Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 42

Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 42
39 1978 11. kirkj_u_^ing 8 . mál Erumvar^ ti_l Aa£a_uH! s_öngmá_la£tj_óra_o_g TönskójLa_þj_óðk_ir,kjunnar. Flutt af kirkjuráði. Frsm. sr. Ján Einarsson. 1- gr. Söngmálastjóri starfar innan þjóðkirkjunnar. Skal hann hafa sérmenntun í orgelleik, lítúrgíu og kórstjórn. Kirkjumálaráðherra skipar söngmálastjóra að fenginni tillögu biskups Islands. Laun hans, svo og embættis- og ferðakostnaður, greiðast úr ríkissjóði. 2’ Söngmálastjóri hefur með höndum yfirumsjón og skipulagningu kirkju- söngs innan þjóðkirkjunnar. Hann heldur námskeið með kirkjuorganistum, leiðbeinir þeim í orgelleik, söngkennslu og söngstjórn og aðstoðar þá við stofnun kirkjukóra. Hann skal eftir því sem við verður komið heimsækja kirkjukóra og organista og vera þeim í hvívetna til leið- beiningarog hvatningar um kirkjusöng. Hann hefur jafnframt samstarf við sóknarpresta og sóknarnefndir og er þeim til aðstoðar við ráðningu organista og útvegun og val kirkjuhljóðfæra. Biskup Islands setur í erindisbréfi nánari ákvæði um starf söngmála- stjóra. 3. gr. Heimilt er biskupi Islands, með samþykki ráðherra og að fengnum tillögum söngmálastjóra, að ráða 2 menn til aðstoðar við raddþjálfun, kennslu o.fl. Biskup Islands setur þeim erindisbréf í samráði við söngmálastjóra. 4. gr. Þjóðkirkjan starfrækir tónskóla, sem söngmálastjóri veitir forstöðu. Skal skólinn vera búinn nauðsynlegum hljóðfærum, svo sem pípuorgeli og píanói til kennslu og æfinga. Hlutverk tónskólans er að veita verðandi kirkjuorganistum menntun í orgelleik, söngstjórn, raddþjálfun, lítúrgíu, tónfræði, hljómfræði, tónheyrn og öðru því, er að kirkjutónlist lýtur. Skólanefnd skipa 3 menn: Starfandi prestur tilnefndur af biskupi Islands, kennari í messusöng við Háskóla Islands og maður tilnefndur af kirkjumálaráðherra. Nánari ákvæði um hlutverk skólans og starfrækslu skulu sett í reglu- gj örð. Kostnaður við stofnbúnað og rekstur tónskólans greiðist úr ríkissjóði. _5 . gr ._ Þeir sem æskja inngöngu í Tónskóla þjóðkirkjunnar, skulu hafa hæfi- leika til tónlistarnáms. Þeir skulu hafa meðmæli sóknarprests síns. 6. gr. Lokapróf frá Tónskóla þjóðkirkjunnar veitir réttindi til organista- starfa og tónmenntakennslu.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.