Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2014, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2014, Qupperneq 47
Menning 47Helgarblað 29. ágúst–1. september 2014 Roth Bar & Grill í Somerset miðstöðvarinnar n Breyttu jeppa í rútu í jakkafötunum n „Svolítið magnað verkefni“ Bókabúð Bókaverslun sem Roth-fegðar hönnuðu en í september bætist við önnur búð þar sem seldar verða vörur frá býlum í nágrenninu. Mynd Bjarni GríMsson Öflugt teymi Björn í forgrunni en á myndinni eru einnig hinn hárfagri Goddur Magnússon og synir Björns, þeir Einar og Oddur. Á bak við myndavélina er Bjarni Grímsson. Mynd Bjarni GríMsson Hinir raunverulegu verkstjórar Tóta, Dísa, Imba, Tinna og Vera. Mynd Bjarni GríMsson oddur stýrir aðgerðum Heimafólk gæðir sér á afurðum úr sveitinni. Mynd Bjarni GríMsson Kokkar og feðgar Sáu um að elda ofan í flokkinn. Mynd Bjarni GríMsson roth-lambið Oddur og Björn við heilgrillað lamb en kokkunum þótti snjallt að skera nafn þeirra feðga í skrokkinn. Mynd Bjarni GríMsson alsæl Oddur ásamt Manuellu Wirth sem stofnaði Hauser & Wirth ásamt eiginmanni sínum og móður. Mynd Bjarni GríMsson roth Bar & Grill Veitingastaður og bar með lifandi músík og uppákomum þar sem nóg er af mat og drykk. Mynd Bjarni GríMsson Getur húmor elst vel? Dómur um kvikmyndina Monty Python Live (Mostly) S agt hefur verið að Monty Python séu það fyrir húmor sem Bítlarnir voru fyrir popptónlist, en ólíkt Python komu Bítlarnir aldrei saman eftir að þeir hættu. Monty Python hafa ekki samið nýjan brandara í rúm 30 ár, eða alveg síðan Meaning of Life kom út árið 1983. Það skiptir litlu máli, fólk er jú hingað komið til að heyra gamla efnið. En eldast brandarar jafnvel og popptónlist? Já og nei. Klúru brandararnir minna helst á Benny Hill þegar þeir eru fluttir af mönnum á áttræðis- aldri. Sérstaklega hafa brandarar er varða samkynhneigð elst illa og þeir eru frekar margir. Sumt sem þótti hneykslanlegt árið 1969 þykir til vitnis um gamaldags hugarfar í dag. Annað er með því fyndnara sem hefur verið gert af nokkrum nokkurn tímann, svo sem fótboltaleikur grískra og þýskra heimspekinga, sem var einmitt rifj- aður upp í sumar þegar Þjóðverjar urðu heimsmeistarar. Þann brandara fáum við í upp- runalegri útgáfu, en flestir aðrir eru leiknir af Python-mönnum á sviði í dag. Og það verður að segjast eins og er að aldurinn er farinn að segja til sín. Sá sem mest líf er í er Banda- ríkjamaðurinn Terry Gilliam, enda sá sem hefur stigið lengst út úr Python-skugganum sem leikstjóri mynda eins og 12 Monkeys og Brazil. Honum þykir augljóslega gaman að fá að gera þetta aftur, en sá sem mest hefur elst er KB banka talsmaðurinn John Cleese, sem á stundum erfitt með að muna línur sínar. Söng og dansatriðin eru að mestu óþörf og virðast helst til þess gerð að gefa gömlu mönnunum tíma til að hvíla sig á milli atriða. Stjörnur eins og Eddie Izzard, Mike Myers og stjarneðlisfræðingurinn Stephen Hawking eru dregnar fram án þess að fá mikið að gera (nema Hawking, sem syngur lag). En þrátt fyrir alla þessa vankanta má alltaf hafa gam- an að Monty Python, og jafnvel þegar þeir gleyma línum sínum eða fara að hlægja að eigin bröndurum í miðj- um klíðum tekst þeim að sjarmera og fyrir gefst margt. Líklega er það besta við sýn- inguna stiklan þar sem Mick Jagger er að hneykslast á því að gamlir menn nenni að endurtaka sama efni endalaust, en stöku sinnum er maður minntur á að þegar þeir eru fyndnir, þá gerist enginn fyndnari. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmynd Monty Python Live (Mostly) iMdb 8,1 Leikstjórn: Eric Idle Handrit og aðalhlutverk: John Cleese, Eric Idle, Michael Palin, Graham Chapman, Terry Jones og Terry Gilliam sýnd í Bíó Paradís - 162 mínútur Monty Python Live (Mostly) „Þrátt fyrir alla þessa vankanta má alltaf hafa gaman að Monty Python, og jafnvel þegar þeir gleyma línum sínum eða fara að hlægja að eigin bröndur- um í miðjum klíðum tekst þeim að sjarmera og fyrirgefst margt.“ Mynd andy Gotts

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.