Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 71

Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 71
68 þjóðkirkjunnar og hefði þar forræði um framkvæmdir og starf- rækslu. Að fleiru ber þó að hyggja. Hinn 16. nóvember 1907 voru staðfest lög um sölu kirkjujarða. Andvirði seldra kirkju- jarða og ítaka átti að leggja í sórstakan sjóð, er nefndist Kirkjujarðasjóður og stóð beint undir landsstjórnina. í þennan sjóð átti enn fremur að leggja peningaeign presta- kalla. Eign Kirkjujarðasjóðsins bar svo að ávaxta sem óskerðanlegan höfuðstól og árlega að leggja við innstæðuna 5% af árstekjunum, en að öðru leyti runnu vextirnir í Prest- launasjóð til að launa sóknarpresta þjóðkirkjunnar. I Prest- launasjóð rann líka eftirgjald af fasteignum prestakallanna, arður af ítökum og prestsmata, svo og sóknartekjur o.f1. Við setningu laga nr. 35, 9. max 1970 varð á þessu breyting er Kristnisjóður var stofnaður og Kirkjujarðasjóður látinn renna í hann, auk þess sem ákveðið var að þaðan af ætti andvirði seldra kirkjujarða, annarra en prestssetursjarða, að renna í Kristnisjóð. Kirkjuráð hefur á hendi umsjá og stjórn Kristnisjóðs og ber ábyrgð fyrir kirkjuþingi á stjórn hans. Af þessu má álykta að kirkjujarðir séu áfram eign þjóð- kirkjunnar þó að öll umsjá þeirra sá í höndum jarðeigna- deildar landbúnaðarráðuneytisins og þeim ráðstafað án þess að kirkjan hafi þar um íhlutunarrétt að skráðum lögum. Greinarmunur er gerður á ríkisjörðum og kirkjujörðum. Það kom síðast fram í dómi Hæstaréttar nú fyrir skömmu í deilu um Kárastaði í Þingvallasveit, þar sem Hæstiréttur taldi ástæðu til að taka sérstaklega fram £ forsendum dóms, að Kárastaðir séu kirkjujörð. Að svo stöddu viljum við ekki reyna að skilgreina hugtakið kirkjujörð til hlítar. Ljóst er, að það tekur til allra jarða, sem einstökum kirkjum voru gefnar þeim til viðhalds, tekna og endurbyggingar, svo og beneficium, sbr. greinargerð síra Gxsla Brynjólfssonar með skrá yfir seldar kirkjujarðir 1876-1964. I þá skrá er okkur tjáð að kristfjárjarðir vanti en væntanlega ber að telja þær til kirkjueigna ef ekki kirkj uj arða. Við teljum nauðsynlegt að unnið verði áfram að þvi verkefni sem okkur var falið. Rétt er að gerð verði skrá yfir allar þær jarðir, sem í dag eru taldar kirkjujarðir. Jafnframt er nauðsynlegt að reyna að gera sér grein fyrir hverjar voru taldar eignir kirkjunnar 1907 er margvísleg löggjöf um kirkjumálefni var sett. Á grundvelli þessara athugana er

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.