fertugt sem barn og unglingur? Hverjir voru draumar þínir þá? „Sem barn hélt ég að ég yrði njósn- ari fyrir utanríkisþjónustuna en svo viku þær væntingar fyrir draumi um að verða rithöfundur. Mest langaði mig samt að verða hamingjusöm og góð manneskja og það er í sífelldri vinnslu og gengur vel, finnst mér.“ Hvernig hafa draumarnir breyst? „Rithöfundardraumurinn er enn til staðar og hefur ræst að nokkru. Njósnaradraumurinn hefur alveg gufað upp en ég er samt alltaf sold- ið veik fyrir James Bond og svoleiðis týpum.“ Hvað ætlar þú að gera í tilefni afmælis þíns? „Ég ætla að kaupa lífræna am- eríska nautasteik og elskan mín ætlar að skella henni á grillið fyrir gestina okk- ar hér úti í St. Augustine í Flórída. Ég er að hug- leiða meðlætið með steikinni sem verður örugglega salat og eitt- hvert suðurríkjagums. Svo vona ég að þau syngi fyrir mig úti í garði.“ kristjana@dv.is Lilja Sigurðardóttir rithöfundur er fertug í dag, 2. mars. Njósnaradraumurinn hefur alveg gufað upp 1. mars Justin Bieber tónlistarmaður varð 18 ára Fæddur árið 1994. Um Justin Bieber: Justin er kanadískur tón- listarmaður sem sló fyrst í gegn á YouTube. Markvert: Lag hans Baby komst á topp-tíu lista um allan heim. 2. mars Mikhail Gorbatsjev er 81 árs Fæddur árið 1931. Um Gorbatsjev: Stjórnmálamaður og leiðtogi sem barðist fyrir opnara samfélagi og umbótum. Markvert: Gorbatsjev hlaut friðarverðlaun Nóbels 1990. Stórafmæli Afmælisbarnið E f ég segi nú alveg satt þá er nú búið að gera mikið grín að mér,“ segir Elvar Örn Ægisson sem verður þrí- tugur á laugardaginn. „Er þetta nú samt svo mikið verra en hvað annað?“ spyr hann hlæjandi. „Ég er allavega ennþá 29 ára gamall. Þetta rennur ekki í garð fyrr en á laugardaginn.“ Elvar er elstur þriggja bræðra og starfar með þeim yngsta, Steinari Val, á renniverkstæði föður þeirra, Ægis Kára Bjarnasonar. Þar vinnur karlinn sjálfur sem og móðir þeirra, Herdís Eyjólfs- dóttir. Elvar segist ekki hræðast að verða þrítugur. „Ég hlakka samt ekkert til að fara í þennan félagsskap í næstu viku. Það verður pottþétt gert grín að manni. En maður eldist alltaf. Til þess er leik- urinn gerður,“ segir Elvar Örn sem ætlar að halda upp á tímamótin með stæl um helgina. „Það verður haldið upp á þetta með pomp og prakt. Það verður bara grín og gleði. Maður verður að halda sér ung- um,“ segir Elvar Örn. „Maður verður með fjölskyldunni og félögunum. Það verður að kveðja þennan góða áratug með stæl.“ Elvar er trúlofaður Katrínu Ösp Hall- dórsdóttur, f. 23.01. 1984, og saman eiga þau eina dóttur, Írisi Lind Elvarsdóttur, f. 06.01. 2009. Faðir Elvars er Ægir Kári Bjarnason, eigandi Renniverkstæðis Ægis, f. 01.04. 1954, og móðir hans er Herdís Eyjólfsdóttir, f. 04.08. 1957. Elvar á tvo bræður, Rúnar Rafn Ægisson, f. 15.01. 1986, sem býr ytra, og Steinar Val Ægisson, f. 23.11. 1987. „Það verður bara grín og gleði“ Elvar Örn Ægisson verður þrítugur þann 2. mars. Falleg feðgin Elvar með dóttur sinni, Írisi Lind. „Mest langaði mig samt að verða hamingjusöm og góð manneskja og það er í sífelldri vinnslu og gengur vel, finnst mér. Vildi verða njósnari Væntingarnar véku fyrir rithöfunda- draumi, segir Lilja Sigurðardóttir. Falleg boðskort Prentsmiðjan og hönnunarstofan Reykjavík Letterpress er staðsett á Lindargötunni og sérhæfir sig í fallegri prentun fyrir ýmiss konar tilefni. Falleg boðskort gefa til kynna velvild gestgjafans og vekja eftirvæntingu. Það eru Hildur Sig- urðardóttir og Ólöf Birna Garðars- dóttir, grafískir hönnuðir, sem eru eigendur Reykjavík Letterpress en þær stunda „letterpress“-prentun af mikilli ástríðu eins og sjá má. Gómsætur kaffikokteill Ef þig langar að vera aðeins öðru- vísi á afmælisdaginn er um að gera að bjóða upp á kaffikok- teilinn Espresso Martini. Hann er bæði gómsætur og svo þarftu ekki að hafa miklar áhyggjur af því að nokkur maður fari heim of snemma úr veislunni. Það ætti að vera nokkuð líflegt í kringum þig. Innihald n Einn hluti kaffilíkjör n Tveir hlutar vodka n Tveir hlutar espressókaffi Aðferð Hellið kaffilíkjörnum, vodkanu og espressókaffinu í kokteilhristara sem er fullur af klökum. Hristið gríðarlega vel. Hellið svo í kælt kokteilglas og berið fram. Drykkinn skal bera fram með smá froðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.