Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2014, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2014, Side 52
Helgarblað 29. ágúst–1. september 201452 Fólk Zooey Deschanel í Silver Linings Playbook Leikkonan Jennifer Lawrence hlaut Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt sem Tiffani Maxwell í kvikmyndinni Silver Linings Playbook. Það sem fæstir vita er að engu munaði að New Girl-leikkon- an Zooey Deschanel hreppti hlutverkið. Mennskur verðlauna- gripur Leikkonan Sofia Vergara gekk fram af mörgum á Emmy- verðlaunahátíðinni á mánu- dag þegar hún steig upp á stall, sem hringsnerist hægt, í þeim tilgangi að sýna áhorfendum líkams vöxt sinn á meðan forseti Sjónvarpsakademíunnar hélt sína ræðu. Samskiptamiðlar á borð við Twitter loguðu meðan á þessu atriði stóð og sögðu flestir að í því fælist bæði kynjamisrétti og hlutgerving kvenna. Vergara sagði sjálf atriðið þvert á móti sýna að konur gætu verið bæði kynþokkafullar og haft húmor fyrir sjálfum sér. Hlutverkin sem þær misstu af Sum hlutverk fylgja leikurum um alla tíð. Þetta eru hlutverkin sem marka ákveðna stefnu á leiklistarferli þeirra og eru þeir minntir á persónurnar í nánast hverju einasta viðtali eða umfjöllun. Eftirfarandi leikkonur höfnuðu eða rétt misstu af stórum hlutverkum sem hefðu getað haft afdrifarík áhrif á leikferil þeirra. Katie Holmes í Orange is the New Black Jenji Kohan, höfundur vinsælu sjónvarpsþáttaraðarinnar Orange is the New Black, hefur sagt opinberlega frá því að upphaflega hafi hann viljað leikkonuna Katie Holmes í aðal- hlutverk þáttanna. „Ég er mikill aðdáandi Holmes. Við hittumst og ræddum um að hún færi með hlutverk Piper,“ sagði Kohan í viðtali við E!-sjónvarpsstöðina. Engum datt hins vegar í hug að þættirnir ættu eftir að ná jafnmiklum vinsældum og sagðist leikkonan vera „upptekin“ í öðrum verkefnum. Taylor Schilling fékk hlutverkið. Lucy Hale í 50 Shades of Grey Leik- og söngkonan Lucy Hale fór í áheyrnarprufur fyrir hlutverk Anastasíu í kvikmyndinni 50 Shades of Grey. „Þetta var tveggja síðna ein- ræða um nákvæmlega það sem maður átti von á. Mjög óþægilegt,“ sagði hún í viðtali við MTV. Hlutverkið fór að lokum til leikkonunnar Dakotu Johnson. Gwyneth Paltrow í Titanic Fáir geta séð fyrir sér einhverja aðra en Kate Winslet í hlutverki Rose Dewitt í kvikmyndinni Titanic en Gwyneth Paltrow kom víst sterklega til greina. Þá var Matthew McConaughey orðaður við hlutverk Jacks en það fór að lokum til Leonar- dos DiCaprio. Jennifer Lawrence í Twilight Óskarsverðlaunaleikkonan Jennifer Lawrence fór í prufur fyrir hlutverk Bellu Swan í Twilight-seríunni en eins og flestir vita fór hlutverkið að lokum til leikkonunnar Kristen Stewart. Lawrence hreppti síðar sitt eigið ævintýrahlutverk þegar hún var fengin til þess að leika Katniss Everdeen úr Hungurleikabókunum. Kate Winslet í Bridget Jones‘s Diary Ótal leikkonur voru orðaðar við hlutverk Bridget Jones á sínum tíma. Bresku leikkonurnar Kate Winslet, Helena Bonham Carter og Rachel Weisz komu allar til greina fyrir hlutverkið en að lokum fór það til bandarísku leikkonunnar Renee Zellweger og átti kvikmyndin eftir að umturna ferli hennar. Anne Hathaway í Knocked Up Frumraun Katherine Heigl á hvíta tjaldinu í kvik- myndinni Knocked Up féll í hendurnar á henni vegna þess að Anne Hathaway hafði hafnað hlutverkinu. „Ég hafnaði hlutverkinu í kvikmyndinni því það átti að sýna píku – ekki mína, einhverrar annarrar,“ sagði Hathaway á sínum tíma. „Og mér fannst það í raun ekki nauðsyn- legur hluti af sögunni.“ Líkir sér við Díönu prinsessu Söngvarinn Justin Bieber líkti sjálfum sér við Díönu prinsessu heitna eftir að hafa lent í árekstri við ljósmyndara í vikunni. Bieber var að keyra rauða Ferrari-bíl- inn sinn um götur Los Angel- es síðastliðinn þriðjudag þegar hann tók eftir því að ljósmyndari á Prius var að elta hann. Steig hann fast á bremsuna sem varð til þess að sá sem elti keyrði aft- an á hann. Engin meiðsl urðu á fólki en sportbíll söngvarans varð fyrir nokkru hnjaski. „Við ættum að hafa lært af dauða Díönu prinsessu,“ skrifaði hann meðal annars á Twitter-síðuna sína um atvikið. Elskar að striplast Íslandsvinurinn Kit Harington, sem er best þekktur fyrir hlut- verk sitt sem Jon Snow í þáttun- um Game of Thrones, viður- kenndi það fyrir blaðamanni People í vikunni að hann væri sjúkur í nektarsund (e. skinny- dipping). „Ég veit ekki hvers vegna, kannski er ég striplingur í hjarta,“ sagði hann á rauða dregl- inum á Emmy-verðlaunahátíð- inni í vikunni. Harington sagðist yfirleitt stunda þessa iðju sína að næturlagi en neitaði að gefa upp staðsetningar þegar hann var inntur eftir því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.