Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 27

Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 27
24 eru á kirkjustefnu til 4 ára. Biskup er oddviti ráðsins. 9. gr. ^ Biskupsdæmisráð hefur yfirumsjón með málum biskupsdæmisins og úr- skurðar um ágreiningsefni frá héraðsfundum. 10. gr. Biskupsdæmisráð ber ábyrgð á fjármálum biskupsdæmisins. 11. gr. Biskup kallar biskupsdæmisráð saman til fundar, þegar þurfa þykir, og eigi sjaldnar en þrisvar á ári. 12. gr. Biskupsdæmisráð fær greidda úr ríkissjóði reikninga fyrir vinnu og útlagðan kostnað, sem ráðherra samþykkir. IV. KAFLI. Um biskupa. 13. gr. Biskup Islands situr í Reykjavík. Skálholtsbiskup situr í Skálholti. Hólabiskup situr á Akureyri með aðstöðu til dvalar á Hólum. Með tilskipun forseta Islands má að tillögu ráðherra ákveða biskupssetur á Hólum, enda mæli meirihluti þjónandi bjóðkirkjupresta og formanna sóknarnefnda biskupsdæmisins með bví og jafnframt verði biskupi búin þar eðlileg ytri starfsskilyrði. 14. gr. Biskup Islands fer með yfirstjón sameiginlegra mála þjóðkirkjunnar og kemur fram fyrir hennar hönd út á við bæði gagnvart stjórnvöldum og erlendum aðilum í málum, sem varða kirkjuna í heild. Hann getur þó falið öðrum biskupum að koma fram fyrir hönd kirkjunnar. Biskup Islands hefur eðlilegt samráð og samstarf við hina biskupana um ákvörðun mála. Biskupar fara hver með sármál biskupsdæmis síns. Þeir vígja presta og kirkjur og hafa tilsjón með kristnihaldi hver í sínu biskupsdæmi, hafa yfirumsjón með öllu kirkjulegu starfi þar og setja fram tillögur, umsagnir og álitsgjörðir um hvaðeina það, er varðar biskupsdæmi þeirra sérstaklega. Þeir setja próföstum, prestum og sóknarnefndum erindisbréf. Þeir vísitera presta og söfnuði biskupsdæmis síns eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. I5. gr. Biskupsstofa skal vera í Reykjavík. Þar hafa kirkjubing og kirkjuráð einnig aðsetur. Biskupsstofa annast afgreiðslu sameiginlegra mála kirkjunnar, einnig mál kirkjubings og kirkjuráðs svo og sérmála Reykjavíkurbiskupsdæmis. Skálholts- og Hólabiskupar hafa ekki sjálfstæða skrifstofu, en heimilt er þeim að ráða sér fulltrúa. Þeir bera ábyrgð á guðsþjónustum í dómkirkjum biskupsdæmis síns, Um kirknaeignir og kirkjulega sjóði gildir sú regla, að eignir og sjóðir, sem bundnir eru ákveðnu biskups- dæmi, heyra undir biskup þess , en aðrar eignir og sjóðir skulu lúta vörzlu og reikningshaldi biskupsstofu. Kirkjuþing ráðstafar fé úr sjóðum þessum og kveður á um ráðstafanir kirkjueigna þeirra, sem hér um ræðir, enda mæli lög, skipulagsskrár og aðrir löggerningar því eigi í gegn. 16. gr. Þegar biskup vígir kirkju, gefur hann út vígslubréf, þar sem lýst er kirkjunni og getið gripa hennar, eigna og réttinda. Þar skal þess og getið, hversu mikilli þjónustu kirkjan á rétt á árlega, svo og hver

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.