Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Qupperneq 56
Nú er ég smeykur! Missti af frumsýningunni n Jóhannes Haukur Jóhannesson leik­ ari missti af frumsýningu á kvik­ myndinni Svartur á leik á fimmtu­ dagskvöld. Jóhannes Haukur, sem fer með eitt af aðalhlutverkum myndarinnar, var staddur í Þjóð­ leikhúsinu þar sem hann lék í söngleiknum Vesaling­ unum en um forsýn­ ingu var að ræða. Söngleikurinn verður frumsýndur á laugardag og hef­ ur Jóhannes Hauk­ ur, líkt og aðrir aðstandendur sýningarinn­ ar, unnið baki brotnu undan­ farna daga við að gera söngleikinn kláran fyrir sýningar. Actavis auglýsti á Wembley n Þeir sem horfðu á vináttuleik Eng­ lands og Hollands í knattspyrnu síð­ astliðið miðvikudagskvöld tóku ef­ laust eftir auglýsingum frá íslenska samheitalyfjafyrirtækinu Actavis. Auglýsingar fyrirtækisins birtust á skiltum á þjóðarleikvangi Englend­ inga, Wembley, meðan á leiknum stóð. Afar fátítt er að íslensk fyrir­ tæki auglýsi á jafn stórum íþróttaviðburðum en ætla má að fleiri millj­ ónir manna hafi horft á leikinn. DV greindi frá því á dögunum að Björgólfur Thor Björgólfsson, eigandi Acta vis, skoði nú möguleik­ ann á að selja fyrir­ tækið til bandaríska lyfjafyrirtæk­ isins Watson. Þóttist tala við Obama n Jón Gnarr borgarstjóri leyfði út­ varpsmanni Rásar 2 að fylgjast með sér í vinnunni hefðbundinn vinnu­ dag í vikunni. Stutt var í sprellið hjá borgarstjóranum sem setti á svið símtal við Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. Í símtalinu þóttist Jón spjalla kumpánlega við Obama en þurfti að enda samtalið þar sem hann sagðist hafa lítinn tíma til að tala við þennan valda­ mesta mann heims, skilaði kveðju til kon­ unnar hans og kvaddi. Þá sagði borgar­ stjórinn að Bono, söngvari U2, væri alltaf að reyna að ná í sig en hann hefði ekki gefið sér tíma til að ræða við hann. Þ etta hefur sótt þungt að mér,“ segir sjáandinn Lára Ólafs­ dóttir sem setti sig í samband við DV eftir að skjálftanna í Helgafelli varð vart á höfuðborgar­ svæðinu aðfaranótt fimmtudags. Voru upptök skjálftanna suðaustan við Helgafell, sunnan Hafnarfjarðar. Íbúar höfuðborgarsvæðisins kippt­ ust margir til í skjálftunum og þá urðu einhverjar skemmdir á húsum í Hafnarfirði. Lára hefur áður tjáð sig um jarð­ hræringar í fjölmiðlum og spáði meðal annars fyrir um stóran skjálfta sumarið 2009 sem reið aldrei yfir. „Málið er það að ég finn eitthvað á mér í sambandi við þessa skjálfta. Ég er ekki að hræða neitt. Ég finn þetta bara á mér og finnst eins og ég eigi að láta ykkur vita,“ segir hún áhyggju­ full. „Við ættum kannski að hafa var­ ann á,“ segir Lára sem segist fá ein­ hverja tilfinningu sem sæki að sér nálægt Reykjavík, án þess að tilgreina neitt sérstaklega um hvað ræðir. „Þetta er bara ofsalega sterk til­ finning. Mér finnst það vera ein­ hvers konar jarðhræringar,“ segir Lára og segir að líklega sé um jarð­ skjálfta að ræða. „Ég vil engum illt. En það sem ég finn á mér er það að ef eitthvað gerist þá veit ég að það fer vel.“ Lára hefur áður lýst því í við­ tali við tímaritið Vikuna að hún hafi séð Suðurlandsskjálftann fyrir árið 2008. Sagðist hún í viðtalinu hafa hringt í Veðurstofuna tíu dögum fyr­ ir skjálftann og látið þá vita. Skjálft­ arnir riðu svo yfir skömmu síðar. „Hefur sótt þungt að mér“ n Segist sjá fyrir stóran skjálfta á höfuðborgarsvæðinu Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 2.–4. marS 2012 26. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. Skjálfti Lára hefur þungar áhyggjur af skjálftavirkni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.