Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Side 12
12 Fréttir Helgarblað 11.–14. júlí 2014
Ofsaakstur
á Vestur-
landsvegi
Nítján ára piltur var staðinn að
hraðakstri á Vesturlandsvegi, á
móts við Suðurlandsveg, á tólfta
tímanum á miðvikudagskvöld. Í
tilkynningu frá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu kemur fram að
bíll hans hafi mælst á 164 kíló-
metra hraða, en þarna er 80 kíló-
metra hámarkshraði. Pilturinn,
sem var allsgáður, var sviptur
ökuréttindum til bráðabirgða á
staðnum, að sögn lögreglu. Í bíln-
um voru þrír farþegar, allir 17 ára.
Haft var samband við forráða-
menn þeirra sem komu á vett-
vang og sóttu farþegana.
Eldsupptök enn ókunn
Skýrsla vegna brunans í Skeifunni tilbúin í fyrsta lagi eftir hálfan mánuð
R
annsóknin er bara í hefð-
bundnum farvegi. Þeir eru
bara að skoða þetta og verða
í því fram í næstu viku,“ seg-
ir Jóhann Karl Þórisson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, spurður um
hvernig rannsókn á brunanum í
Skeifunni á sunnudagskvöld miði.
„Það er verið að taka út örygg-
ið í húsinu. Svo mjatla þeir sér
þarna inn í rólegheitunum og skoða
ákveðna þætti,“ segir Jóhann. „Síð-
an verður byrjað að rífa þetta og
þá verða þeir þar svona í og með.
Þannig að þegar búið er að rífa nið-
ur bita og fella eitthvað og moka í
burtu skoða þeir þetta. Það er verið
að einblína á ákveðið svæði þarna í
Fannar-húsinu og svo verður þetta
bara spilað eftir eyranu, þetta tekur
einhverja daga eða vikur.“
Jóhann segir að eldsupptök séu
enn ókunn. „Það er verið að reyna
að finna það út, svo er verið að skoða
hvernig eldurinn dreifði sér um
þessar byggingar og hvers vegna.“
Hann segir að nánast sé búið að úti-
loka að eldurinn hafi verið íkveikja.
„Það er enginn grunur um það, en
við erum bara að vinna okkur rólega
inn í þetta. Það er náttúrlega mjög
erfitt að finna orsakavaldinn.“
Jóhann segir að skýrsla vegna
brunans verði tilbúin í fyrsta lagi eft-
ir um það bil hálfan mánuð. Á vett-
vangi eru tveir tæknideildarmenn
ásamt tveimur rannsóknarlögreglu-
mönnum sem eru að yfirheyra vitni
og starfsmenn hlutaðeigandi fyrir-
tækja. n
jonsteinar@dv.is
Brunarúst Húsin sem urðu eldinum að bráð eru gjörónýt. Eldsupp-
tök eru enn ókunn. Mynd Sigtryggur Ari
Mikil eyðilegging Líklegt þykir að eldurinn hafi átt upptök sín í
húsnæði Fannar. Mynd Sigtryggur Ari
Stöðvar úthafs-
rækjuveiðar
Styttist í þau 5.000 tonn sem er
ráðlögð veiði Hafrannsóknastofn-
unar
Úthafsrækjuveiðar verða
stöðvaðar á næstunni að því er
fram kemur í tilkynningu sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytisins.
Í tilkynningunni segir að sam-
kvæmt upplýsingum frá Fiski-
stofu sé rækjuaflinn á fiskveiði-
árinu kominn í 4.700 tonn og
veiðar verði stöðvaðar þegar afl-
inn verður kominn í 5.000 tonn
sem er ráðlögð veiði Hafrann-
sóknastofnunar.
Rækjuverkendur höfðu vonast
til að leyft yrði að veiða meira og
viðbúið að loka þurfi rækjuverk-
smiðjum vegna hráefnisskorts
þar sem illa hefur gengið að afla
hráefnis erlendis.
Bretar gefa
björgunarbíl
Ríkisstjórn Bretlands hef-
ur ákveðið að gefa Slysavarna-
félaginu Landsbjörg sérhæfða
Foden Drops-vörubifreið. Mun
bifreiðin verða staðsett í Vík í
Mýrdal og vera í umsjón Björg-
unarsveitarinnar Víkverja og
verður hún afhent með formleg-
um hætti í dag, föstudag. Það er
sendiherra Bretlands, Stuart Gill,
sem afhendir björgunarsveitun-
um bílinn.
Mikið hefur mætt á björgunar-
sveitum Landsbjargar á Suður-
landi á síðustu árum, sérstaklega
tengt náttúruhamförum. Mun
þessi nýja bifreið vonandi verða
til þess að hægt sé að bregðast
skjótar við skapist álíka ástand
aftur eða til að þvera stórar jökul-
ár svæðisins.
kjölfar sálfræðiskýrslu
n Háskólinn setur Hannes út í horn en Bjarni felur honum verkefni n Naut aðstoðar Jóns Steinars
H
annes Hólmsteinn Giss-
urarson prófessor hefur
verið leystur undan stjórn-
unarskyldum við Háskóla
Íslands gegn vilja sínum.
