Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Blaðsíða 4
4 Fréttir Helgarblað 11.–14. júlí 2014 Allt fyrir bæjarhátíðina, útileguna og verslunar- mannahelgina FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534 Ummælin sem voru ómerkt Meðalaldur mæðra hækkar Árið 2013 fæddust 4.326 börn á Íslandi, sem er nokkur fækkun frá árinu 2012 þegar hér fædd- ust 4.533 börn. Það komu 2.129 drengir í heiminn og 2.197 stúlk- ur árið 2013, sem jafngildir 969 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum. Þetta kemur fram í töl- um sem Hagstofa Íslands birti á fimmtudag. Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Árið 2013 var frjósemi íslenskra kvenna lægri en tveir í fyrsta sinn frá 2003, eða 1,932 börn á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið. Undanfarin ár hefur frjósemi á Íslandi verið rétt um 2 börn á ævi hverrar konu. Frjósemin nú er nærri helmingi minni en hún var um 1960, en þá gat hver kona vænst þess að eign- ast rúmlega 4 börn á ævi sinni. Frjósemi á Íslandi hefur verið hærri en annars staðar í Evrópu á síðustu árum. Ásamt Íslandi hefur frjósemi verið yfir tveimur í Frakklandi, á Írlandi og í Tyrklandi síðustu ár en ver- ið að meðaltali 1,6 í 28 löndum Evrópusambandsins. Lægst var fæðingartíðnin innan álfunnar í löndum Suður-Evrópu árið 2012. Þar var hún 1,28 í Portúgal, 1,32 á Spáni og 1,34 á Grikklandi. Meðalaldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu ára- tugi og konur eignast sitt fyrsta barn síðar á ævinni en áður. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldurinn hækkað og var 27,3 ár í fyrra. Algengasti barn- eignaaldurinn er á milli 25–29 ára sem og 30–34 ára. Á þess- um aldursbilum fæddust 117 börn á hverjar 1.000 konur árið 2013. Fæðingartíðni mæðra und- ir tvítugu í fyrra var 7,1 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt miðað við þegar hún fór hæst á árabilinu 1961–1965, en þá fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu. Vilja Lilju sem seðlabankastjóra Fimm hundruð manns í stuðningsmannahópi á Facebook Þ eir sem læka þessa síðu eru á þeirri skoðun að Lilja Mós- esdóttir sé hæfasti umsækj- andinn um stöðu seðla- bankastjóra sem verður skipað í 20. ágúst nk.,“ segir í lýsingu Face- book-hópsins „Lilju Mósesdóttur sem næsta seðlabankastjóra“. Að því sem DV kemst næst er hún eini umsækjandi fyrir stöðuna sem hef- ur stuðningsmannasíðu á Facebook. Rúmlega fimm hundruð og fimm- tíu manns höfðu „lækað“ síðuna á fimmtudag sem teljast má nokkuð gott miðað við að síðan var stofnuð síðastliðinn sunnudag. Samkvæmt tölfræði Facebook er algengasti aldurshópur stuðningsmanna Lilju á bilinu fjörutíu og fimm ára til fimm- tíu og fjögurra ára og koma flestir frá Reykjavík. Máli sínu til stuðnings segja síðu- haldarar að aðrir umsækjendur með hagfræðimenntun hafi „sýnt það með störfum sínum að þeir eru hluti af því kerfi sem hrundi haustið 2008 og var svo endurreist á nánast sama grunni með aðstoð“. Samkvæmt þeim er Lilja flekklaus af þessu og hafi enn fremur komið með „af- gerandi hugmyndir um það hvern- ig mætti mæta vandanum þannig að almenningur þyrfti ekki að bera allan þungann og velferðarkerfinu yrði hlíft“. Telja má ólíklegt að stuðnings- hópurinn fái ósk sína uppfyllta. Lilja er meðal þeirra sem ólíklegust er að verði ráðin seðlabankastjóri. Líkleg- ast hefur verið talið að Ragnar Árna- son hagfræðiprófessor fái stöðuna þar sem hann hefur bestu pólitísku tenginguna við Sjálfstæðisflokkinn og hefur setið í bankaráði Seðla- bankans. n hjalmar@dv.is Hagfræðidoktor Rúmlega fimm hundruð manns hafa lýst yfir stuðningi við að Lilja Mósesdóttir verði næsti seðla- bankastjóri. Hún er með doktorsgráðu í hag- fræði frá University of Manchester Institute of Science and Technology. Mynd Sigtryggur Ari „Við höfum rétt til að segja frá“ n Dómur kveðinn upp í meiðyrðamáli Gunnars gegn Pressunni n 16 ummæli af 21 standa M álalyktir eru nú ljós- ar í meiðyrðamáli sem Gunnar Þorsteinsson, oftast nefndur Gunnar í Krossinum, höfðaði gegn Pressunni. Gunnar stefndi Pressunni ásamt blaðamanninum Steingrími Sævari Ólafssyni og að auki tveimur konum, þeim Sesselju Engilráð Barð- dal og Ástu Sigríði Knútsdóttur, sem eru talskonur hóps kvenna sem sök- uðu