Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2014, Page 56
Helgarblað 12.–15. september 2014
71. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Höldum okkur
bara við
komma!
Vinstri grænn
Muscleboy
n Egill Einarssonar, betur
þekktur sem Gillz eða DJ Muscle-
boy, tilkynnti það formlega á
dögunum á Facebook að hann
hafi skráð sig í Vinstrihreyf-
inguna – grænt framboð. Tilefnið
var að skólayfirvöld í Flens-
borgarskóla lögðust gegn því að
hann spilaði á nýnemaballi þar
sem hann þótti ekki samræm-
ast hugmynda-
fræði skólans.
„Kominn tími
til maður. Ég er
hérna á flokks-
skrifstofunni
að skála í líf-
rænum engi-
hjallagambra,“
sagði Erpur Ey-
vindarson sem
fenginn var til
að spila í
stað Egils.
Þekkir sósíalista
langar leiðir
n Alþingismanninum Brynjari
Níelssyni voru „vinstrisósíalist-
ar“ hugleiknir líkt og fyrri daginn
á Facebook-síðu sinni á fimmtu-
dag. „Og hafi einhver verið í vafa
um að forystumaður Pírata væri
róttækur vinstrisósíalisti hvarf
sá efi í umræðunum í gær“, skrif-
aði Brynjar. Sævar nokkur spurði
í athugasemdum hvað hann
ætti við með „vinstrisósíalista“.
„Ég þekki þá langar leiðir, Sæv-
ar minn. Veit að vísu að margir
þeirra eru að reyna að endur-
skilgreina hug-
takið eftir
hrun hinna
sósíalísku
ríkja“, svaraði
Brynjar.
Af Austurstræti
á netið
n Skáldið Bjarna Bernharð Bjarna-
son, sem landsmenn þekkja með-
al annars fyrir sölu ljóða í Austur-
stræti, hefur tekið skrefið inn í 21.
öld og hefur hafið söfnun fyrir nýrri
ljóðabók á Karolina fund. Markmið
Bjarna er að geta safnað 1.200 evr-
um, eða rúmlega 180 þúsund krón-
um, svo hann geti prentað bókina
Tímasprengjuna. „Ég stend frammi
fyrir því mikla verkefni að hleypa
af stokkunum
232 blaðsíðna
ljóðaúrvali,
myndskreytt
með málverk-
um mínum. Ég
hef lagt mig í líma
við að standa vel
að verkinu, velja
ljóð og myndir
af kostgæfni,“
segir Bjarni.
Hraustastur á Mr. Gay World
Troy Michael Jónsson var Íslandi til sóma í Róm
Þ
etta var ótrúleg lífsreynsla og
núna á ég vini úti um allan
heim,“ segir hinn 27 ára gamli
Troy Michael Jónsson sem er
nýkominn frá Róm á Ítalíu þar sem
hin sögufræga keppni Mr. Gay World
fór fram.
Keppendur komu hvaðanæva að
úr heiminum og þrátt fyrir að Troy
Michael hafi ekki sigrað þá er þetta
í fyrsta sinn sem keppandi á vegum
Íslands endar í efstu tíu sætunum.
Þetta er hins vegar í fyrsta skiptið
sem Ísland sigrar í „íþróttakeppn-
inni“ á vegum Mr. Gay World. Keppt
var í crossfit en þar var Troy Micha-
el á heimavelli en hann æfir crossfit í
Reykjanesbæ.
Þrátt fyrir að keppninni sé lokið
þá er nóg um að vera hjá Troy Mich-
ael sem hyggur á að gefa út plötu á
næsta ári.
„Já, ég ætla að einbeita mér meira
að tónlistarferlinum mínum og er að
vonast til þess að félagar mínir, Páll
Óskar og Steinar, komi við sögu á
fyrstu plötunni sem ég gef út.“
Troy Michael, sem eitt sinn tók
þátt í bandarísku sjónvarpsþáttun-
um „America‘s Next Top Gay“, úti-
lokar það ekki að láta reyna á sjón-
varpsþáttagerð hér á landi: „Það
hefur ekki verið mikið um íslenskt
raunveruleikasjónvarp. Hver veit
nema ég helli mér út í það. Ef þeir
myndu fylgja mér út um allt þá er ég
viss um að það yrði vinsælasti sjón-
varpsþátturinn á Íslandi,“ segir Troy
Michael og hlær.
„Ég er ekkert að skafa utan af
hlutunum. Ég ber virðingu fyrir fólki
og skoðunum annarra en á sama
tíma er mér skítsama um hvað fólki
finnst um mig. Ég er ég og það er það
eina sem ég verð nokkurn tímann.
Ég er fátækur og umdeildur strák-
ur sem hefur fengið sína 15 mínútna
frægð. Ég er samt ekki hættur. Ég
ætla að breyta heiminum.“ n
atli@dv.is
Táknaði Ísland Ólafur Helgi Móberg
hannaði „þjóðbúning“ Íslands en hann tákn-
aði eldgos og vakti mikla athygli í Róm.