Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Side 32
Helgarblað 12.–15. september 201432 Fólk Viðtal
H
ann er glaðlegur. Stutt í
brosið. Situr með hvítan
kaffibolla með kolsvörtu
kaffi í fyrir framan sig.
Hvítt og svart. Segja má að
breytingin á lífi hans sumarið þegar
hann var 13 ára hafi verið; jú, eins
og hvítt og svart. Þetta var skellur.
Áfall. Sjokk. Áfall sem hann sagði
ekki frá. Hann brosti framan í heim-
inn. Þetta bros náði hins vegar ekki
til augnanna. Hann setti upp grímu;
lék ákveðið hlutverk næstu árin.
Það var vor og fyrsta starfið tryggt:
Hann átti að vinna sem pikkoló á
Hótel Sögu um sumarið. Spennan
var mikil.
„Mér fannst þetta vera stjarn-
fræðilega gaman. Ég er félagsvera
og mér fannst gaman að hitta alla
þessa útlendinga. Vinnan sem slík
var ekkert rosalega erfið en mér
fannst ég vera í ábyrgðarstöðu. Það
voru gerðar væntingar til mín; ég
var andlit hótelsins, stóð og opnaði
dyrnar og bauð fólki góðan daginn.
Ég lærði ýmislegt um mannleg
samskipti. Það var mjög gaman
fyrsta mánuðinn en svo myndaðist
þessi dökki blettur; þetta varð „hell
on earth“ eins og maður segir. Þetta
var djöfull að bera.“
Fann fyrir skömm
Henry leggur áherslu á að 13 ára
unglingur spái almennt ekki í hluti
eins og kynferðislega áreitni. „Ég
man ekki eftir því að það hafi ver-
ið talað um kynferðislega áreitni,
nauðganir eða nokkurn skapað-
an hlut á þessum tíma. Ég viður-
kenni að ég vissi ekki mitt rjúkandi
ráð þegar þetta byrjaði; ég vissi ekki
hvernig ég átti að taka á þessu. Ég
vissi í rauninni ekkert um þetta. Ég
fann samt fyrir skömm.“
Henry segir að þeir hafi verið
fleiri strákarnir sem unnu á Hót-
el Sögu sem Karl Vignir misnotaði
þetta sumar fyrir rúmum 30 árum.
Hefði einhver trúað þessu?
Henry hætti að vilja fara í vinnuna
á morgnana en fólk skildi ekki af
hverju. Nei, hann sagði ekki frá. „13
ára barn á mjög erfitt með að koma
þessu frá sér. Svo var það eitt – hefði
einhver trúað mér?“
Þögn.
„Mér fannst Karl Vignir vera
„Þetta var djöfull að bera“
13 ára strákur fékk sumarvinnu sem pikkoló á Hótel Sögu fyrir rúmum 30 árum. Spennandi sumar breyttist í
martröð þegar yfirmaður hans, Karl Vignir Þorsteinsson, misnotaði hann kynferðislega. Henry Ragnarsson
vann í sínum málum mörgum árum síðar. Hann segir mikilvægt að þeir sem eru misnotaðir segi frá þótt þeir
finni jafnvel fyrir skömm eins og hann gerði. Henry sagði sögu sína í Kastljósi fyrir rúmu ári. Karl Vignir játaði í
kjölfar umfjöllunar Kastljóss um hann að hafa níðst um áratugaskeið á fjölda barna og var handtekinn í kjöl-
farið. „Drifkraftur minn hefur verið að hjálpa öðrum og láta vita að það er líf eftir slysin. Þetta er náttúrlega
algjör viðbjóður í alla staði en það sést til sólar einn daginn.“ Henry hefur áhuga á að stofnað verði félag sem
væri hugsað fyrir þá sem lenda í sömu sporum og hann.
„Mér
fannst
hann búa yfir
þeim hæfileika
að geta talað
sig inn á alla.
Henry Ragnarsson „Mér finnst að ef ein-
hverjum er nauðgað ætti hjálpin að koma til
viðkomandi og ætti hún öll að vera á einum
stað svo sem læknisskoðun, áfallahjálp og
sálfræðiaðstoð; viðkomandi ætti hugsan-
lega að vera lagður inn ef hann er í þannig
ástandi vegna áfalls.“ MyndiR SigtRygguR ARi