Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2014, Qupperneq 45
Lífsstíll 45Helgarblað 11.–14. júlí 2014
Fæðubótarefni úr macarót � 100% náttúruleg vara með lífræna vottun
Inniheldur hvorki soja (ísó�avóna), mulin hörfræ né hormóna
U
m
boðsaðili: Vistor hf.
Hefur góð áhrif á:
- Orku og úthald
- Beinþéttni
- Kynferðislega virkni
- Frjósemi og grundvallar-
heilbrigði
Revolution Macalibrium
Macarót fyrir karlmenn
www.facebook.Revolution-Macalibrium
www.vistor.is
®Revolution Macalibrium
Fæst í apótekum og Heilsuhúsinu
Haltu krökkunum
uppteknum
n Góðar hugmyndir fyrir börnin í fríinu
Flest skólabörn á Íslandi eru í sumarfríi um þessar mundir. Þó að fríið sé
líklega kærkomið þá á sumum til að leiðast það til lengdar og foreldrar
eiga stundum í vandræðum með að finna eitthvað skemmtilegt að
gera annað en að horfa á sjónvarp eða vera í tölvunni. Hér eru nokkrar
góðar hugmyndir fyrir krakkana og það góða er að þær eru flestar auð-
veldar í framkvæmd og ódýrar.
viktoria@dv.is
Útilega heima í stofu Dragðu
fram tjaldið og tjaldaðu því inni í
stofu. Hægt er að búa til skemmti-
legan varðeld með því að raða spýt-
um og kveikja á kerti (ef fullorðinn er
með) eða vasaljósi. Ekki er nú verra
að draga fram svefnpoka og annan
staðalbúnað og hafa gaman.
Eigið boltaland Fylltu
uppblásnu sundlaugina með
boltum. Það er gaman að
vera með sitt eigið boltaland.
Veiddu í garðinum Búðu til skemmtilega veiðiá
með álpappír. Settu svo vatn í og leyfðu börnunum
að leika sér.
Bílabraut Búðu til
skemmtilegar bíla-
brautir inni með því
að nota teip á gólfið.
Svampaturn Klipptu niður frauðplast og
litaðu í skemmtilegum litum. Skemmtilegt
er að raða frauðplastinu upp og byggja turn.
Ódýrt og sniðugt.
Keilubraut Gerðu skemmtilega
keilubraut með því að nota strokleð-
ur sem keilur og skopparabolta fyrir
keilukúlu.
Fyrir þau yngstu Festu tóma eldhúsrúllu
upp á vegg með límbandi. Hafðu skál undir
og eitthvað til þess að dunda sér við að setja
í
gegnum rúlluna. Þetta skemmtir þeim yngs
tu.
Límlistaverk Búðu til límlistaverk.
Settu lím á disk, lok, þykkan pappír
eða annað. Notaðu svo matarliti til
þess að búa til listaverk í límið. Gott
er að nota tannstöngla til verksins.
Skemmtileg dýr Farið út og tínið lauf, ber og ann-
að sem gæti nýst til þess að búa til falleg skordýr.
Hreyfumst
hægar í
augum hunda
Heilar dýra líkt og hunda skynja
hreyfingu á annan veg en mann-
fólk. Raunar skynja hundar allt
sjónrænt mun hraðar en menn
samkvæmt nýrri rannsókn.
Það er stærð og efnaskipti
dýra sem getur sagt til um hversu
hratt þau skynja tíma. Tímaskynj-
un dýra tengist taugakerfi þeirra
og hversu fljótt taugakerfið er að
skynja upplýsingar og bregðast
við umhverfinu. Minni dýr sem
þurfa að geta forðast rándýr með
skjótum hætti sjá þannig atburði
gerast mun hægar vegna þess hve
hratt taugakerfi þeirra er að með-
taka aðstæður.
Hundar skynja upplýsingar í
umhverfinu 25 prósent hraðar en
menn, sem veldur því að tíminn
líður í raun hægar frá þeirra sjón-
arhorni og menn hreyfast þar af
leiðandi hægar.
Framleiða
Game of
Thrones-vín
Þó að þættirnir Game of Thrones
snúi ekki aftur fyrr en árið 2015
þurfa aðdáendur þáttanna ekki
að örvænta, því vín í nafni þátt-
anna er á leið á markað. Vínlínan
ber nafnið Wines of Westeros og
mun innihalda tólf víntegund-
ir sem bera hvert um sig nöfn líkt
og The Tyrell, The Wildling, The
Night's Watch og fleira í takt við
sérkenni þáttanna.
„Rauðvínstegundirnar eru öll
miðuð að fjölskyldum sem eru
kappsamar og kröftugar. Hvítvín-
stegundirnar eru aftur á móti
lævísari, skarpari og dularfyllri,“
sagði Jane Burhop hjá fyrirtækinu
Common Ventures sem framleið-
ir vínið.
Fjarstýrð getnaðarvörn
Stýrir hormónaflögu með fjarstýringu
N
ýsköpunarfyrirtæki í
Massachussetts í Bandaríkj-
unum hefur tekið getnað-
arvarnaþróun á annað stig.
Fyrirtækið er að setja saman fjar-
stýrða getnaðarvörn sem endist
í sextán ár. Flögu er komið fyrir í
líkama þínum sem leysir daglega
frá sér hormón. Notandinn getur
slökkt á tækinu eftir þörfum með
fjarstýringu. Þannig þarf ekki leng-
ur endurteknar læknisheimsókn-
ir til þess að fá ávísaðar getnað-
arvarnir, né sérstakar aðgerðir til
þess að fjarlægja langtímagetnað-
arvarnir líkt og stafinn.
Þegar þetta kemur á markað
mun það auka frelsi og þægindi
kvenna til muna, en aftur á móti
fylgja þessu einnig skuggahlið-
ar. Tæknibúnaður er viðkvæm-
ur fyrir svokölluðu „hakki“ þar
sem tölvuglöggir gætu brotist inn
í búnaðinn og breytt stillingun-
um. Unnið er að forvörnum fyrir
slíku en áætlað er að hin fjarstýrða
getnaðarvörn komi á markað árið
2018. n
Fjarstýring
Getur slökkt á
getnaðarvörninni
eftir þörfum.