Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 51
48
Tillaga um_nýja út_gáfu_íslenzku Biblýunnar^
Kirkjuþing 1976 minnir íslenzku bjóðina á dýran fjársjóð,
sem hún á fólginn x Biblíunni, og aðgengilegur hefur verið
íslenzkum lesendum allt frá því Nýja testamenti Odds Gott-
skálkssonar kom út 1540 - sem fyrst bóka prentuð á íslenzku-
og Guðbrandsbiblía 1584.
Jafnframt er vakin athygli á, að ísl. Biblian hefur ekki
fengið nýjan búning (setningu, réttritun og þýðingu) síðan
í byrjun þessarar aldar. Kirkjuþing telur að við svo búið
megi ekki lengur standa og hvetur alla kristna söfnuði
landsins, svo og einstaklinga, félög og atvinnufyrirtæki
til öflugs fjárhagsstuðnings við útgáfustarf Hins_Í£l_;_
t,iblíuféla_gs, sem nú á aðgang að sérfræðiaðstoð og öðrum
stuðningi United Bible Societies (sem HÍB hefur verið
aðili að síðan 1947) við nýja útgáfu ísl. Biblíunnar.
Kirkjuþing mælir og eindregið með bvx við ríkisstjórn,
fjárveitingarnefnd og Alþingi, að framlag á fjárlögum
ársins 1977 til Biblíufélagsins verði aukið (t.d. £ jafn-
gildi prófastslauna þriðja breps) til þess að hægt verði
að tilkalla aðstoðarmenn og greiða fyrir nauðsynlega vinnu
við frágang handrits og til að fylgja hinni nyju Bibliu
eftir á næstu misserum meðan á prentverki stendur.