Gerðir kirkjuþings - 1978, Side 62

Gerðir kirkjuþings - 1978, Side 62
59 6. gr. Nú er ekki óskað eftir almennum kosningum sbr. 5. gr. og skal þá prófastur senda biskupi afrit af gerðabók kjör- mannafundar ásamt staðfestingu þess að niðurstöður hafa verið kynntar sbr. 4. gr. Biskup sendir kirkjumálaráðherra niðurstöður kjörmanna- fundar ásamt umsögn sinni. Ráðherra veitir þeim embættið sem hlotið hefur bindandi val en ákvarðar að öðrum kosti veitingu að fenginni umsögn biskups. II. KAFLI. Um köllun. 7. gr. Heimilt er kjörmönnum að kalla prest. Ef 3/4 kjörmanna prestakallsins eru einhuga um að kalla tiltekinn prest eða guðfræðikandidat án umsóknar, gera þeir prófasti viðvart um það í tæka tíð, en hann tilkynnir biskupi, sem felur þá prófasti að boða kjörmenn presta- kallsins á sameiginlegan fund innan viku og er þá embættið eigi auglýst. Samþykki 3/4 kjörmanna að kalla tiltekinn mann til embættis- ins, sem lögum samkvæmt á rétt til prestsembættis í íslenzku þjóðkirkjunni, skal biskup birta köllunina þeim presti eða kandidat, sem í hlut á. Taki hann köllun, skal veita honum embættið tímabundið en eigi lengur en til fjögurra ára £ senn. III. KAFLI. Um kosningu. 8. gr. Jafnskjótt og prófastur hefur fengið í hendur óskir frá lögmætum fjölda atkvæðisbærra manna í prestakallinu um almenna kosningu sbr. 5. gr. skal hann hefja kosningar- undirbúning. Biskup ákveöur í samráði við prófast hvenær kosning skuli fara fram. Biskup annast prentun kjörseðla. Sendir hann prófasti hæfilegan fjölda kjörseðla er sendir síðan kjör- stjórnum. Á kjörseðla skal prenta nöfn umsækjenda í staf- rófsröð.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.