Náttúrufræðingurinn - 2009, Blaðsíða 80
Náttúrufræðingurinn
80
Um höfundinn
Eyþór Einarsson (f. 1929) lauk mag.scient.-prófi í grasafræði frá Kaupmanna-
hafnarháskóla 1958. Hann var deildarstjóri á grasafræðideild Náttúrufræði-
stofnunar Íslands 1958–1999 og forstöðumaður stofnunarinnar í 12 ár. Eyþór
sat í Náttúruverndarráði 1959–1990 og var formaður þess 1978–1990 og aftur
frá 2000 og þar til þáverandi umhverfisráðherra lét leggja ráðið niður í árs-
byrjun 2003. Hann var formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags árin 1964–
1965 og 1976–1979, kjörinn heiðursfélagi þess 1992 og félagi Vísindafélags
Íslendinga 1987.
Póst- og netfang höfundar
Eyþór Einarsson
Bólstaðarhlíð 64
IS-105 Reykjavík
eythor@ni.is
Breytingar á lögum um nátt-
úruvernd (nr. 44/1999) og flutning
málefna náttúruverndar undir Um-
hverfisstofnun (lög nr. 90/2002)
höfðu ekki áhrif á friðlýsingu Surts-
eyjar eða framkvæmd hennar.
Tilnefning Surtseyjar
á heimsminjaskrá
Í desember 2005 ákvað ríkisstjórnin
að tilnefna Surtsey á heimsminja-
skrá UNESCO, eins og sagt er frá í
upphafi greinar, vegna jarðfræðilegs
mikilvægis og þróunarferla og einn-
ig á grundvelli vöktunar á landnámi
dýra og plantna og framvindu líf-
ríkis á Surtsey og í hafinu umhverfis
eyna. Heimsminjanefnd leitaði álits
Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna
(IUCN) á umsókninni og mat þeirra
var að einstakt alþjóðlegt mikilvægi
Surtseyjar byggðist á seinna atriðinu,
þ.e. friðlýsingu eyjarinnar og vöktun
landnáms dýra og plantna og fram-
vindu lífríkisins á eynni, og lögðu til
að Surtsey yrði skráð á grundvelli
þess. Eftir því fór heimsminjanefnd
UNESCO og samþykkti að skrá
Surtsey þannig á heimsminjaskrá
UNESCO 7. júlí 2008.
Við undirbúning umsóknarinnar
fól umhverfisráðuneytið Náttúru-
fræðistofnun Íslands að taka saman
umsóknarskýrslu í samvinnu við
fleiri stofnanir. Verkefnishópur um
málið varð fljótt sammála um að
endurskoða þyrfti friðlýsingu eyj-
arinnar, þannig að öll eldstöðin
frá rótum á hafsbotni væri friðlýst.
Við endurskoðun friðlýsingarinnar
ákvað ráðuneytið líka að breyta
ýmsu fleiru og fella t.d. inn í auglýs-
inguna tilvísun til þess að hún væri
birt í samráði við sjávarútvegs-
ráðuneytið og með samþykki Vest-
mannaeyjabæjar. Þá var ákveðið að
fela Náttúrufræðistofnun Íslands
umsjón með vísindarannsóknum og
reglubundinni vöktun náttúru frið-
landsins, en samkvæmt eldri friðlýs-
ingum fór Surtseyjarfélagið með það
hlutverk. Surtseyjarfélagið reyndi
að fá þessu breytt í friðlýsingardrög-
unum en ráðuneytið féllst ekki á það.
Hlutverk náttúruverndarráðs sam-
kvæmt eldri friðlýsingum er með
þeirri nýju falið Umhverfisstofnun,
sem hefur sér til ráðgjafar sérstaka
ráðgjafarnefnd. Reglur nýju frið-
lýsingarinnar um friðun lífríkis og
jarðfræði eyjarinnar eru líka nokkru
umfangsmeiri en þeirra eldri og
5. mynd. Mörk Surtseyjarfriðlands. Kort: Anette Th. Meier & Lovísa Ásbjörnsdóttir.
ná t.d. til töluvert stærra svæðis
og til fiskveiða við eyna. Þessi nýja
friðlýsing Surtseyjar tók gildi hinn
27. janúar 2006 og þannig breytt er
Surtseyjarfriðland komið á heims-
minjaskrá UNESCO.