Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 63
60
Prófastur auglýsir hvenær og hvar kosning skuli fara fram
og hverjir séu í kjöri. Nú er prófastur í kjöri og tilnefnir
þá biskup annan í hans staÖ. í prestakalli þar sem eru fleiri
en ein sokn skal kosning fara fram 1 öllum soknum a sama degi
9 . gr.
f hverri sókn skal vera kjörstjórn skipuð þremur mönnum
kjörnum af sóknarnefnd a fyrsta fundi eftir hverjar kosning-
ar til sóknarnefnda. Sóknarnefnd kýs formann kjörstjórnar.
Heimilt er sóknarnefnd aö skipta sokn 1 kjördeildir. Skal
þá kjósa 3ja manna undirkjörstjórnir er annist framkvæmd
kosninga í hverri kjördeild. Ennfremur er sóknarnefndum
heimilt aö sameinast um kjördeild að fengnu samþykki prófasts
10. gr.
£ hverju prófastsdæmi skal vera yfirkjörstjorn skipuð
prófasti og tveimur kjörnum af héraðsfundi til 4 ára í
senn ásamt jafnmörgum varamönnum. Að jafnaði skal vera
löglærður maður £ yfirkjörstjórn.
11. gr.
Kjörstjórn annast gerð kjörskrár í hverri sókn. Skal hún
lögð fram eigi síðar en fjórum vikum fyrir kjördag.
Kjörskrá skal liggja frammi til sýnis hið minnsta í tvær
vikur á hentugum stað er kjörstjórn auglýsir samkvæmt
þv£ sem venja er að birta opinberar auglýsingar á þeim stað.
12. gr.
Hver sá, sem kæra vill að einhvern vanti a kjörskra eða
sé ofaukið þar, þarf að hafa afhent formanni kjörstjórnar
kæru sína ásamt rökum og gögnum máli smu til stuðnings
eigi s£ðar en tveimur vikum fyrir kjördag. Sé kæran um það,
að einhver sé á skrá tekinn, sem ekki hafi rétt til að
standa þar, skal formaður senda þeim sem yfir er kært
eftirrit af kærunni.
13. gr.
Aðfinnslum þeim við kjörskrána, sem fram eru komnar skal
hlutaðeigandi kjörstjórn úrskurða £ s£ðasta lagi viku
fyrir kjördag. Skal gsfa þeim er kæran varðar kost á að
tjá sig og koma að gögnum aður en kæran er urskurðuð.
tJrskurði kjörstjórnar má áfrýja til yfirkjörst jórnar .
Hún skal hafa úrskurðað framkomnar kærur degi fyrir kjördag.
Eftir þetta verður engin breyting gerð á kjörskránni.