Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Síða 2
Helgarblað 12.–15. september 20142 Fréttir
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
ESB: Stefna enn
að afturköllun
n Árni Páll: „Þjóðin gerði hana afturreka síðast“ n Minntust ekki á ESB
R
íkisstjórnin stefnir enn að
því að afturkalla aðildarum-
sókn Íslands að Evrópusam-
bandinu. Í málaskrá hennar
kemur fram að þingsálykt-
unartillaga um slíkt verði lögð fram
á þessu þingi. Árni Páll Árnason, for-
maður Samfylkingarinnar, upplýsti
um þetta í umræðum um stefnu-
ræðu forsætisráðherra á miðvikudag
og gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega.
„Þjóðin gerði hana afturreka síðast
þegar hún gerði tilraun til að leggja
slíka tillögu fram. Það er mikilvægt
að við stöndum saman um að hrinda
á nýjan leik atlögu af þeim toga að
sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar,“
sagði hann.
Gjaldeyrishöft í EES
Hvorki Sigmundur Davíð né Bjarni
Benediktsson minntust orði á
stöðu Íslands gagnvart Evrópusam-
bandinu í stefnuræðum sínum. Um
vandræðamál er að ræða, enda varð
uppi fótur og fit þegar ríkisstjórnin
lagði fram þingsályktunartillögu um
afturköllun umsóknarinnar í fyrra.
Þúsundir manna söfnuðust saman á
Austurvelli viku eftir viku svo ekkert
varð úr áformum stjórnarliða. Enn
virðist þó standa til að draga um-
sóknina til baka, jafnvel þótt skoð-
anakannanir bendi til þess að mikill
meirihluti Íslendinga vilji kjósa um
málið.
Bjarni Benediktsson, fjármála-
og efnahagsráðherra, mun síðar í
mánuðinum flytja greinargerð um
stöðu afnáms gjaldeyrishafta. Þá
kann að skýrast með hvaða hætti
ríkisstjórnin hyggst halda í krónuna
sem gjaldmiðil en um leið uppfylla
ákvæði EES-samningsins um frjálsa
fjármagnsflutninga. Mikið veltur á
samningnum fyrir Ísland, enda veit-
ir hann aðgang að innri markaði
Evrópusambandsins þar sem um
sjötíu prósent allra viðskipta Íslands
við útlönd fara fram.
„Láglaunaland með hæstu
vexti í Evrópu“
„Umsókn Íslands um aðild að
Evrópusambandinu gaf þjóðinni
mikilvægt skjól til þess að fást við
hrunið og það hefði verið skynsam-
legt að halda áfram að vinna með
Evrópuþjóðum að lausnum á gjald-
eyrisvandamálinu,“ sagði Árni Páll
á miðvikudag. „Öllum þeim tæki-
færum sem aðildarumsóknin skap-
aði hefur ríkisstjórnin klúðrað. Hjá
henni virðist enn sem fyrr skipta
mestu að tryggja aðstöðu þeirra for-
réttindahópa sem að henni standa,
þeirra sem vilja verja sig samkeppni
erlendis frá og eiga kvótann sinn í
friði um alla eilífð án endurgjalds
og tryggja að Ísland verði áfram lág-
launaland með hæstu vexti í Evrópu.“
Í sömu umræðum sakaði Gunn-
ar Bragi Sveinsson utanríkisráð-
herra stjórnarandstöðuna um van-
trú á landi og þjóð. „Það eru þó til
þeir sem ekki hafa trú á sjálfsbjörg
íslensku þjóðarinnar og telja framtíð
hennar betur komið í fangi annarra.
Raddir þessara úrtölumanna munu
fljótlega þagna vegna dugnaðar og
útsjónarsemi Íslendinga,“ sagði hann
og bætti við: „Nú þegar kastað hefur
verið rekunum yfir umsókninni að
Evrópusambandinu má líka velta
fyrir sér hvort áherslumál stjórnar-
andstöðunnar verði eingöngu þau
að fikta í klukkunni og krefjast við-
skiptabanns á útflutningsfyrirtæki
Íslands.“ n
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
„Raddir þessara
úrtölumanna
munu fljótlega þagna
vegna dugnaðar og
útsjónarsemi Íslendinga.
Vilja afturkalla Enn stefnir ríkisstjórnin að algjörum viðræðuslitum og afturköllun á
umsókn Íslands að Evrópusambandinu.