Ákvörðun um þetta var tekin nokkru
eftir að sálfræðistofan Líf og sál skil-
aði af sér skýrslu um samskipta-
vanda í deildinni. Niðurstöður skýr-
slunnar voru afgerandi en þar eru
langvarandi samstarfsörðugleikar
að miklu leyti raktir til framgöngu og
framkomu Hannesar Hólmsteins.
Starfsmönnum stjórnmálafræði-
deildar var boðið í viðtal við Einar
Gylfa Jónsson sálfræðing og mikill
meirihluti þeirra kvartaði undan yf-
irgangi af hálfu Hannesar. Í niður-
stöðum skýrslunnar er staðhæft að
yfirstjórn háskólans beri lagaleg
skylda til að bregðast við framkomu
prófessorsins, enda sé ástandið í
stjórnmálafræðideild óviðunandi.
Jón Steinar aðstoðaði
Í kjölfar kynningar á efni skýrslunn-
ar var samið við Hannes um breytta
starfstilhögun og að dregið yrði úr
kennslu hans við deildina. Hann sótti
hart að fá að gegna áfram stjórnunar-
skyldum við háskólann og samkvæmt
heimildum DV voru haldnir átaka-
fundir í háskólanum þar sem Jón
Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi
hæstaréttardómari, kom fram sem
lögmaður Hannesar. Þeir Jón Steinar
fengu kröfum sínum ekki framgengt.
Skýrslu sálfræðistofunnar var
skilað í lok janúar, en stofunni var
falið verkefnið að frumkvæði stjórn-
enda félagsvísindasviðs í samráði
við rektor. Deilur Hannesar og Jóns
Steinars við háskólann stóðu svo
yfir í margar vikur. Hinn 7. júlí bár-
ust loks þau tíðindi úr fjármálaráðu-
neytinu að Hannesi hefði verið falið
10 milljóna króna verkefni; að meta
erlenda áhrifaþætti bankahrunsins
á vegum Félagsvísindastofnunar Há-
skóla Íslands.
Forstöðumaður stofnunarinnar
staðfestir í samtali við DV að Hann-
es hafi sjálfur átt frumkvæði að verk-
efninu, en samningurinn um það var
undirritaður hinn 7. júlí, nokkru eftir
að þrefinu við háskólann lauk.
DV hafði samband við Jón Steinar
sem sagðist ekki vera inni í málinu.
Hann vildi ekki ræða við blaðamann
og kallaði DV sorpblað.
„Vinnuregla með svona plögg“
Margir starfsmenn stjórnmálafræði-
deildar eru óánægðir með að sál-
fræðiskýrslan hafi ekki verið birt
þeim. Aðeins örfáir hafa hana undir
höndum auk þess sem nokkrir aðilar
hafa fengið að lesa hana af tölvuskjá.
Daði Már Kristófersson, forseti
félagsvísindasviðs, vill ekki tjá sig
um málið við DV. „Þetta er bara al-
menn vinnuregla með svona plögg,“
segir hann aðspurður hvers vegna
skýrslan hafi ekki verið gerð opin-
ber. „Ég get heldur ekki tjáð mig
um starfstilhögun einstakra starfs-
manna.“ DV reyndi þá að ná tali af
Kristínu Ingólfsdóttur rektor en var
tjáð að hún væri erlendis.
Viðvarandi vandi
Algengt er að háskólaprófessorar
falist eftir því á síðari hluta starfsfer-
ilsins að vera leystir undan stjórn-
unarskyldum. Hins vegar er óvenju-
legt að slíkt sé gert gegn vilja þeirra.
„Að prófessorar séu látnir skrifa und-
ir breytingar á starfsskyldum gegn
þeirra vilja er algjörlega einstakt,“
segir einn af viðmælendum DV.
Annar starfsmaður í háskólanum
fullyrðir að Hannes hafi í raun verið
skikkaður til að skrifa undir þennan
samning. „Þannig er í raun bara verið
að viðurkenna hvernig staðan er. Það
eru allir orðnir dauðleiðir á þessu,
sérstaklega yngra fólk og fólk sem
kemur erlendis frá. Hann komst upp
með þessa framkomu einu sinni, en
nú eru tímarnir að breytast.“
Þeir sem DV hefur rætt við segja
Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
Starfsskyldum breytt í
„Allir orðnir dauð-
leiðir á þessu, sér-
staklega yngra fólk og fólk
sem kemur erlendis frá.
Vond útreið
Hannes Hólmsteinn
fær harða útreið í
skýrslu sálfræðings
um samskiptavanda í
stjórnmálafræðideild.
Mynd Sigtryggur Ari