Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 74

Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 74
71 þing og kirkjuráð. Það mál, eins og fleiri þingmál, hlaut fyrst og fremst að koma til kasta kirkjumalaráðherra um atbeina, þ.e. flutning og framgang á Alþingi. Ekki kom til þess að þetta færi fyrir Alþing og bíður það annars tíma, svo sem margt annað. 4. mál, þingsályktunartillaga um innheimtu á andvirði seldra kirkjueigna ásamt vöxtum. Þeirri tillögu var visað til þeirrar nefndar, sem kjörin var 1 annað mál þingsins. 5. mál, tillaga til þingsályktunar um altarissakramentið, hlaut þá afgreiðslu þingsins , að mælst var til þess við biskup, að hann hlutaðist til um, að gefnar væru út leið- beiningar um meðferð altarissakramentisins, kvöldmáltíðar- efni o.f1. er að því lýtur. Ekki hafa slíkar leiðbeiningar enn verið sendar út, en nokkru fyllri bendingar um þetta en verið hafa í handbókum áður, eru í þeim "Drögum að tillögu til Messubókar", sem lögð var fram á prestastefnu 1976. Samkvæmt samþykkt prestastefnunnar í fyrra er nú starfandi nefnd, sem á að fylgjast með notkun bessarar messubókar-tillögu og safna gögnum um viðbrögð presta og safnaða. Þetta mál er þvi á dagskrá, ásamt öðru í messunni og athöfnum kirkjunnar. Það þarf að skoðast í heild og í sam- hengi hvað við annað. Það er orðið meira en tímabært að þetta endurskoðunarmál verði falið starfhæfri nefnd með umboði til þess að skila því af höndum til fullnaðarsam- þykktar innan skamms tíma. 6. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um biskups- kjör. Hafði það mál verið afgreitt áður með ósk um, að það væri lagt fyrir prestastefnu til umsagnar. Nú er það ein af tillögum Starfsháttanefndar að leikmönnum skuli með reglugerð tryggð þátttaka í biskupskjöri og þar sem prestastefnan hefur ekki gert athugasemd við þetta í sinni rækilegu umfjöllun um þetta álit, verður að telja, að prestastefnan hafi látið skoðun sína í ljós í bessu máli, svo að það atriði þurfi ekki að vera til fyrirstöðu í þvi að koma þessari breytingu fram, ef aðrar forsendur eru fyrir hendi. 7. mál, tillaga til þingsályktunar um sjónvarpsefni. Vilhjálmur Hjálmarsson, kirkjuráðsmaður og þáverandi menntamálaráðherra, upplýsti £ umræðum um þetta mál, að

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.