Gunnar um kynferðisbrot gegn sér. Dómur var kveðinn upp í gær, fimmtudag. Málalyktir urðu þær að héraðs- dómur dæmdi dauð og ómerk fimm þeirra ummæla sem Gunnar höfðaði mál út af, sem birtust í fréttum á vef Pressunnar á tímabilinu 23. nóvem- ber til 2. ágúst 2011. Í heildina gerði Gunnar kröfu um að 21 ummæli yrðu dæmd dauð og ómerk. Kröfu Gunnars um miskabætur var hafnað, en Gunnar krafðist 15 milljóna króna í miskabætur vegna ummælanna. Ánægð með dóminn „Ég er mjög ánægð með þennan dóm og við erum það. Ég lít á þetta sem sigur. Meiðyrðin voru látin niður falla, þannig að við erum bara mjög ánægð með þennan úrskurð,“ sagði Sesselja. „Þetta er búin að vera mik- il vinna og taka mikinn tíma. Það er reyndar súrt að þurfa að sitja uppi með feitan og stóran kostnað,“ en Sesselja segir að hún ásamt öðrum sem Gunnar stefndi þurfi að greiða nokkrar milljónir króna í lögfræði- kostnað. „Þetta er sigur fyrir mig. Fjöldi ummæla er ómerktur og það var til- gangurinn með þessum málaferl- um, að ná því fram og ég hef náð því fram,“ sagði Gunnar þegar hann gekk út úr dómsal eftir uppkvaðninguna. Ekki öll ummælin voru dæmd ómerk. „Nei, vissulega ekki, en það sem skiptir meginmáli er að þarna voru menn að fara með fleipur. Og það hefur dómurinn réttað í og úr- skurðað og ég er afskaplega ánægð- ur með það,“ sagði Gunnar í samtali vði DV. „Ég veit ekki hverju hann er að hrósa sigri yfir. Í réttarhöldunum fengu allar þessar konur sem að við stóðum með að koma fram fyr- ir dómstóla. Og þær fengu allar að segja sinn vitnisburð um sín brot, hver á fætur annarri, þannig að ég lít á þetta sem sigur. Og ég lít á þetta sem sigur fyrir alla þolendur. Það er þannig,“ segir Sesselja aðspurð hvað henni finnist um ummæli Gunnars um að dómurinn sé sigur fyrir hann sjálfan. Báðir aðilar telja sig sigurvegara Báðir málsaðilar líta á sig sem sigur- vegara eftir úrskurðinn. Ljóst er að lítill hluti ummælanna sem Gunnar kærði er dæmdur ómerkur og einnig eru honum ekki dæmdar miskabæt- ur fyrir ummælin. Í dómnum segir að mörg þeirra ummæla sem Gunn- ar taldi að í fælust staðhæfingar um að hann hafi brotið af sér, innihalda í raun einungis fullyrðingar um að Gunnar hafi verið ásakaður af hópi kvenna, sem er rétt, og að umfjöllun- in hafi byggt „á umtalsverðri rann- sóknarvinnu blaðamanna“. Um þau ummæli sem hins vegar voru dæmd ómerk segir í dómn- um að „liggur fyrir að hvorki hafa af hálfu stefnda Steingríms né með- stefndu Ástu og Sesselju verið lögð fram gögn né heldur leidd fram vitni sem gátu staðreynt með fullnægjandi hætti sannleiksgildi þess sem þarna er haldið fram“. Það má því leiða líkum að því að sigurinn liggi hjá varnaraðilum í þessu máli, sé litið á innihald um- mælanna sem bæði fá að standa sem og þeirra sem dæmd voru, auk þess sem að ekki var fallist á kröfu Gunnars um miskabætur. Óvissa með framhald málsins Gunnar sagðist vera óviss með fram- haldið. „Ég veit það ekki, ég þarf að ráðfæra mig við minn ágæta lögmann og mína fjölskyldu, svo sjáum við hvað framhaldið verður.“ Sesselja sagði í viðtali við DV stuttu eftir dóminn að hún ætti eftir að ræða dóminn ásamt kvennahópnum og lögfræðingi þeirra. „Ég tek alltaf stöðu gegn ofbeldi. Það er bara þannig. Það hafa allir rétt á að segja frá, ef að ein- hver hefur meitt viðkomandi,“ sagði Sesselja aðspurð hvað hópurinn hyggist gera í framhaldinu og bætti við að henni finnist ekki að fólk eigi að þurfa að þegja yfir brotum. „Við erum fólk og við höfum réttindi til að segja frá,“ sagði Sesselja. n Jón Steinar Sandholt jonsteinar@dv.is n „... gegn þeirri refsiverðu háttsemi sem Gunnar hefur gerst sekur um ...“. n „Talskona kvenna veit um 16 fórnarlömb: Vísbendingum rignir inn – Spannar 25 ára tímabil“. n „Talskona kvenna sem saka Gunnar Þorsteinsson í Krossinum um kynferð- islegt ofbeldi segist vita samtals um 16 fórnarlömb. Í samtali við Pressuna segist hún hafa fengið vísbendingar frá konum sem saka Gunnar um kynferðis- legt ofbeldi yfir 25 ára tímabil“. n „Í samtali við Pressuna segir Ásta að fyrir utan þær fimm konur sem hún heldur utan um viti hún um 9 aðrar sem saka Gunnar um kynferðisofbeldi“. n „Vitni að meintri kynferðislegri áreitni Gunnars...“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.