Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 34

Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 34
31 17. gr. Nú losnar biskupsembætti í þjóðkirkjunni. Skal þá ráðherra láta fara fram biskupskjör og sé því lokið innan þriggja mánaða frá því, er embætti losnaði eða fráfarandi biskupi var veitt lausn. 18. gr. Kosningarrétt við kjör biskups íslands hafa Skalholts- og Hólabiskupar, allir prófastar landsins, fastir kennarar við guðfræðideild Háskóla Islands, sem kjörgengir eru til biskupskjörs og starfandi þjóðkirkjuprestar innan biskups- dæmisins. Kosningarrétt við kjör Skalholts- og Hólabiskupa hafa biskupar og prófastar og starfandi þjóðkirkjuprestar innan biskupsdæmisins. Leikmönnum sé með reglugjörð tryggð þátttaka í biskups- kj öri. Kjörgengir til biskupsembættis eru allir þeir, sem rétt hafa til prestsembættis í þjóðkirkjunni. 19. gr. Kosning skal vera leynileg og skrifleg, og tilnefnir kjósandi einn mann sem biskupsefni. Undirbúning og fram- kvæmd kosningarinnar skal ráðherra fela kjörstjórn, er skipuð sé ráðuneytisstjóra kirkjumálaráðuneytisins sem formanni, einum manni tilnefndum af stjórn Prestafélags Islands og einum tilnefndum af ráðherra. Nánari ákvæði um kosningarnar setur ráðherra með reglugjörð. 20. gr. Réttkjörinn biskup er sá, sem fær yfir helming greiddra atkvæða. Nú fær enginn það atkvæðamagn, og skal þá kosið aftur milli þeirra þriggja, er flest atkvæði fengu. Sá er þá rétt kjörinn, er flest atkvæði fær. En verði atkvæði þá jöfn veitir ráðherra embættið einhverjum þeirra þriggja, sem atkvæðahæstir eru.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.