Bjartsýnn og
þjóðrækinn Segir
stjórnarandstöðuna
skorta trú á landi og
þjóð. Mynd SiGtryGGur Ari
A
ðalmeðferð í máli nímenn-
inganna, sem ákærðir voru
fyrir að óhlýðnast lögreglu í
Gálgahrauni hinn 21. október
síðastliðinn, hófst á fimmtudag. Níu
einstaklingar, tveir karlar og sjö kon-
ur, hafa verið ákærð fyrir að óhlýðnast
fyrirmælum lögreglu þegar þau mót-
mæltu vegagerð í Gálgahrauni hinn
21. október síðastliðinn. Tugir manns
voru handteknir í hrauninu og færðir
í einangrun, en einungis hluti hóps-
ins var ákærður. Aðgerðir lögreglu
voru viðamiklar en Álftanesvegin-
um var meðal annars lokað á meðan
sérstök aðgerðarsveit lögreglunnar –
um fjörutíu lögreglumenn – handtók
mótmælendur og færði þá í fanga-
geymslur lögreglu.
Mótmæli Hraunavina voru frið-
samleg og fólust að mestu leyti í því að
sitja í hrauninu og færa sig ekki úr stað
þrátt fyrir fyrirskipanir lögreglu. Hluti
þeirra var af þeim sökum borinn burtu
úr hrauninu með valdi. Lögreglan vís-
aði til þess að fólkið væri að trufla
framkvæmdir inni á vinnusvæði en
mótmælendur bentu á að lögreglan
hefði skilgreint mörk vinnusvæðis-
ins eftir á. Þannig hafi borðar sem
áttu að skilgreina vinnusvæðið verið
færðir til af lögreglumönnum og inn
á svæðið þar sem mótmælendur sátu.
Ómar Ragnarsson og Eiður Guðnason
þurftu að fara úr dómsal á fimmtudag
vegna þess að þeir voru vitni í málinu,
auk fleiri vitna sem höfðu tekið sér
sæti. Fjölmargir þeirra sem tóku þátt
í mótmælunum voru á miðjum aldri
eða eldri og neituðu flestir að færa sig
um set þegar lögregla krafðist þess. n
Réttað yfir nímenningum
Tugir voru handteknir, aðeins níu ákærðir
Voru ákærð Nímenningarnir mættu allir fyrir dóm á fimmtudag.
Hlaupa 6.500
kílómetra
Starfsmenn Marels á Íslandi
ætla að hlaupa samtals 6.500
kílómetra á einum sólarhring
um helgina. Þetta ætla starfs-
mennirnir að gera til að safna
áheitum til styrktar börnum í
SOS-þorpinu í Yamoussoukro á
Fílabeinsströndinni. 6.500 kíló-
metrar eru einmitt vegalengd-
in milli Íslands og Fílabeins-
strandarinnar. „Vissulega er
þetta löng vegalengd en hlaup-
inn verður 5 kílómetra hringur í
Heiðmörk. Alls þarf að ná 1.300
hringjum til að ná takmarkinu en
ræst verður í hlaupið klukkan 11 í
dag, föstudag, og stendur það yfir
í sólarhring. Á milli klukkan 16
og 18 verður svo fjölskylduhátíð í
gangi í Austurhrauninu þar sem
mikið verður um að vera en auk
þess sem hlaupið verður í fullum
gangi verður einnig 800 metra
krakkahlaup sem telur upp í
vegalengdina,“ segir í tilkynningu
frá Marel. Kári Steinn Karlsson
ofurhlaupari ætlar að leggja ver-
kefninu lið og hlaupa með okk-
ur nokkra hringi á föstudaginn.
„Samhliða þessu markmiði söfn-
um við áheitum og það gerum
við inn á www.tourdemarel.com.
Í fyrra söfnuðum við 11,5 millj-
ónum króna sem notaður voru til
að byggja nýjan grunnskóla fyr-
ir börnin í Yamoussoukro og í ár
ætlum við að safna fyrir rekstri
skólans og tryggja þannig þeim
210 börnum sem stunda nám við
skólann gæðamenntun. Skólinn
verður opnaður núna 15. sept-
ember næstkomandi og gjörbylt-
ir aðstæðum þessara barna til
náms.“
Meiri afgangur
í Kópavogi
Rekstrarafgangur Kópavogs-
bæjar er meiri en áætlanir
gerðu ráð fyrir, en hann skilar
452 milljóna afgangi. Gert var
ráð fyrir 667 milljóna afgangi
fyrir allt árið í fjárhagsáætl-
un bæjarins, en nú þegar sex
mánuðir voru liðnir af árinu
hafi afgangur verið 452 millj-
ónir króna. Ármann Kr. Ólafs-
son bæjarstjóri segir enn þurfa
að gæta aðhalds í rekstri, en
segist vonast til að geta haldið
áfram að lækka skuldir bæjar-
ins sem eru umtalsverðar.