Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Side 52
52 Fólk Helgarblað 12.–15. september 2014
Hræddur við
postulínsdúkkur
Stórleikarinn Channing Tatum
viðurkenndi í spjallþætti Ellen
DeGeneres á dögunum að hann
væri skíthræddur við postulíns-
dúkkur. Þar sem leikarinn hefur
skorið höfuðið af skröltormi, og
borðað það, í þáttunum Running
Wild with Bear Grylls, og kom-
ið nánast nakinn fram í kvik-
myndinni Magic Mike, kom þetta
aðdáendum hans heldur á óvart.
Ellen hafði að sjálfsögðu heyrt
af fælni leikarans og var með
ógnvekjandi postulínsdúkkur í
myndverinu sem hún dró fram í
viðtalinu. Af líkamstjáningu leik-
arans að dæma var honum ekki
skemmt.
Lýsir sig sekan
Leikarinn Shia LaBeouf lýsti sig
sekan um óspektir á almannafæri
fyrir dómi síðastliðinn miðviku-
dag. Málið varðar uppátæki hans
á Broadway-sýningu í júní síðast-
liðnum þar sem hann kveikti sér
í sígarettu í miðri sýningu, öskr-
aði á leikarana á sviðinu og bölv-
aði öryggisvörðunum sem þurftu
að bera hann út af sýningunni.
LaBeouf hefur að sögn farið í
áfengismeðferð frá því atvikið átti
sér stað og verður málið látið nið-
ur falla ef leikarinn verður edrú í
minnst þrjá mánuði og hagar sér
vel í sex mánuði. LaBeouf neitaði
að tjá sig um málið við fjölmiðla
að réttarhöldum loknum.
Á von á barni
Leikkonan Liv Tyler á von á sínu
öðru barni. Fyrir á hin 37 ára
gamla leikkona níu ára gamlan
son, Milo, með fyrrverandi eig-
inmanni sínum, Royston Lang-
don. Hún er nú í sambandi með
breska umboðsmanninum Dave
Gardner sem einnig er góðvin-
ur David Beckham. Þess má geta
að Gardner lék til að mynda í
heimildarmynd um fótbolta-
kappann, David Beckham into
the Unknown. Tyler er best
þekkt fyrir hlutverk sín í Lord
of the Rings-þríleiknum, kvik-
myndinni Armageddon og The
Incredible Hulk.
Stjörnur í illdeilum
við foreldra sína
n Sjónvarpsstjarna beitt ofbeldi af móður n Leikkona segir pabba sinn geðsjúkling
Frægð og frami fer ekki endilega saman með heil-
brigðu fjölskyldulífi. Raunar hefur frægðin oft á tíð-
um skemmt sambönd stjarnanna við foreldra sína,
líkt og dæmin sanna. Hér má sjá nokkur dæmi um
stjörnur sem hefur sinnast við foreldra sína.
Angelina
Jolie Illdeilur
Angelinu Jolie við
pabba sinn, Jon
Voight, eru með þeim
frægari í Hollywood.
Jafnvel þó svo að
áratugalöngum deilum
á milli þeirra hafi, að
því er ætlað er, lokið
árið 2011 lét Jolie
pabba sinn ekki vita að
hún hygðist láta
fjarlægja á sér bæði
brjóstin til þess að
koma í veg fyrir að hún
fengi krabbamein.
Hann las um það á
netinu líkt og við hin.
Þá var Voight heldur
ekki boðið í brúðkaup
Jolie og Brad Pitt á
dögunum.
Kobe Bryant Körfuboltastjarnan Kobe Bryant
hefur staðið í illdeilum við foreldra sína, Pamelu og Joe, frá því á
síðasta ári þegar hann kærði þau fyrir að hafa selt yfir sjötíu
minnisverða hluti frá körfuboltaferlinum hans án samþykkis.
Málinu lauk með dómsátt og var foreldrum Bryant gert að biðja
son sinn opinberlega afsökunar.
Lindsay Lohan
Lindsay Lohan hefur átt í ástar/
haturssambandi við pabba
sinn, Michael, í mörg ár.
Vandlega er farið yfir deilur
þeirra í raunveruleikaþætti
Lindsay, OWN, á þessu ári. Árið
2009 tísti leikkonan um pabba
sinn á samskiptamiðlinum
Twitter: „Pabbi minn er
geðsjúklingur og á ekki einu
sinni skilið þann titil ...“
Ariel Winter Í nær tvö ár hefur ungstirnið Ariel
Winter, sem flestir þekkja úr gamanþáttunum Modern Family,
verið undir forræði systur sinnar, Shanelle Gray. Í réttarskjöl-
um frá árinu 2012, þegar móðir Winter, Chrisoula Workman,
missti forræði yfir henni, kemur fram að Workman hafi beitt
dóttur sína bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi.
Leighton Meester Ágreiningur Gossip
Girl-leikkonunnar Leighton Meester við móður sína,
Constance, hefur verið ljótur í gegnum árin. Árið 2011 hélt
Constance því fram að dóttir hennar hefði lofað sér tíu
þúsund Bandaríkjadölum á mánuði það sem eftir væri
ævinnar. Málið fór meira að segja fyrir dómstóla þar sem
dómari dæmdi leikkonunni í vil.
Adele Árið 2013 fór Mark Evans, pabbi stórsöng-
konunnar Adele, í viðtal í breska blaðið Daily Mail. Þar hélt
hann því fram að hann hefði engan áhuga á peningum
dóttur sinnar eða metorði. „Ég vil bara dóttur mína aftur og
ég vil vera almennilegur afi sonar hennar.“ Poppstjarnan
sleit samskiptum sínum við pabba sinn árið 2011 eftir að
hann talaði opinskátt um samband þeirra í blaðaviðtali.
Eminem
Í viðtali við MLive.
com í sumar sendi
Debbie Mathers,
móðir rapparans
Eminem, syni sínum
skilaboð: „Lífið er
stutt. Komdu
hingað, mamma vill
knús.“ Mæðginin
hafa staðið í
illdeilum frá árinu
2001 þegar Mathers
kærði son sinn fyrir
ærumeiðingar í
lögunum „My Name
Is“ og „My Mom“.
Drew Barrymore Leikkonan Drew
Barrymore talaði um samband sitt við móður sína í viðtali
við Marie Claire á þessu ári. „Samband mitt við móður mína
er flókið. Við getum eiginlega ekki verið í lífi hvor annarrar á
þessari stundu,“ sagði hún meðal annars. Leikkonan hefur
oft talað opinskátt um brothætt samband sitt við móður
sína, Jaid, en þess má geta að Barrymore var dæmd
sjálfráða aðeins 15 ára gömul.